Úr sýningarreglum HRFÍ

XVI. Sérákvæði um meistarareglur fyrir vinnu- og veiðihunda
(Gildir fyrir hunda sem fæddir eru eftir 1. janúar 1999).

 

Til að eftirtaldar hundategundir sem tilheyra tegundahópum 1, 2, 3, 4, 5, 6 og vatna- og spanielhundar (Flushing/Water) í tegundahópi 8 og fæddar eru eftir 1. janúar 2004 hljóti titilinn íslenskur meistari gilda þær reglur sem að neðan eru taldar.
(Gildir um allar þær hundategundir sem þurfa að skila vinnuprófum):

1. Að hafa hlotið þrjú meistarastig á sýningum HRFÍ, hjá þremur dómurum, þar af eitt stig í opnum flokki.
2. Skapgerðarmat á aldrinum 12-18 mánaða.
3. Sporleitarpróf viðurkennt af HRFÍ eftir 9 mánaða aldur.
4. Bronsmerki í hlýðni. (Gildir fyrir hunda fædda eftir 1. janúar 2004).
5. IPOI próf (Schutzhund, SCHH1) jafngildir lið 3 og 4.

Einnig þurfa vinnuhundar (Working/Utility) í tegundahópi 1, 2, 3, 4, 5, 6 og vatna- og spanielhundar (Flushing/Water) í tegundahópi 8 að uppfylla eftirtalin skilyrði til að að verða alþjóðlegur sýningarmeistari (INTUCH):

1. Tvö alþjóðleg meistarastig (CACIB) í einu eða fleiri löndum, frá tveimur dómurum af mismunandi þjóðerni og frá tveimur FCI aðildarlöndum. Eitt ár og einn dagur verða að líða milli fyrsta og síðasta alþjóðlegs meistarastigs. Dæmi: frá 1. janúar 2004 til 1. janúar 2005.
2. Skapgerðarmat
3. Bronsmerki í hlýðni
4. Sporleitarpróf I, viðurkennt af HRFÍ
5. IPOI próf (Schutzhund, SCHH1) jafngildir lið 3 og 4.
Að öðru leyti gilda sýningareglur HRFÍ.

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann