Bullmastiff

Almennt útlit
Hundur sem samsvarar sér vel, sýnir mikinn kraft, þol og árvekni; sterklega byggður en athafnasamur. Grunnurinn að ræktun var 60% Mastiff og 40% Bulldog.
Tegundin var þróuð í Englandi af veiðivörðum sem þurftu vernd gegn veiðiþjófum

Stærð og hlutföll

Stærð rakka: 63,5 - 68,5 cm á herðakamb og 49,5 - 58,5 kg. Tíkur: 61 - 66 cm á herðakamb og 45 - 54 kg. Ef annað er í jafnvægi er sóst eftir því að hundur sé sem þéttastur en innan þessara marka. Hlutföll: Lengd frá odda brjóstbeins að enda læris er örlítið lengri en frá jörð að herðakambi og er útlit hundsins því frekar ferkantað.

 

Bullmastiff

FCI standardinn

Krafa um vinnupróf: Nei

Tengiliður:

Enginn tengiliður

 

 

Íslenskar síður:

Bullmastiff

   
     

Höfuð
Svipbrigði: áhugasamur, árvökull og gáfaður. Augu dökk og meðalstór. Eyru V-laga og borin nærri vanga, breitt og hátt, jafnvægi á hnakkabeini og vanga sem gefur höfðinu ferkantað útlit, dekkra á lit en búkurinn og miðlungsstórt. Höfuðkúpa stór, með þokkalegum skammti af hrukkum þegar hann er í viðbragðsstöðu, breiður með vel þroskaða vanga. Enni: flatt. Stopp: miðlungs, trýni: breitt og djúpt og lengd á móti höfði hlutföllin 1:3. Skortur á trýni með nasir staðsettar ofan við trýni er afturhvarf til Bulldogsins og er mjög óæskilegt. Dökkt trýni er æskilegt. Nef: svart með stórar og breiðar nasir. Munnvik ekki of hangandi. Bit: helst jafnt bit eða smávegis undirbit. Vígtennur stórar og gott bil á milli þeirra.

 

Háls, topplína, búkur
Háls: aðeins hvelfdur, meðal langur, mjög sterklegur og næstum jafn höfuðkúpu að ummáli. Topplína: bein og jöfn á milli herðakambs og lendar. Búkur: þéttur. Bringa breið og djúp rifbein vel hvelfd og vel staðsett á milli framfóta. Bak: stutt og gefur mynd af hundi í góðu samræmi. Lend: breið, vöðvastælt og lítillega hvelfd með góðri dýpt á síðu. Rófa: Hátt sett, sterkt við rót og mjókkar að hækli. Það má vera beint eða hringað en aldrei borið eins og á veiðihundi,

 

Framhluti
Axlir: vöðvastæltar en ekki of og aðeins aflíðandi. Framfætur: beinir og sterkir og gott bil á milli, olnbogar eiga hvorki að snúa inn né út. Kjúkur beinar, fætur miðlungs stórir með vel bogadregnar tær. Þófar þykkir harðgerir og klær svartar.

 

Afturhluti
Breiður og vöðvamikill með vel þroskað annað læri sem sýnir styrk en ekki klunnalegur. Miðlungs vinklaður við hækla. Inn- og útskeifa alvarlegir gallar.

 

Feldur 
Snöggur og þéttur og gefur góða vörn gegn veðri.

 

Litur
Rauður, ljósgulbrúnn (fawn) eða bröndóttur (brindle). Utan mjög smás hvíts bletts á bringu eru hvítar merkingar taldar galli.

 

Gangur
Frjálst, mjúkt og sterklegt. Séð frá hlið gefa gangur og stökk í skyn hámarks notkun á miðlungs vinklum hundsins. Bak helst jafnt og þétt. Hann kemur og fer í beinni línu. Fætur eiga það til að renna saman undir hundinum án þess þó að krossa þegar hraði eykst. Það er enginn snúningur inn eða út á liðamótum.

Skap
Óttalaus og sjálfsöruggur en þó viðráðanlegur. Hundurinn sameinar áreiðanleikann, gáfurnar og viljann til að þóknast sem er nauðsynlegt í áreiðanlegum fjölskyldu félaga og verndara.

 

Texti: Dagný Eiríksdóttir

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann