Basset fauve de Bretagne

Uppruni og saga.

Basset fauve de Bretagne er upprunninn í Bretagne-héraði í Frakklandi. Fyrsta opinbera tegundalýsingin á þessum hundum var gefin út eftir fyrri heimsstyrjöldina, nánar tiltekið þann 26 júní 1926 og fékk tegundin sína eigin tegundalýsingu samþykkta þar sem jafnvel liturinn er tiltekinn í nafninu, Fauve er litarheitið sem er hjartarlitur. Til eru heimildir frá því um 1500 um ólíkar týpur af stórum háfættum veiðihundum í Frakklandi sem veiddu með aðlinum í stórum flokkum. Það sem aðallega  greindi þessar tegundir í sundur var liturinn og feldlagið. Hundarnir voru umtalaðir fyrir það hversu snöggir þeir voru, frábærlega lyktnæmir, djarfir og áhugasamir á veiðum ásamt því að þola ýmiss konar veðráttu og vosbúð. Þeir voru jafnvígir á veiðum við flesta villibráð, allt frá héra upp í villisvín. Basset fauve de Bretagne er afkomandi þessara veiðihunda eins og flestar aðrar franskar veiðihundategundir.

 

FCI standardinn

Krafa um vinnupróf: Já

Tengiliður:

Enginn tengiliður

 

 

Tengdar síður:

www.fauveklubben.se

   
     

Útlit og geðslag.

Basset fauve eins og hann er gjarnan kallaður í daglegu tali er lávaxinn þéttbyggður hundur, líflegur og frár á fæti miðað við stærð. Hann er minnstur af Basset tegundunum, 32-38 cm. á herðakamb og vegur u.þ.b. 10-14 kg. Hann hefur þetta dæmigerða Basset útlit með síð eyru, stutta fætur og er lengri á búkinn en hæð hans er. Skottið er langt og þegar hundurinn hreyfir sig sveigist það yfir bakið. Feldurinn á Basset Fauve er mjög stífur og er snyrting ekki mikil né tímafrek, aðeins þarf að bursta yfir hann í daglegri umhirðu en halda þarf eyrnahárunum stuttum og er það gert með því að reyta þau annars lagið, að öðru leiti er hann reyttur ca. 3-4 sinnum á ári til þess að halda honum snyrtilegum, þá verður líka minna hárlos, sem að öllu jöfnu er óverulegt. Basset Fauve er mjög lífsglaður hundur með mikinn húmor og er því svolítill prakkari í sér, honum lyndir mjög vel við aðra hunda, hann er úrvals fjölskyldu hundur sem unir sér vel í leik við börn jafnt sem fullorðna og er ekki geltinn. Þrátt fyrir að vera að eðlisfari  rólyndur er hann mjög kraftmikill og harðgerður sem gerir hann einnig að úrvals veiðihundi í allskyns umhverfi.

 

Texti: Súsanna Poulsen

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann