|
|
DobermannÞað var Þjóðverjinn Friedrich Louis Dobermann sem á heiðurinn á þessum glæsilega hundi. Hann var einskonar hundaeftirlistmaður og hafði því aðgang að mörgum ólíkum tegundum. Hann dreymdi um hinn fullkomna varðhund, meðalstóran eða stóran hund sem átti að vera snögghærður, hugrakkur og þolgóður. Fyrst paraði hann saman German Pinscher og Rottweiler. Einnig kom við sögu Machester terrier og Pointer. Um 1880 var svo Dobermann til og árið 1900 var hann fyrst skráður í Breska hundaræktunarfélagið og 1912 var Dobermann klúbbur stofnaður í Bandaríkjunum.
Dobermann varð strax mjög vinsæll um allan heim sem varðhundur og lögregluhundur auk þess sem hann gegndi stóru hlutverki í seinni heimstyrjöldinni í björgun mannslífa. Hann er stór, sterkur, þolinn og er í hópi gáfuðustu hundategunda í heiminum. |
Krafa um vinnupróf: Já Tengiliður: s: 899-9333
Íslenskar síður: |
|||||
Dobermann hefur mikla vinnugleði og þarfnast krefjandi verkefna, hann á samt sem áður auðvelt með að una sér í ró og næði fyrir framan sjónvarpið við hlið húsbónda sins.
Flestir sem heyra minnst á orðið Dobermann sjá jafnan fyrir sér froðufellandi óargadýr, sem er ef til vill ekki skrýtið, vegna þess orðspors sem af honum fer og hlutverks sem hann hefur gegnt í gegnum tíðina. Þetta eru að mestu leyti ýkjur, þó vissulega sé hægt að gera úr honum ákafan varðhund. Að eðlisfari er Dobermann barnagæla, blíður, ástríkur í meira lagi og traustur hundur, sem hefur þó STERKT varðeðli og mun hann passa þig, fjölskyldu þína, bílinn, húsið og hin gæludýrin en það er ekki sjálfgefið að hann ráðist á og slasi alla óvelkomna eða ókunnuga, heldur hefur hann bara í hótunum nema að honum sé kennt annað.
Dobermann hefur gjarnan verið notaður til lögreglustarfa, hann er góður leitar-, blindrar- og björgunarhundur, einnig finnast dæmi sem þeir hafa verið þjálfaðir í veiði og jafnvel sem fjárhundar. Að eiga Dobermann er þó mikil skuldbinding og ekki beinlínis ráðlagt að fá sér hann sem fyrsta hund, hann þarf mikinn aga og skýrar reglur. Dobermann elskar að vinna fyrir eiganda sinn og þarf að fá vinnu sem bæði reynir á líkamlegt og andlegt atgerfi. Því er sniðugt að fara með hann á hlýðni- og sporanámskeið þar sem hann fær útrás fyir vinnugleði sína með húsbónda sínum.
Texti: Stella Kristjánsdóttir & |
|||||||
| Vefur: Bergþóra Bachmann |
|||||||