|
|
Basset houndBasset hound er vel þekktur fyrir hæfileika sína hvað varðar sérstaklega næmt þefskyn og að rekja slóð. Það er með ólíkindum hversu langt þeir geta rakið slóð og hafa þeir mikið verið notaðir við að veiða kanínur og alskonar dýr. Þeir voru ræktaðir með það að markmiði að hópa sig saman og vinna saman í veiði og eru margir eigendur og ræktendur enn þann dag í dag sem þjálfa hundinn sinn í þetta, með mjög góðum árangri.
Basset hound hefur einstakan karakter. Þeir eru fyrst og síðast veiðihundar, með mikið veiðieðli og því má ekki gleyma. Þeir hafa sérstakan hæfileika til þess að umgangast hvaða hundategund sem er. Karlhundurinn er t.d. ekki árásagjarn gagnvart öðrum karlhundum, þó svo eðlið eigi að segja til sín. Þó eru alltaf undantekningar frá reglunni hvað það varðar t.d ef tíkin á heimilinu er að lóða og um ókunnan hund er að ræða, svo eitthvað dæmi sé nefnt. En þetta er mjög þægilegt ef önnur tegund er á því heimili sem hann á að búa á. |
Krafa um vinnupróf: Já Tengiliður: Enginn tengiliður
Íslenskar síður: |
|||||
Basset hound elskar öll börn. Það er með ólíkindum hversu þolinmóðir þeir eru og einstaklega ljúfir þegar börn eru annars vegar. Þó verður að passa að óvitar eins og hvolpar innan við eins árs, meiði ekki algjörlega óvart, þegar þeir eru með börnum í leik, en þeir elska að leika við börnin og hafa þau í kring um sig. Þegar börn eru annars vegar held ég að orðin "matur" og "leikur" komi upp í hugan á þeim fyrst, en þeir reyna að stela öllum mat frá þeim, ef um það er að ræða, þegar þeir sjá sér fært, en aldrei eru þeir yfirgangsamir, þó að sjálfsögðu uppeldið hafi þar mest að segja, en virðingin sem að þeir sýna börnunum er einstök.
Basset hound elskar að vera í sófa. Fyrst þegar ég heyrði um tegundina, var það að þeir elski sófan í stofunni eða húsbóndastólinn úr hófi fram. Þeir eru svo rosalega fyrir þægindi. Einnig eru þeir mjög ánægðir ef þeir eiga sína mjúku körfu, svo framalega sem hún er á þeim stað sem heimilisfólkið dvelur mest. Hann þarf ekki langa göngutúra, en elskar að fá að vera úti í garði og snufsa. Þeir eru ekki geltnir, en það er helst þegar gleðin umlýkur þá að þeir gefi frá sér bobs. Þessi tegund er einstaklega þrjósk, en á mjög skemmtilegan hátt og á stæðstan þátt í því að mínu mati hversu miklir og dásamlegir karakterar þeir eru.
Basset hound er ekki fyrir þá sem vilja ekki óþrifnað inn á sitt heimili!!! Þegar hann drekkur og borðar subbast svolítið út og gott er að hafa eldhúsrúllu alltaf við hendina þar sem hann borðar. Hann fer úr hárum, reyndar ekki meira en margar aðrar hundategundir og ef hann er ekki baðaður og snyrtur reglulega kemur af honum lykt.Það má kanski segja meira en á öðrum hundum, en það skal tekið fram að þrifnaðurinn er að sjálfsögðu alfarið undir eiganda hundsins komin, en fólk verður að vita þessa hluti þegar það er að hugsa um að fá sér þessa tegund. Mér persónulega finnst þetta þess virði og hef aldrei kynnst eins ljúfri og yndislegri hundategund og Basset.
Texti: Basset.is |
|||||||
| Vefur: Bergþóra Bachmann |
|||||||