Shar Pei

Lýsing
Shar Pei er athafnasamur og viðbragðsskjótur. Í kína eru samlíkingarnar um "melónu höfuð" og "ömmu andlit" notaðar um hundana. Hárafar er mismunandi, Styttri gerðin er kölluð "horse coat" og lengri "brush coat." Shar Pei er ákaflega tryggur og húsbóndahollur, en á verði gagnvart ókunnugum. Hann er árvakur, virkur, rólegur, sjálfstæður, og mjög ástúðlegur og trúr sínu fólki. Hann er ríkjandi (dóminerandi), og  getur því verið árásagjarn gagnvart öðrum hundum. Honum er mjög vel við börn. Þjálfun ætti að vera ákveðin, en alls ekki hörð.

 

Uppruni
Nokkrar getgátur eru um uppruna Shar-Pei hunda meðal annars er talið að um sé að ræða kynblöndu af mastiff-kyni og norrænu-kyni. Einnig er mögulegt að Shar-Pei hundarnir séu komnir af hundategundinni Chow Chow. Shar-Pei kynið er ævaforn tegund hunda og talið er að kynið hafi verið til á tímum Han-konungsættarinnar í Kína frá 2 öld fyrir Krist. Shar-Pei hundar voru notaðir af lágstéttarfólki til að létta undir við heimilisstörfin bæði í smalamennsku og við veiðar. Í Shar pei var nánast útdauður vegna þess að Kínverjar bönnuðu hunda á meginlandinu, tegundinni var bjargað af Matgo Law, ræktanda frá Hong Kong.

Shar-Pei

FCI standardinn

Krafa um vinnupróf: Nei

Tengiliður:

Súsanna Björnsson,

s: 422-7557 og 892-8650

 

 

Íslenskar síður:

Shar-Pei á Íslandi

Brekkukots Shar-Pei

   
     

Umhirða
Halda þarf augum og eyrum hreinum. Shar Pei fara einu sinni til tvisvar á ári úr hárum og það er nóg að kemba þá nokkrum sinnum í mánuði. Æskilegt er að setja Shar Pei í bað annað slagið en ekki of oft.

Hreyfing
Shar Pei eru rólegir hundar og þurfa ekki mikla hreyfingu, þeir sætta sig við það sem eigandinn býður. Shar-Pei er mjög forvitinn hundur og ætti því að fá að hlaupa laus á öruggu svæði.

Leyfilegir litir
Allir einlitir leyfilegir, nema hvítur. Oft eru litbrigði á skotti og aftan á lærum, í dekkri lit.

Hæð á herðakamb
44 - 51 sm.

Þyngd
Meðalþyngd 20 kg.

Staðreyndir

  • Upprunaland: Kína
  • Upprunatími: 1500
  • Fyrstu not: Veiðihundur, slagsmála- og fjárhundur
  • Í dag: Félagi
  • Lífsskeið: 11-12 ár
Önnur nöfn: Chinese fighting dog

 

Texti: Rannveig Guðbrandsdóttir

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann