Um unga
sýnendur
________________________________________________________________________________
Ungir sýnendur
/ Junior Handling
- tekið saman af Auði Sif Sigurgeirsdóttur
–
Nokkrir mjög
góðir punktar sem vert er að hafa í huga þegar
keppt er í flokki ungra sýnenda og einnig þegar
hundur er sýndur almennt á hundasýningum.
Ungir
sýnendur
Ungir
sýnendur er fyrir krakka og unglinga á aldrinum
10-17 ára. Keppt er í ungum sýnendum á
hundasýningum um allan heim. Í ungum sýnendum
dæmir dómarinn hvernig hundur er sýndur, sem sagt,
hvernig honum er stillt upp og hvernig hann er hreyfður, hvernig
sambandið milli sýnanda og hunds er og síðast
en ekki síst hvort ungi sýnandinn veit hvernig á
að framfylgja Gullnu reglunni. Gullna reglan
er þannig að ALDREI má sýnandinn verða
á milli hunds og dómara því markmiðið
er það að sýna dómaranum hvernig hundurinn
ykkar lítur út en ekki þið sjálf. Hundurinn
er ALLTAF megin punkturinn.
Markmið flokks
ungra sýnenda er að æfa góða sýnendur
fyrir framtíðina, til að auðvelda dómurum
á sýningum starfið sitt og til að hundurinn
sýni sínar bestu hliðar í dómi.
Á sýningunni
spyr dómarinn oft einhverra spurninga sem sýnandinn
verður að gera svarað!
Líklegar
spurningar dómara í keppni:
-
Hve
gamall er hundurinn?
-
Hvaða
tegundahóp (grúbbu) tilheyrir hann?
-
Hvert er ræktunar/heimaland tegundarinnar?
-
Hversu
margar tennur eiga hundar að hafa?
Nauðsynlegt
er að afla sér eins mikilla upplýsinga og hægt
er um tegundina sem sýnd er því dómarinn
gæti spurt um hvað sem er. Gott er að lesa tegundabækur
og einnig er mjög gott að verða sér út
um bækur um unga sýnendur. Til dæmis: Junior Handling
(the young person´s guide to dog showing) eftir Jacqui Hurley.
Margar ungra sýnenda bækur fást á hundasýningunni
Crufts og einnig má finna þær á internetinu.
Undirbúningur
Undirbúningur
sýnandans og hundsins er mikilvægur. Gott er að hreyfa
hundinn og gera með honum eitthvað sem honum finnst skemmtilegt,
bara sýnandinn og hann! Best er að hreyfa hann í
taum til þess að hann verði vanur því að
ganga í taum þegar kemur að sýningunni. Með
þessu tengir hann sýnandann sem skemmtilegan og mikilvægan
og þar af leiðandi verður sambandið þeirrra
á milli betra. Mjög gott er að æfa hundinn að
standa með því að stilla honum upp fyrir framan
spegil en gæta þess að gera það ekki of
oft svo hann verði ekki leiður á því.
Gott er að æfa allar hreyfingarnar, s.s. fram og til baka,
þríhyrninginn og svo framvegis á stórum
fleti og nota jafnvel stein sem dómara eða fá einhvern
til að hjálpa sér. Nauðsynlegt er að hafa
þekkingu á öðrum hundategundum því
stundum láta dómarar sýnendur skipta um hunda
sín á milli og þá er nú gott að
vera búinn að öðlast smá reynslu með
aðrar tegundir og það er því mjög
mikilvægt að sjálfmennta sig að einhverju leyti.
Á sýningum
biður dómarinn ykkur alltaf um að hreyfa hundinn og
stilla honum upp!
Líklegar
skipanir dómara:
-
Fram og til baka
-
Þríhyrningur/öfugur
þríhyrningur
-
“L”
eða “T” (stundum öfugt “L og "T"”
en rétt “L” og "T" er til vinstri,
svo til hægri)
-
Áttan
“8” (mjög sjaldan, eiginlega aldrei en gott að
kunna hana samt sem áður)
-
Fara
hring
-
Fram
og til baka, “L” eða “T” tveir og tveir
saman. Þá er gott að vera búin að ákveða
að annar sýnandinn segir “SNÚ” þegar
best er að snúa. Þegar sýnendur fara tveir
og tveir saman verða þeir að vera samtaka og vera
á sama hraða.
-
Stilla hundinum upp
-
Sýna tennur/bit (þegar tennur eru sýndar er
tanngarðurinn sem snýr að dómara sýndur
fyrst, svo þann hinn sem er frá dómara og svo
framtennur. Þegar bit er sýnt er allir tanngarðurinn
sýndur í einu) Þegar tennur eru sýndar
þarf sýnandi að gæta þess að vera
ekki með figurna fyrir og að gera þetta eins snyrtilega
og hægt er. Ekki má halda fyrir nef hundsins. ATH!
Dómarinn á ekki að þurfa að beygja sig
í allar áttir til að sjá tennur hundsins.
Þess vegna verður sýnandinn að sýna
dómaranum tennurnar, þ.e. beina munni hundsins í
átt að dómaranum.
Klæðnaður
Stelpur:
Smart
að vera í:
-
Hnésíðu
pilsi og skyrtu, bol eða jakka við
-
Buxum
og skyrtu, bol eða jakka við
-
Hnésíðum kjól
-
Dragt
-
Vera alltaf í penum skóm með lágum botni!
- Gott er að
fatnaðurinn sé með vasa þar sem hægt er
að geyma nammi fyrir hundinn
-
Flaksandi eða þröngu pilsi eða kjól
-
Of
stuttu pilsi eða kjól
-
Jogging
galla eða gallabuxum
-
Óhreinum
fötum
-
Skóm með þykkum botni og ekki í háhæluðum
skóm. Skórnir virðast klunnalegir og þið
getið auk þess ekki hreyft ykkur eðlilega og þar
af leiðandi hreyfir hundurinn sig ekki eðlilega
-
Skítugum
íþróttaskóm
Hárið:
Verið með
eitthvað smart í hárinu, spennur, teygjur, hárband
eða hvað sem er sem hindrar að hárið sé
í augunum á ykkur. ALDREI hafa hárið flaksandi
því þá þurfið þið alltaf
að vera að ýta því frá augunum
sem dregur athygli ykkar frá hundinum og dómaranum.
Strákar:
Flott
að vera í:
Hárið:
Vel greitt og
snyrtilegt. Má ekki vera fyrir augunum.
MUNIÐ
AÐ FÖTIN SEM ÞIÐ SÝNIÐ Í MEGA
EKKI VERA Í SAMA LIT OG HUNDURINN SEM ÞIÐ SÝNIÐ!
T.D. SVARTUR HUNDUR OG SVÖRT JAKKAFÖT/DRAGT ER EKKI ÆSKILEGT
Atriði sem vert er að hafa í huga þegar komið
er inn í sýningarhring:
-
Að
tala aldrei við dómarann af fyrra bragði
-
Vera
alltaf kurteis við dómarann, sýningarritarann
og alla starfsmenn sýningarinnar
-
Vera kurteis við aðra sýnendur og sýna íþróttamannslega
framkomu, t.d. óska sigurvegurum
til hamingju o.s.frv.
-
Alltaf
að vera þolinmóð þótt hundurinn
geri ekki nákvæmlega það sem þið
viljið að hann geri. T.d. standi ekki kyrr eða hleypur
á stökki eða vill kannski ekki hlaupa. Aldrei má
skamma hund harkalega inni í hring!
-
Aldrei
að sýna nein merki um pirring eða óþolinmæði.
Þó að hundurinn geri ekki nákvæmlega
það sem þið viljið skulið þið
ALDREI gefast upp! Dómarinn metur það ef þið
gefist ekki upp!
-
Hælið
alltaf hundinum, klappið honum létt og eða gefið
honum smá bita. Gætið þess að gefa hundinum
ekki bita rétt áður en dómarinn kemur að
skoða hann. Þá gæti kjaftur hundsins verið
fullur af mat og það finnst dómaranum örugglega
ekkert sérstaklega geðslegt
-
Að
gera þríhyrninginn, “T”, “L”
