Dachshund

Langhundurinn er vingjarnlegur, glaðvær og yfirvegaður smáhundur með tignarlegt yfirbragð. Hann er í eðli sínu ágætur varðhundur.


Langhundurinn er skemmtilegur og greindur og hefur áhuga á að læra , t.d. er hann frábær sporhundur.
Þeir eru þolgóðir og hafa unun af útivist þó eru þeir ekki í brýnni þörf fyrir mikla hreyfingu.


Til eru þrjár tegundir af Langhundi:
Strýhærðir, snögghærðir og síðhærðir.


Dachshund

FCI standardinn

Krafa um vinnupróf: Já

Tengiliður:

Edda B. Ólafsdóttir

 

 

Íslenskar síður:

Árbæjarræktun

   
     

Snögghærði langhundurinn er orkumestur á meðan strýhærði er mesti veiðihundurinn. Sá síðhærði er rólegastur og er vinsælastur af þeim sem fjölskylduhundur.

Langhundar þurfa gott atlæti og ákveðna þjálfun.

 

Til eru mismunandi stærðir af þeim og flokkast aðallega af brjóstummáli.
Standard stærð (Normalstorlek) Brjóstummál 35cm og yfir, ekki þó þyngri en u.þ.b. 9 kíló
Dvergastærð (Dvärgstorlek) Brjóstummál 30cm uppað 35cm.
Kanínustærð(Kaninstorlek) Brjóstmál uppað 30cm.
Langhundar tilheyra tegundahóp 4.

Texti: Edda B. Ólafsdóttir

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann