|
|
RottweilerRottweilerinn er sterkur og mjög öflugur hundur með eðlislægt varnareðli. Upphaflega var rottweilerinn samt notaður sem fjárhundur þar sem hann gætti kinda en fljótlega varð hann svo þekktur sem varðhundur.
Saga og uppruni Það er talið að rottweilerinn sé afkomandi fjárhundategundar sem forn rómverjar notuðu til að gæta sauðfé síns. Rómverskir hermenn eru síðan sagðir hafa farið með rottweilerinn sér við hlið um Evrópu, þar á meðal Þýskaland, í rómversku innrásinni. Hlutverk hans var þá að gæta búfénaðs rómverjanna auk þess að verja þá og matarbirgðirnar fyrir óboðnum gestum eins og úlfum. Í sögubókum er sagt frá því að hermennirnir hafi ráðist inn í Þýskalnd og sest þar að árið 74, og var bærinn sem þeir settust að í kallaður Rottweil. Rottweilerinn telst í dag til vinnuhunda hópsins og er notaður við ýmiss störf eins og lögregluhundur og varðhundur. |
Krafa um vinnupróf: Já Tengiliður: s: 865-1945
|
|||||
Útlitseinkenni og stærð Rottweiler er stór og stæðilegur svartur hundur með ryðrauðum flötum. Feldurinn er tiltölulega snöggur en frekar grófur. Höfuðið er breytt og sterklegt. Eyrun þríhyrningslaga og lafandi. Rottweilerinn býr yfir miklum styrk og er með breiðan og djúpan brjóstkassa. Skottið er í flestum tilfellum stíft, ekki á Íslandi þó þar sem það er bannað með lögum. Fullorðinn rottweiler á að vera um 56-69 cm á herðakamb og vega um 40-50 kg.
Skapgerð Rottweilerinn er yfirleitt mjög rólegur en samt sem áður vakandi og því tilvalinn varðhundur. Hann er óttalaus og verndar það sem vernda þarf og lætur heyra í sér ef einhvern óboðinn ber að garði. Þrátt fyrir varðhundaeðlið er Rottweilerinn frábær hundur, mikil féalgsvera og skemmtilegur. Rottweilerinn er fljótur að mynda góð og sterk tengsl við eigendur sína en er aftur á móti aðeins lengur mynda tengsl við ókunnuga. Þeir sem koma rottweiler hundi að óvörum geta því alveg átt von á árásargjörnum viðbrögðum. Tegundin er ekki alltaf heppileg með litlum börnum þar sem hundarnir eru mjög sterkir og geta verið tiltölulega óþolinmóðir gagnvart klipum og öðru áreiti frá ungum börnum.
Þjálfun Rottweiler eru mjög svo gáfaðir hundar og hafa þjónað því hlutverki að vera varðhundar í margar aldir. Um aldamótin 1900 fór rottweilerinn síðan að fá nýtt hlutverk en farið var að þjálfa þá sem lögregluhunda. Þeir eru mjög viljugir til að læra og duglegir. Því miður hafa alltof margir notfært sér þennan mikla vilja rottweilersins til að læra og þjálfað hann til árása. Það hefur leitt til þess að tegundinn hefur á sér leiðinlegt orð fyrir að vera árásargjörn en sem betur fer held ég að með góðri kynningu rottweilers eiganda undanfarin ár sé þetta að breytast og fleiri og fleiri að komast að því hvað rottweilerinn er yndislegur og síðast en ekki síst góður hundur.
Umhirða Rottweilerinn ætti að bursta nokkrum sinnum í viku til að halda feldinum hreinum og heilbrigðum. Burstun fjarlægir dauð hár og húðflögur auk þess sem hún örvar blóðrásina og flýtir því fyrir vexti nýrra hára, einnig er burstun góð til að mynda tengsl við hundinn og því gott að venja sig á burstun meðan hvolpruinn er ungur.
Sérþarfir Sumir Rottweiler hundar hrjóta hátt og vel meðan að þeir sofa og geta einnig hóstað í framhaldinu af því. Einstaka hósti er í lagi en ef hóstinn fer að verða algengur, sérstaklega á meðan hundurinn sefur, getur hann bent til hjarta eða lungnasjúkdóma. Meðallíftími Rottweilers er 10-12 ár
Texti: Ragnhildur Gísladóttir |
|||||||
| Vefur: Bergþóra Bachmann |
|||||||