|
|
Hlýðni BronsEinkunnargjöf er gefin frá 0-5, 5,5-6-6,5 o.s.frv. upp í 10. Lágmarks heildar stigafjöldi til að ná bronsprófinu er 90 stig. Hámarksstigafjöldi er 180 stig. 0 er fall.
1. Heilsa, skoða tennur Þjálfari stendur með hund sinn við hælstöðu. Dómari kemur og stillir sér ca 5 metrum frá, heilsar og spyr hvor þjálfari sé tilbúinn. Þá gengur hann til hunds og skoðar í honum tennurnar. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 10 stig.
2. Hælganga í taum Þjálfari stendur með hund sinn í taum við vinstri hönd. Þá er gengið hælgöngu eftir skipunum prófstjóra. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 20 stig
3. Hælganga án taums (eftir þessa æfingu er hundur ekkert meira í taum) Nú er taumurinn tekinn af hundi og hann stillir sér upp við hæl þjálfara. Við skipun prófstjóra er hælganga gengin án taumsins. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 40 stig
4. Sitja og liggja Þjálfari gengur 10 metra með hund, stoppar, skipar hundi að setjast og leggjast, og þjálfari gengur áfram 10 m og kemur svo til baka og lætur hund setjast upp. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 20 stig
5. Innkall Hundur er látinn setjast og þjálfari gengur 15 metra frá honum, og kallar svo hundinn. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 10 stig
6. Standa á ferð Þjálfari og hundur ganga hælgöngu. Þegar prófstjóri segir til, gefur þjálfari hundi sínum skipun um að stoppa en heldur sjálfur áfram göngu ca 10 metra, en hundur stendur kyrr á meðan. Þegar prófstjóri gefur merki fer þjálfari aftur til hundsins í upphafsstöðu. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 30 stig
7. Liggja kyrr í 2 mín Hundur er látinn leggjast niður og þjálfari gengur frá honum ca 15 metra og stendur fyrir framan hann í 2 mínútur. Að því loknu gengur hann aftur til hunds og lætur hundinn setjast við hæl. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 40 stig
8. Heildarmat. Dómari metur hversu vel hundur og stjórnandi hafa unnið saman í prófinu. Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 10 stig
Texti: Bergþóra Bachmann © 2006 |
|||||
| Vefur: Bergþóra Bachmann |
||||||