Úrvalsdeild hefur verið lögð niður

Vinsamlegast athugið að Úrvalsdeild hefur verið lögð niður og nýjar smærri deildir stofnaðar út frá deildinni. Nýju deildirnar eru sem hér segir:

 

Pinscher-, Mastiff- og Fjallahundadeild Boxerdeild
Unnur Hagalín
Grefil- og sporhundadeild
Súsanna Poulsen
Spítzhundadeild

Berner Sennenhund

Bullmastiff

Dobermann

Enskur bulldog

Franskur Mastiff

German Pinscher

Great Dane

Leonberger

Miniature Pinscher

Nýfundnalandshundur

Pýreneahundur

Rottweiler

Shar-pei

St. bernharðshundur

Boxer

Dachshund

Basset fauve de Bretagne

Basset hound

Beagle

Dalmatíu hundur

Rhodesian ridgeback

Alaskan Malamute

Basenji

Chow Chow

Japanese spitz

Pomeranian

Samoyed

Siberian Husky

 

 

26. júní 2008

Aðalfundur Spísshunda-deildar HRFÍ

Aðalfundur spísshunda-deildar verður haldinn í Sólheimakoti  mánudaginn 30.júní 2008 kl:19:00. 

Framboð til stjórnar skulu berast fyrir 27.júní n.k. á netfangið tryggvi@innlit.is

-Undirbúningsnefndin

 

 

9. júní 2008

Aðalfundur boxer deildar HRFÍ

Aðalfundur boxer deildar verður haldinn í Sólheimakoti  mánudaginn 16.júní 2008 kl:18:00.  Framboð til stjórnar skulu berast fyrir 14.júní n.k. á netfangið boxer@boxer.is

-Undirbúningsnefndin

 

 

6. júní 2008

Aðalfundur Pinscher-Mastiff og Fjallahunda deildar HRFI.

Aðalfundur Pinscher -Mastiff og Fjallahunda deildar HRFI verður haldinn  á skrifstofu HRFI sunnudaginn 15.júní  2008 kl 20:00
Framboð til stjórnar skulu berast fyrir 11. júní n.k.  á netfangið  p.m.f.deild@gmail.com

-Undirbúningsnefndin

 

 

27. mars 2008

Kynning á skapgerðarmati

fimmtudaginn 3. apríl á skrifstofu HRFÍ kl. 19.30 − 21.30.

 

Dagskrá:

1. Hvað er skapgerðarmat?

2. Hvernig er hægt að nýta niðurstöðurnar?

3. Starfsfólk í skapgerðarmati.

4. Spurningar frá fundargestum.

 

Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja vita meira um skapgerðarmat og jafnvel vinna við það, en um þessar mundir er einmitt verið að leita að nýju starfsfólki.

 

Ætlast er til þess að hundar ákveðinna tegunda fari í skapgerðarmat áður en meistaratitill fæst viðurkenndur og eru eigendur þeirra sérstaklega hvattir til að mæta, ásamt fulltrúum viðkomandi deilda.

 

 

10. mars 2008

Póstlistar

Tengiliður Rottweiler bendir áhugasömu fólki að setja sig í samband við sig, óski þeir eftir að vera á póstlista fyrir það sem er á döfinni hjá tegundinni.

Áhugasamir setji sig í samband við Ragnhildi.

-Vefstjóri

 

 

6. mars 2008

Stórhundadagar í Garðheimum

Tengiliður fyrir rottweiler óskast eftir góðu fólki og góðum hundum til að kynna tegundina á stóhundadögum í garðheimum dagana 15-16 mars.

Áhugasamir setji sig í samband við Ragnhildi.

-Vefstjóri

 

 

24. febrúar 2008

Tilkynning

Hundaræktarfélag Íslands, Úrvalsdeild og tengiliður Dobermann hvetja áhugasama Dobermann eigendur, sem hafa áhuga á að starfa undir merkjum félagsins, til að bjóða fram krafta sína í undirbúningsnefnd að stofnun Dobermann deildar HRFÍ. Áhugasamir sendi tölvupóst með helstu upplýsingum um sjálfa sig á netfangið: stjorn@dobermann.name fyrir 1. mars 2008

-Úrvalsdeild

 

 

21. janúar 2008

Sýningaþjálfun Úrvalsdeildar

Sýningaþjálfun fyrir marsýningu 2008, HRFI verður eftirfarandi daga í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Laugardaginn 2. febrúar

Laugardaginn 9. febrúar

Sunnudaginn 17. febrúar

Laugardaginn 23. febrúar

 

Kl 16:00- 17:00.

Munið eftir nammi og skítapoka.

Kr: 500.-

Allir velkomnir !!

 

Skipting Úrvalsdeildar :

Úrvalsdeild verður skipt upp og lögð niður í þeirri mynd sem hún er í dag .

Skiptingin verður eftirfanandi :

Tegundarhópur 2 deild.

Tegundarhópur 5 deild.

Tegundarhópur 4/6 deild.

Úrvalsdeild óskar hér með eftir áhugasömum og ábyrgum aðilum til að vinna í 5 manna undirbúningsnefnd, fyrir hverja deild.

Umsóknafrestur berist fyrir 31 Janúar 2008 iseldar@simnet.is

 

Stjórnin

 

Tilkynning frá stjórn Úrvalsdeildar

Hvolpakaupendur ATH :

Stjórn Úrvalsdeildar vill að gefnu tilefni benda hvolpa kaupendum á að kynna sér reglur um kauparétt á hvolpum/hundum, sjá lög um almenna verslunarhætti.  Hvolpa kaupendum er bent á að hafa hvolpa kaupasamning HRFÍ til hliðsjónar þegar skrifað er undir sérsamninga við ræktendur.  Gæta skal þess að samningurinn sé ekki einhliða heldur gæti hagsmuna beggja aðila.  Skráður eigandi hunda í ættbók hjá HRFÍ á allan rétt til hundsins.  Lögum samkvæmt getur ræktandi ekki ráðið yfir hundi sem skráður er á annan aðila en ræktandann.

 

Stjórnin

 

 

16. október 2007

Ný reglugerð um skráningu í ættbók HRFÍ

VI. Reglur sérdeilda varðandi undaneldisdýr

TH-5 Siberian Husky

Augnvottorð: Ræktunardýr skulu augnskoðuð fyrir pörun. Augnvottorð má ekki vera eldra en 12 mánaða við pörun undaneldishunda. Greinist hundur með staðfesta arfgenga starblindu (cataract) eða arfgenga vaxandi sjónurýrnun (PRA) skal hann skráður í ræktunarbann.

 

 

12. september 2007

Nýtt á síðunni

Nú er kominn tengill fyrir got sem deildin getur mælt með. Til þess að geta auglýst á síðunni þarf að senda upplýsingar til stjórnar Úrvalsdeildar, til Guðnýjar Völu eða Unnar.

-Vefstjóri

 

 

12. september 2007

Rottweiler

Tengiliður fyrir Rottweiler óskar eftir að komast í samband við fólk sem
hefur áhuga á því að vera á bás Úrvalsdeildar og kynna Rottweiler á
næstu sýningu. Áhugasamir endilega senda e-mail á
icerottweiler@simnet.is eða hringja í síma 8651945 (eftir 17:00).

Ragnhildur Gísladóttir
Tengiliður fyrir Rottweiler

 

 

31. ágúst 2007

Sýningarþjálfun

Sýningarþjálfun á vegum Úrvalsdeildar og Schnauzerdeild, verður alla þriðjudaga í September kl: 20:00-21:00 , Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Muna eftir nammi og skítapoka . kr :500.

Allir velkomnir !!

-Guðný Vala

 

 

29. júlí 2007

Nýr tengiliður fyrir Shar-Pei

Súsanna Björnsson hefur tekið við að nýju sem tengiliður fyrir Shar-Pei eftir tímabundna dvöl erlendis.  Rannveig Guðbrandsdóttir sem starfaði sem tengiliður í fjarveru Súsönnu lætur nú af störfum.

Hægt er að ná í Súsönnu í síma: 422 7557 og 892 8650. Netfangið er. susanna@brekkukots.com

-Unnur Hagalín

 

 

18. júní 2007

Bókleg og verkleg sýningarþjálfun

Næstkomandi fimmtudag, 21.júní, ætlum við Siberian Husky eigendur sem höfum áhuga á sýningum að hittast klukkan 19:00 í Sólheimakoti.

Dagsskráin hefst með kynningu á PlusPuppy hundavörunum og verður hægt að kaupa þær á staðnum á tilboðsverði.
Einnig verður hægt að kaupa sýningartauma og keðjur.

Síðan verður haldin bókleg sýningarþjálfun.
Farið verður út í alla þætti sýningarinnar og meðal annars verður farið yfir hvað dómarinn er að leita eftir í hundinum (standartinn), hvernig sýningin fer fram, borðar og uppröðun og margt, margt fleira skemmtilegt.

Eftir bóklegu sýningarþjálfunina verður haldin ýtarleg verkleg sýningarþjálfun og verður þá farið vel út í smáatriðin fyrir sýninguna.

Leiðin að Sóheimakoti.
Keyrt er fram hjá Rauðavatni eins og maður sé á austurleið og beygt er til vinstri inn Nesjavallaafleggjarann (stendur Hafravatn á afleggjaranum).
Keyrt er áfram svolítinn spotta þangað til að þið sjáið skilti á hægri hönd sem stendur Sólheimakot á og verður blaðra á skiltinu og þar beygið þið inn Sólheimakotsafleggjarann og keyrið áfram malarveginn að rauðu timburhúsi.

Ég hvet alla til þess að mæta, vana sem óvana, það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt!

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að spyrja!


Anna Francesca Rósudóttir, Sími: 693-3960
Tengiliður fyrir Siberian Husky

 

 

8. maí 2007

Sýningarþjálfun Úrvalsdeildar

Sýningarþjálfun á vegum Úrvalsdeildar, verður alla þriðjudaga í júni kl: 20:00-21:30 , Reiðhöll Gusts í Kópavogi og

alla þriðjudaga í september kl: 20:00-21:30, Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Muna eftir nammi og skítapoka . kr :500. Allir velkomnir !!

-Guðný Vala

 

 

21. maí 2007

Husky ganga

Næstkomandi sunnudag, 27. maí ætlum við Siberian Husky eigendur að hittast við Skógræktarsvæðið við Grindarvíkurafleggjarann klukkan 13:00 stundvíslega.

Þaðan förum við í samfloti á bílum og á göngustað.

 

Til þess að fara að Skógræktarsvæðinu er keyrt inn á Grindarvíkurafleggjarann frá Reykjarnesbraut og mjög fljótlega á hægri hönd má sjá Skógræktarsvæðið.

Eftir gönguna förum við á veitingarstað sem heitir Salthúsið og er í Grindarvík.

 

Búum okkur undir skemmtilega göngu á Reykjarnesinu og vonandi sjá sem flestir sér fært um að koma og eiga með okkur glaðan dag!

 

Bestu kveðjur,

Anna Francesca

Tengiliður Siberian Husky

Sími: 693-3960 / E-mail: anna@husky.is

 

 

29. apríl 2007

Fréttir frá ársfundi.

Á síðasta ársfundi Úrvalsdeildar gengu Margrét Dögg Halldórsdóttir og Elín Lára Siguarðardóttir úr stjórn, en í þeirra stað komu þær Guðný Vala Tryggvadóttir og Rósa Björk Halldórsdóttir.

Stjórn Úrvalsdeildar lagði fram þá tillögu um að leggja niður deildina að ári, og að hver tegundahópur myndi stofna sína eigin deild, ef samstaða næst innan tegundahópsins. Tillagan var samþykkt með miklum meirihluta, einungis 2 voru á móti tillögunni.

Lesin var ársskýrsla stjórnar og tengiliða. Kosið var um nýja tengiliði og fengnir voru sjálfboðaliðar til að starfa í sýningarnefnd.

-Vefstjóri

 

 

13. apríl 2007

Ársfundur Úrvalsdeildar

Ársfundur Úrvalsdeildar HRFÍ verður haldinn í Sólheimakoti mánudaginn 23. apríl.  Fundurinn hefst klukkan 20:00

Venjuleg aðalfundarstörf og kosning til stjórnar. Tengiliðir flytja ársskýrslu tegunda.

 

Fólk er beðið að kynna sér kjörgengi og kosningarétt og vinsamlega senda línu á terrier@internet.is hafi það áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu.  Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir sem skráðir eru í deildina og skuldlausir við félagið 1. marz 2007.

-Stjórn Úrvalsdeildar HRFÍ

 

 

3. apríl 2007

Vinnupróf á vegum HRFÍ

Föstudaginn 27. apríl verður haldið Bronsmerkja próf á vegum HRFÍ.

Helgina 9. - 10. júní verður prófað í spori 1 og spori 2.

Skráning í prófin fer fram á skrifstofu HRFÍ.

Að þessu tilefni verður æfingarhópur Úrvalsdeildar framlengdur að bronsmerkja prófinu og verða því aukatímar 7. apríl, 14. apríl og 21. apríl kl. 13. Allir eru velkomnir.

-Vefstjóri

 

 

9. mars 2007

Æfingarhópur Úrvalsdeildar

Í framhaldi af tillögu, sem lögð var fram á opnum fundi Úrvalsdeildar í febrúar, um að endurvekja æfingarhóp Úrvalsdeildar var ákveðið að frá og með laugardeginum 10. mars verður starfræktur æfingarhópur ÚD. Búið er að bóka skemmuna við Sólheimakot næstu 4 laugardaga og ætlum við að hittast kl. 1 eftir hádegi. Enginn þjálfari eða stjórnandi verður á staðnum, heldur er ætlunin að allir hjálpist að, og geti æft að vinna með hundi sínum í umhverfi með öðrum hundum og eigendum.
Nú er kjörið fyrir þá sem hafa áhuga á hlýðni- og sporaprófum að koma og byrja að æfa saman fyrir prófin.
Allir eru velkomnir!

-Vefstjóri

 

 

27. febrúar 2007

Velkomin á heimasíðu Úrvalsdeildar

Velkomin á heimasíðu Úrvalsdeildar Hundaræktarfélags Íslands.  Síðan er enn í vinnslu og ef þið hafið eitthvað fram að færa vinsamlega setjið ykkur í samband við stjórnarmeðlimi. Vonandi hafið þið öll gagn og gaman af þessari heimasíðu.

- Stjórn Úrvalsdeildar.

 

 

Sýningarþjálfun

Sýningaþjálfun næstu þriðjudagskvöld kl. 21:00 í Gusti

Úrvalsdeild, Fuglahundadeild og Schnauzerdeild auglýsa sýningaþjáflun á þriðjudagskvöldum í reiðhöll Gusts í Álalind í Kópavogi.

Allir velkomnir.

Dagskrá verður sem hér segir:

Þriðjudaginn 13. febrúar kl. 21-22:00
Byrjendur: Farið yfir helstu atriði sem gott er að vita áður en farið er með hund á sýningu. Grunnur að sýningaþjálfun.
Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun með áherslu á sérkenni tegunda og einstaklinga. Farið yfir dóma sem hundar hafa fengið á fyrri sýningum.

Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 21–22:00
Hefðbundin sýningaþjálfun fyrir byrjendur og lengra komna.

Þriðjudaginn 27. febrúar kr. 21-22:00
Byrjendur: Snögg upprifjun á helstu atriðum um fyrirkomulag sýninga. Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.

Þátttökugjald er 500 kr. fyrir skiptið.

 

  • Munið sýningataum, kúkapoka og nammi eða dót sem hundurinn er hrifinn af.
  • Þeir sem vilja geta komið með dóma frá fyrri sýningum svo hægt sé að taka mið af þeim í þjálfuninni.
  • Gott er að viðra hundinn áður en komið er með hann í sýningaþjálfun.
   
Vefur:
Bergþóra Bachmann