Reglur unglingadeildarinnar
________________________________________________________________________________

Starfsreglur Unglingadeildar HRFÍ

1. Starfssvið Unglingadeildar

1. Markmið deildarinnar er að stuðla að góðu starfi meðal unglinga og ungmenna innan HRFÍ.
2. Stjórn deildarinnar er skipuð 5 aðilum á aldrinum 12-25 ára. Kosning í stjórn fer fram á ársfundi deildarinnar. Kjörgengi hafa þeir sem skráðir hafa verið í unglingadeild HRFÍ í að minnsta kosti 2 ár.
3. Kosningarétt hafa þeir sem eru skráðir í unglingadeildina.
4. Aðalfund skal halda í mars ár hvert.
5. Stjórn deildarinnar getur skipað í starfsnefndir á hinum ýmsu sviðum deildarinnar.
6. Félagar í unglingadeild hafa þátttökurétt í því sem deildin býður upp á hverju sinni.
7. Skráning í unglingadeild fer fram á skrifstofu HRFÍ.

2. Sýningareglur ungra sýnenda

1. Keppni ungra sýnenda fer fram samkvæmt sýningareglum HRFÍ sem eru í gildi hverju sinni.
2. Komi upp misræmi milli starfsreglna unglingadeildar og sýningareglna gilda sýningareglur HRFÍ.
3. Efna má til keppni ungra sýnenda á ræktunarsýningum HRFÍ þar sem sýnendur sem verða 10 ára á sýningarárinu geta tekið þátt í yngri flokki ungra sýnenda og út 13. aldursárið, (ártalið gildir).
4. Í eldri flokki ungra sýnenda skulu sýnendur vera 14 ára á sýningarárinu og geta þeir keppt út 17. aldursárið, (ártalið gildir).
5. Ungum sýnanda er óheimilt að sýna tík sem er að lóða. Starfsfólki sýningar er heimilt að vísa ungum sýnanda frá keppni mæti hann með lóðatík.
6. Sá hundur sem ungmennið sýnir, verður að vera fullra 9 mánaða á sýningardaginn, ættbókarfærður hjá HRFÍ og uppfylla þær reglur sem HRFÍ setur um sýningu hunda á ræktunarsýningum HRFÍ.

3. Aðrar reglur

1. Við skráningu á sýningu skal skrá fullt nafn sýnanda, kennitölu, heimilisfang og síma.
2. Við skráningu á sýningu skal gefa upp ættbókarheiti hunds og ættbókarnúmer.
3. Farandbikar skal skila með áletrun. Skiladagur bikars fylgir síðasta skráningardegi á sýningu.
4. Lágmarksaldur ungra sýnenda sem mæta á æfingar hjá deildinni, eru börn sem verða 9 ára gömul á árinu.
5. Lágmarksaldur hunda sem taka þátt í ungum sýnendum er 9 mánaða.
6. Aldur stjórnanda hunds í hundafimi á vegum unglingadeildar er 10-25 ára.
7. Lágmarksaldur hunda sem taka þátt í hundafimi á vegum unglingadeildar er 2 ára.
8. Ef félagar í unglingadeild HRFÍ sýna eða taka þátt í starfi annarra hundaræktarfélaga sem ekki eru viðurkennd af HRFÍ, má vísa þeim úr deildinni.
9. Leiðbeinendur unglingadeildar hafa rétt til að meta meðferð ungs sýnanda á hundi og grípa til aðgerða gerist þess þörf.
10. Ill meðferð ungs sýnanda á hundi getur leitt til frávísunar úr deildinni.