og fram og til baka eins vel og beint og hægt er. Gætið
þess að hafa allar línur eins beinar og öll
horn eins skörp og hægt er. Lítið ávallt
upp til þess að sjá hvert þið stefnið
og munið að nýta hringinn sem best, þ.e. ef
þið eruð með stóra hunda sem þarfnast
mikillar hreyfingar. Munið að byrja alltaf fyrir framan
fætur dómarans og ath. hvert hann snýr
-
Gætið
þess alltaf að stoppa ca. 1 og hálfan metra frá
dómaranum þegar hundinum er stillt upp. Fjarlægðin
þarf að vera næg til þess að dómarinn
geti séð hundinn í heild sinni. Ef farið er
oft nálægt dómaranum sér hann aðeins
bak hundsins
-
Gætið
þess alltaf að fylgjast með dómaranum, hvar
hann er og hvað hann er að gera. Líta af og til á
dómarann til þess að sýna honum að þið
eruð meðvituð um hvað er að gerast. Aldrei horfa
niður í gólf!
-
Gætið
þess að vera ekki stíf í hreyfingum. Slakið
á því hundurinn ykkar er meðvitaður
um hvernig þið eruð og slakar því líka
á.
-
Taumurinn
má aldrei lafa úr lófanum. Hann verður
að vera allur inni í lófanum en ekki vafinn utan
um hendina
-
Horfið
á hundinn, talið við hann og verið skemmtileg
og glaðleg þegar þið hreyfið hann. Munið
að tala róandi við hundinn og segið honum e.t.v.
einhverja skemmtilega sögu!
-
Takið
ávallt tillit til hinna sýnendanna, gætið
þess að bilið sé ekki of stutt á milli
ykkar og gætið þess að hafa hundinn ykkar ávallt
í beinni línu við hundinn á undan
-
Stranglega bannað er að tala saman inni í hring nema
brýna nauðsyn beri til!
-
Ekki
vera svekkt ef ekki gengur allt sem skyldi. Þið gerið
bara betur næst!
-
Hafið
ávallt stjórn á hundinum ykkar og ekki láta
hann flaðra upp á dómarann eða ykkur
-
Látið
hundinn ávallt gera öll stykkin sín s.s. skíta
og pissa, áður en haldið er inn í sýningarhöllina
-
EF
HUNDURINN YKKAR GERIR STYKKIN SÍN INNI Í SÝNINGARHRING
VERIÐ ÁVALLT MEÐ POKA MEÐFERÐIS OG HREINSIÐ
UPP EFTIR HANN!
-
Brosið
og verið stolt af hundinum ykkar og hafið gaman að þessu!
-
Þið
getið alltaf notað reynslu ykkar úr ungum sýnendum
þegar þið byrjið að sýna hundinn
ykkar á sýningum
-
Verið
alltaf snyrtileg til fara.
-
MUNIÐ ÁVALLT GULLNU REGLUNA! ALDREI FARA Á MILLI
HUNDS OG DÓMARA! Verið alltaf tilbúin að skipta
um hönd þegar þörf krefur
-
Gerið
alltaf ykkar besta því ekki er hægt að gera
betur en það. Munið að þetta er til að
hafa gaman að númer 1, 2 og 3!
Hér
fyrir neðan eru útskýringarmyndir af þríhyrning,
hring, fram og til baka, L, T og fleiru
Ég vona
að þessi samantekt hjálpi ykkur að skilja hinar
ýmsu reglur ungra sýnenda og út á hvað
þessi keppni gengur.
Gangi ykkur sem
allra best í framtíðinni!
Kær
kveðja, Auður Sif.
Netfang: tibra@heimsnet.is
S: 698-7142
Wende nach innen = skipta um hönd
Show wende = sýnandi tekur snúning með hundinn í
vinstri hönd. Ath. hundurinn vísar ávallt að
dómara!

Þríhyrningur. Ath. dómarinn eru sporin

Hringur þegar dómarinn er staðsettur inni
í hringum

Fram og til baka. "L" Wende nach innen = skipt um
hönd
Sýnt
bæði með því að skipta um hönd
og ekki

"L" Wende nach innen = skipt um hönd

"T"