|
|
Enskur BulldogRæktunarstaðall ensks Bulldog.
Heildarútlit, framkoma, svipur o.s.frv. Hinn fullkomni Bulldog er miðlungsstór með sléttan feld, þungan, þykkan og lágan búk, stórt og mikið höfuð, stutt andlit, breiðar herðar og sterklega útlimi. Heildarútlit og framkoma ættu að skírskota til mikils stöðugleika, krafts og styrks. Í skapi á hann að vera rólegur og vingjarnlegur, ákveðinn og hugrakkur (ekki árásagjarn eða grimmur) og framkoman á að vera friðsamleg og virðingarfull. Þessir eiginleikar ættu að koma fram í svip og hegðun.
Hreyfing - Stíll og burður eru einstakir. Göngulagið á að vera kæruleysislegt, dragandi, hliðarhreyfing, sem gefur einkennandi veltandi eða rúllandi hreyfingu. Þó eiga hreyfingarnar að vera eðlilegar, án allrar áreynslu, frjálslegar og kraftmiklar. |
Krafa um vinnupróf: Nei Tengiliður: s: 824-4550
Íslenskar síður: |
|||||
Hlutföll og samræmi - Stigin eiga að vera með góða dreifingu og vera í samræmi hvert við annað. Ekkert einkenni á að vera svo áberandi að gæðum eða galla, að dýrið virðist vanskapað eða hlutföllin slæm. Áhrif kynferðis - Í samanburði á einstaklingum af sitthvoru kyninu á að taka tillit til þess að tík ber tegundareinkennin aldrei í jafnmiklum mæli eða þau jafn áberandi og hjá rökkum. Samanburður á því að þessu leyti alltaf að vera tíkum í hag.
Stærð - Stærð fullþroskaðs rakka er u.þ.b. 25 kg og fullþroska tíkur u.þ.b. 22,7 kg.
Feldur - Feldurinn á að vera sléttur, stuttur, liggja þétt, fíngerður, mjúkur og glansandi. (Má ekki vera grófur, uppistandandi, engar fjaðrir eða krullur.)
Feldlitur - Feldlitur á að vera heilsteyptur, hreinn og skær. Hinir mismunandi litir tegundarinnar eru eftirsóknarverðir í eftirfarandi röð.
Húð - húðin á að vera mjúk og laus, sérstaklega um höfuð, háls og herðar.
Hrukkur og hes - Höfuð og andlit eiga að vera þaklin miklum hrukkum. Á hálsi, frá kjákum að bringu, ættu að vera tveir lausir, dinglandi húðflipar, sem mynda hesið.
Höfuðkúpa - Höfuðkúpan á að vera mjög stór. Ummál höfuðkúpu framan eyrna á að mælast að minnsta kosti jafnt hæð á herðakamb.
Kinnar - Kinnar eiga að vera vel fyllar, standa út til hliðanna og útfyrir augu.
Ennisbrot (stopp) - Gagnaugu eiga að vera mjög vel afmörkuð, breið, ferköntuð og hátt sett, valdandi laut eða skoru á milli augna. Þessi laut, ennisbrot (stopp) sem skiptir höfðinu lóðrétt, á að vera bæði breið og djúp, ná upp miðju ennisins og ætti að örla fyrir henni að toppi höfuðkúpu.
Augu og augnlok - Séð framan frá eigaaugun að vera staðsett lágt og djúpt í höfðinu, eins langt frá eyrum og mögulegt er og augnkrókar eiga að vera í beinni línu og í réttu horni við ennisbrot. Þau eiga að vera vel framan á höfðinu og eins langt á milli augna og mögulegt er, með þeim skilyrðum að þau séu innan kinnbeinslínu horft framan frá.
Eyru - Eyru eiga að vera staðsett hátt á höfðinu og á fremri og innri brún eyrna að renna saman við höfuðlínu við efstu og öflugustu brún hnkakka, til að þau séu eins langt frá hvor öðru, eins hátt sett og eins langt frá augum og mögulegt er.
Andlit - Andlitið, mælt frá framanverðu kynnbeini að nefbroddi á að vera einstaklega stutt, trýnið (granir) mjög stutt, breytt, upprétt og mjög djúpt frá augnkrók að munnviki.
Nef - Nef á að vera stórt, breitt og svart. Nefbroddur á að vera staðsettur djúpt aftur á milli augnanna.
Efri varir - Efri varir eiga að vera þykkar, breiðar, hangandi og mjög djúpar. Þær eiga að hanga algerlega yfir neðri kjálka á báðum hliðum. Þær sameinast neðri vör að framanverðu og hylja næstum því eða algerlega tennurnar, sem eiga að vera lítt eftirtektarverðar þegar munnur er lokaður.
Kjálkar - Kjálkarnir eiga að vera miklir, mjög breiðir og kantaðir. Bulldog á að vera með skúffu, þ.e. neðri kjálkinn á að ná þónokkuð fram yfir efri kjálka og beyjast upp á við.
Tennur - Tennurnar eiga að vera stórar og sterklegar. Vítt á að vera milli vígtanna og framtennurnar sex á milli vígtannanna eiga að vera í jafnri og beinni röð.
Háls - Hálsinn á að vera stuttur, mjög þykkur, djúpur og sterklegur og vel reigður að aftan.
Herðar - Herðarnar eiga að vera vöðvafylltar, mjög miklar, breiðar og eiga að hallast út á við og gefa þannig möguleika á mikla krafta.
Brjóstkassi - Brjóstkassinn á að vera mjög breiður, djúpur og vel öðvafylltur.
Bringa og búkur - Bringan og búkurinn ættu að vera stórgerð, með vel fylltum síðum, miklu rifjahylki og mjög djúpur frá herðum og niður að lægsta punkti þar sem brina mætir brjóstkassa. Bringan og búkurinn ættu að vera frekar niðurhangandi milli herðanna og framlappa, þannig að hundurinn virðist mjög breiður, lár og stuttfættur.
Bak - Bakið á að vera stutt og sterkt, mjög breitt um herðarnar en mjótt við lendar. Fall á að vera í baki stutt aftan herða (lægsti hluti baks) en þaðan á hryggsúlan að rísa aftur á lendar (þar sem hæsti punktur á að liggja hærra en herðarkambur), en þaðan á hryggsúla að lækka bratt að skottrót. Þetta formar bogalínu (mjög einkennandi fyrir tegundina) sem kölluð er söðulbak.
Framfætur - Framfætur eiga að vera stuttir, mjög sterklegir, beinir og vöðvamiklir. Breitt á að vera milli þeirra. Kálfarnir eiga að vera mjög miklir og gefa þannig bogna línu utan á fæturna, en leggir eiga að vera beinir og alls ekki hjólbeinóttir, eða þannig að framloppur séu of nálægt hvor annarri.
Olnbogar - Olnbogar eiga að vera lágir og standa út frá líkamanum.
Afturfætur - Afturfætur eiga að vera sterkir, vöðvamiklir og lengri en framlappir til að lendar liggi hærra en herðar.
Loppur - Loppurnar eiga að vera í meðallagi stóra, þéttar og sterklegar. Tær eru þéttar, vel aðskildar með háum hnúum og klær stuttar og kubbslegar.
Skott - Skott má vera annaðhvort beint eða uppskrúfað (en aldrei bogið eða beygt) og á alltaf að vera stutt, lágt sett og beinast niður á við. Skottrót á að vera þykk en skottbroddur fínlegur.
Texti: Bulldog.is |
|||||||
| Vefur: Bergþóra Bachmann |
|||||||