|
|
German PinscherÞýski Pinscherinn er gömul tegund upprunin frá Þýskalandi. Minnst er á tegundina í bókum frá árinu 1880. Tegundin var nálægt því að deyja út í kringum heimstyrjaldirnar tvær, því þá var meira litið til stærri og öflugri vinnuhundategunda til að notast við í stríðunum. En í kringum sjötta áratuginn byrjaði talsverð vakning í kringum tegundina og sem betur fer var henni bjargað.
Þó svo að tegundin minni kannski helst á smækkaða útgáfu af Dobermann, þá er sannleikurinn sá að Pinscherinn er skyldari Schnauzer en Dobermann. Raunar var það svo að í byrjun var Schnauzerinn kallaður stríhærður Pinscher. Pinscherinn á samt veigamikinn þátt í sköpun Dobermanns. |
Krafa um vinnupróf: Nei Tengiliður:
Íslenskar síður: |
|||||
Útlit: Pinscherinn er snögghærður hundur og á að vera ferhyrndur í byggingu. Hann á að vera þokkafullur og stæltur. Til eru tvö litaafbrigði, rauður og svartur með rauðu tani. Fyrr á tíðum var venjan að skott- og eyrna stífa tegundina, en nú er búið að breyta standardinum og gerir standardinn nú ráð fyrir að tegundin hafi náttúruleg eyru og skott. Stærð: 45 - 50 cm á herðakamb, 14 - 20 kg.
Skapgerð: Pinscherinn á að vera líflegur og sjálfsöruggur hundur. Hann er snjall og ágætur í þjálfun. Hann hefur góða veiðieiginleika og hefur verið vinsæll í blóðspori. Hann henntar vel sem fjölskylduhundur og er ágætis varðhundur. Það telst til mjög alvarlegs galla ef hundur af þessari tegund er feiminn, árásargjarn, grimmur eða taugaóstyrkur.
Heilsufar: Tegundin er almennt heilsuhraust. Það tíðkast að mjaðmamynda tegundina og augnskoða fyrir paranir. Líkt og í Dobermann þá þekkist von Willebrand Disease, eða blæðari í tegundinni og margir ræktendur taka DNA sýni úr undaneldisdýrum sýnum fyrir vWD. Útþynntu litirnir Blue og Fawn eru einnig til staðar í tegundinni alveg eins og hjá Dobermann og Miniature Pinscher. Þessir litir eru ekki samþykktir hjá FCI og þar af leiðandi ekki heldur hjá HRFÍ, en í Bandaríkjunum og Bretlandi eru þessir litir leyfðir og ræktaðir vísvitandi. Margir ræktendur taka því líka DNA sýni fyrir DD (Dilute).
Texti: Bergþóra Bachmann |
|||||||
| Vefur: Bergþóra Bachmann |
|||||||