Norðurlandakeppni ungra sýnenda
________________________________________________________________________________

Íslenska landsliðið í ungum sýnendum þær Ágústa Pétursdóttir, Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir, Rakel Ósk Þrastardóttir og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir undir liðsstjórn Auðar Sifjar Sigurgeirsdóttur héldu til Hamar í Noregi helgina 17.-19. nóvember 2006 til að taka þátt í Norðurlandakeppni ungra sýnenda sem fram fór í fyrsta sinn. Öll Norðurlöndin voru skráð til leiks með fjögurra manna lið. Dómari keppninnar var Hugo Quevedo frá Perú. Keppt var í liðakeppni og einstaklingskeppni. Ágústa sýndi Golden Retriever, Guðrún Dögg stríhærðan Vorsteh, Rakel Ósk Australian Shepard og Þorbjörg Ásta Shetland Sheepdog.

Íslenska liðið endaði í 2. sæti í keppninni sem má teljast hreint út sagt frábær árangur þar sem ungir sýnendur á Norðurlöndunum eru taldir með þeim bestu í heimi. Landslið Svíþjóðar sigraði í keppninni undir liðsstjórn Íslandsvinarins Cindy Pettersson en landslið Noregs endaði í 3. sæti. Ísland átti einnig fulltrúa í úrslitum einstaklingskeppninnar en Þorbjörg Ásta Leifsdóttir var valin í 3. sæti. Benedikte Nergaard frá Noregi sigraði einstaklingskeppnina en Louise Duwfa frá Svíþjóð varð í 2. sæti.

Stjórn unglingadeildarinnar óskar þessum frábæru ungu sýnendum innilega til hamingju með árangurinn! Þið voruð HRFÍ, unglingadeildinni, Íslandi og ykkur sjálfum til sóma!

Fyrir keppnina stóð unglingadeildin fyrir fjáröflun sem fól í sér sýningaþjálfun fyrir HRFÍ. Áætlað er að halda því áfram í framtíðinni og senda fulltrúa í Norðurlandakeppni ungra sýnenda. Þessi keppni verður haldin einu sinni á ári á Nordic winner sýningunni sem haldin er á einhverju Norðurlandanna.

Stjórn deildarinnar vill hér með þakka þeim sem hjálpuðu okkur að láta þennan draum rætast: Jónu Viðarsdóttir formanni HRFÍ ásamt stjórn HRFÍ, Dýrheimum ehf. fyrir ferðastyrk, Ástrósu Gunnarsdóttur fyrir fatastyrk, Gallabuxnabúðinni fyrir fatastyrk og öllum þeim sem nýttu sér sýningaþjálfun á vegum unglingadeildarinnar.

Þeir sem vilja styrkja keppendur í Norðurlandakeppni ungra sýnenda er bent á að setja sig í samband við Auði Sif, tibra@heimsnet.is