Miniature Pinscher

Dvergpinscher var skapaður til að hafa fulla stjórn á líkama sínum. Glæsilegur, þokkafullur, líflegur, hugrakkur, gáskafullur og árvakur. Leggjalangur smáhundur með kröftugan búk sem svipar mikið til Dobermanns í útliti en þónokkuð minni. Nokkuð taugaspenntur.  Min Pin er auðveldur í þjálfun, vökull óttalaus og elskar húsbónda sinn umfram allt og er alveg fyrirtaks varðhundur.Dvergpinscher hefur sterkan persónuleika, hann hentar oft ekki vel í sambúð með öðrum hundum en getur lifað með hverju sem er ef vaninn á það. Ákveðin þjálfun, sem og umhverfisþjálfun er því nauðsynleg.

 

Hæð 25-30cm að herðakambi (+/- 2cm). 4-6kg að þyngd

Miniature Pinscher

FCI standardinn

Krafa um vinnupróf: Nei

Tengiliður:

Berglind Anna Zoëga,

s: 661-8366

 

 

Íslenskar síður:

Tjica.com

   
     

Uppruni Dvergpinscher er enn dulin. Getgátur eru um að hann sé komin af mjög gamalli þýskri tegund, sem er skyld Schnauzer, aðrir trúa að hann sé komin af Svarta og gulbrúna Terrier (Black and Tan Terrier).
Dvergpinscher var upprunalega öflugur rottuveiðihundur, hann er ekki smækkuð útgáfa af Dobermann. Fínu línurnar sem hann hefur í dag er fínpússað útlit frá upprunalega ræktunarmiðinu, hann var grófari.Tegundin var viðurkennd árið 1879. 


Hreyfing Dvergpinscher er mjög orkumikill hundur og þarf því næga hreyfingu. Dagleg ganga er æskileg.


Standard: Black and Tan; brún auðkenni yfir augum, á hálsi, bringu, lægri helming framfótanna, á innanverðum afturfótum, fyrir ofan endaþarm, á lægri hluta hækilbeins, kinnum, og á neðri kjálka. Eins er viðurkennt Chock og Tan svo og/ eða alveg heillitaður Rauðbrúnn litur. Blue og Tan ekki leyfður.

Feldur á að vera snöggur, sléttur og liggja þétt upp við húð. Það fylgir þeim lítil sem engin feldhirða.

 

Texti: Berglind Anna Zoëga

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann