Sporaleit

 

Sporaleit er skemmtileg þjálfun fyrir menn og hunda. Í spori reynir á að hundur geti unnið sjálfstætt í leit sinni og geti haldið einbeitingu í vinnu. Spor tekur á huga hundsins og hann getur orðið mjög þreyttur eftir sporið. Spor er því mjög henntug sem dempandi vinna fyrir öra hunda.

 

Útbúnaður

Á Íslandi er farið eftir sænsku reglunum um spor. Nauðsynlegur útbúnaður er sporabeisli og um fimmtán metra löng sporalína. Mikilvægt er að línan sé létt og flækist ekki auðveldlega. Best er ef línan þyngist sem minnst í bleytu, því blaut lína getur orðið mjög þung fyrir hund að draga. Verðlaun eru nauðsynleg, hvort sem um ræður nammi eða leikfang. Best er að nota sporabeislið aðeins í sporið en ekki neitt annað svo hundurinn viti fyrir víst hvað sé í vændum þegar sett er á hann sporabeislið. Spori er skipt upp í þrjá hluta eftir erfiði sporsins.

 

Spor 1 Spor 1

Í spori 1 er lengd sporsins 300 metrar og skal sporið vera tuttugu til fjörtíu mínútna gamalt. Í því eru tvær 90 gráðu vinkilbeygjur og lagðir eru tveir millihlutir ásamt einum endahlut sem er lengri en millihlutirnir. Stjórnandi hunds gengur með hundi að byrjunarstað og þegar allir eru tilbúnir gefur stjórnandinn hundi sínum skipun að spora, og skal þá hundur hefja sporaleitina frá upphafspunktinum. Stjórnandinn skal vera að lágmarki 10 metrum fyrir aftan hund allan tímann sem sporað er. Þegar hundur finnur millihlut á hann að markera hlutinn, þannig að ekki sé um að villast að þarna leynist einhver hlutur. Markeringar geta verið margskonar. Sumir hundar taka hlutinn í kjaftinn og skila til eigenda. Aðrir setjast eða leggjast hjá hlutnum þar til eigandinn kemur og gefur skipun um að halda áfram. Stjórnandi hundsins ræður því sjálfur hvernig hann þjálfar hund sinn í markeringu.

 

Spor 2 Spor 2

Spor 2 er talsvert erfiðara, þá er lengd sporsins 1000 metrar og klukkustundar gamalt. Í spori 2 eru fimm til sex 90 gráðu vinkilbeygjur og ein 30 gráðu beygja. Millihlutir skulu vera sex til sjö talsins auk eins endahluts. Spor 2 er frábrugðið spori 1 að því leiti að stjórnandi hundsins fær ekki að vita nákvæmlega hvar sporið byrjar, heldur er honum vísað á ramma sem er 30 x 30 metrar og þarf þá hundurinn að leita innan rammans af uppahafi sporsins.

 

Spor 3

Í spori 3 er 1500 metra löng slóð sem er eins og hálfs til  tveggja tíma gamalt. Í því eru fimm til átta vinklar og minnst tveir 30 gráðu vinklar. Millihlutir í spori 3 eru átta til tíu auk endahluts.

 

Stigagjöf

Ólíkt hlýðniprófi, þá byrjar hundur með fullt hús stiga í sporaprófi en fær mínus stig fyrir þær villur sem hann gerir í prófi. Mestu frádrættirnir í prófi verða þegar hundur merkir í slóðanum eða markerar ekki millihlut. Ef hundurinn finnur ekki endahlutinn lýkur hann ekki prófi. Villulaust próf gefur 100 stig, en það þarf að lágmarki 70 stig til þess að ljúka prófi.

 

 

Texti: Bergþóra Bachmann © 2008
Grein birtist í 3. tbl. Sáms 2007
Afritun óheimil án samþykkis greinahöfundar

   
Vefur:
Bergþóra Bachmann