Dogue de Bordeaux

Lýsing

Douge de Bordeaux er einnig kallaður Franskur Mastiff og stundum er hann kallaður Bordeaux Bulldog er þrekvaxinn mastiff með stóran, þungan, breiðan og krumpaðan haus. Hausinn er mjög mikilvægur í þáttur í ræktun þessarar tegundar. Sýningarhundar í 1. flokki karlhunda hafa ummál höfuðs 68-75 cm. Neðri kjálkinn er framstæður (skúffa) og mjög öflugur. Hundurinn skal alltaf hafa rauða eða svarta grímu sem sker sig úr frá restinni af feldinum, í kringum og undir nefinu með vörunum og kringum augnumgjörðina. Nasinar eru mjög opnar. Trínið ætti að vera að minnstakosti 1/3 af lengd höfusins. Efrivörin hangir þykk niður fyrir neðri kjálkann. Skinnið á hálsinum er laust og myndar greinilegar húðfellingar neðan á hálsi. Skinnið er allmennt þykkt. Eyrun lafa niður. Líkamin er kubbslegur, lágvaxinn og þrekinn í beinni línu með mjúklega rúnaða lend. Framfætunir eiga að vera beinir og stórbeinóttir. Beint skottið byrjar þykkt við kroppinn og mjókkar í spíss. Skottið ætti ekki að ná niður fyrir hækilsbeinið. Feldurinn er stuttur og litir frá ljósbrúnum til dökkrauðs meðrauða eða svarta grímu. Hvítir blettir eru aðeins leyfðir á tánum og á brjósti, annarstaðar telst það galli.

Franskur Mastiff

FCI standardinn

Krafa um vinnupróf: Nei

Tengiliður:

Enginn tengiliður

 

 

Íslenskar síður:

http://mastiff.is

http://www.123.is/vestfjardar/

   
     

Skapgerð
Ræktendur hafa mildað mjög mikið skap tegundarinnar frá upprunanum. Í dag er Franskur mastiff góður og rólegur hundur. Hann er mjög tryggur og þolinmóður og mjög hændur fjölskyldu sinni. Óttalaus við ókunna og mætir þeim auglitis til auglits, hann er fyrsta flokks varðhundur, en alls ekki árasargjarn. Blandar geði vel við önnur dýr ef aldnir eru upp með þeim frá unga aldri. Franskur Mastiff hrýtur og slefar. Þrátt fyrir hrikalegt útlit er Franskur Mastiff frábær heimilishundur og einstaklega barngóður. Hann mjög kröftugt dýr og hentar því ekki óreyndum hundaeigundum.

 

Hæð og þyngd
Hæð 58-75 cm
Þyngd 50-70 kg

 

Heilsa
Franskur Mastiff er ekki auðvelt dýr til ræktunar. Keisarauppskurð þarf oft við fæðingu, þar sem hvolpanir eru með mjög stórann haus. Tíkunar eru með stóra og oft signa spena og liggja því á maganum þegar að þær eru að gefa hvolpunum, sem verður til þess að þær kremja þá. Ræktendur verða að gæta vel að hvolpunum, annars eiga þeir hættu á að missa einhverja. Tíkur eiga það til að vernda hvolpana sína.

 

Heimilisaðstæður
Franskur Mastiff þolir vel að búa í lítilli íbúð ef hann fær næga hreyfingu. Þeir eru mjög afslappaðir heima við og þurfa ekki endilega garð.

 

Hreyfing
Þarf meðalhreyfingu

 

Lífslíkur
Um það bil 10-12 ár.

 

Feldhirða
Mjög lítil.

 

Saga
Margar tilgátur eru um uppruna Franska Mastiffsins. Hann gæti rakið ættir sínar til Grísk og Rómverska Molossus. Á langir sögu Franska Mastiffsins hefur hann verið notaður af mörgum. Hann hefur þjónað sem herhundur. og varið þar herdeildir, hann var einnig notaður í ati gegn nautum, björnum og öðrum hundum. Á miðöldum var hann notaður til þess að reka naut og lífvörður. Í frönskubyltingunni dóu margir hundar sem voru að reyna að verja landareign húsbænda sinna. Til allra hamingju lifðu nógu margir af til hægt væri að bjarga stofninum. Franski Douge de Bordeaux klúbbur Raymond Triquet bjargaði tegundinni. Nú hefur Douge de Bordeaux eða Franskur Mastiff náð miklum vinsældum í Frakklandi eins og annarsstaðar í heiminnum. Tegundin er samþykkt af FCI, en ekki enn hjá AKC.

Tegundar hópur 2

Tegundin er samþykkt af: ANKC, FCI, NKC, NZKC,CKC, ORBEA, APRI, ACR

ANKC = Australian National Kennel Club
FCI = Fédération Cynologique Internationale
NKC = National Kennel Club
NZKC = New Zealand Kennel Club
CKC = Continental Kennel Club
OREBA = Old Red English Bulldogges Association & Registry
APRI = American Pet Registry Inc.
ACR = American Canine Registry

 

Texti: (http://dogbreedinfo.com) íslenskað og lagað til af Bolla Ófeigssyni

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann