Fréttir
2007
________________________________________________________________________________
Frábær
árangur íslenskra ungra sýnenda í Norðurlandakeppni
ungra sýnenda
Landslið Íslands í ungum sýnendum
hélt til Stokkhólms laugardaginn 15. desember sl. eftir
að hafa verið veðurteppt á Íslandi á
þann 14. desember en þá var áætlunin
að fara utan. Til allrar hamingju skánaði veðrið
á laugardeginum og liðið mætti því
ekki of seint til Stokkhólms þar sem Norðurlandakeppni
ungra sýnenda var á sunnudeginum. Landslið Íslands
skipuðu þær Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir,
Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir, Rakel Ósk Þrastardóttir
og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir. Liðsstjóri
og þjálfari var Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Dómari Norðurlandakeppninnar
var Tatjana Urek frá Slóveníu og voru öll
Norðurlöndin mætt til leiks með liðin sín
sem hvert um sig skipaði fjóra liðsmenn. Íslensku
stúlkurnar fengu allar frábæra hunda til að
sýna, stóðu sig allar mjög vel og var árangur
liðsins frábær. Liðið endaði í 2.
sæti í liðakeppninni og Guðrún Dögg
Sveinbjörnsdóttir náði þeim frábæra
árangri að verða í 3. sæti í einstaklingskeppninni.
Í 1. sæti í liðakeppninni var lið Danmerkur
og í því þriðja lið Svíþjóðar.
Dönsk stúlka, Katrine Kryh varð í 1. sæti
í einstaklingskeppninni og önnur dönsk stúlka,
Mette Pålsson í 2. sæti.

Guðrún
Dögg Sveinbjörnsdóttir
Landslið Íslands: Rakel Ósk, Guðrún Dögg,
Þorbjörg Ásta og Hildur Sigrún.
________________________________________________________________________________
Sleep-over!
Sleep-over Unglingadeildarinnar verður haldið 26.-27. október
nk. í Sólheimakoti. Mæting í kotið er
kl. 18 og verður gist yfir nótt í Sólheimakoti.
Þátttökugjald er 1000 kr. og greiðist við
komuna í Sólheimakot ásamt leyfisbréfi undirrituðu
af foreldri. Áætlað er að dagskrá ljúki
laugardaginn 27. október um kl. 14.30. Skráning fer fram
á netfanginu tibra@heimsnet.is
og í skráningu þarf að koma fram nafn, símanúmer,
aldur og netfang. Einnig þarf að taka fram hvort viðkomandi
sé með leyfisbréf undir höndum eða ekki en
þá verður sent leyfisbréf á tölvutæku
formi á viðkomandi netfang.
Ath! Skráningu lýkur mánudaginn 22. október
nk.
Stjórn deildarinnar hvetur alla til að skrá sig enda
var síðasta sleep-over mjög vel heppnað og tilvalið
til að hrista þennan skemmtilega hóp saman! :)
________________________________________________________________________________
Hundafiminámskeið
Hin geysivinsælu hundafiminámskeið fara að hefjast
aftur. Skráning er á hundafimi@hotmail.com
________________________________________________________________________________
Úrslit
haustsýningar 2007
Haustsýning HRFÍ var haldin helgina 6.-7. október
sl. og voru yfir 40 ungir sýnendur skráðir til leiks
í yngri og eldri flokki.
Malgorzata Supronowicz frá Póllandi dæmdi báða
flokkana og voru úrslitin eftirfarandi:
Yngri flokkur
1. sæti Theodóra Róbertsdóttir
2. sæti Logi Þröstur Linnet
3. sæti Kolbrún Ýr Sturludóttir
4. sæti Bergey Flosadóttir
Eldri
flokkur
1. sæti Þorbjörg Ásta Leifsdóttir
2. sæti Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir
3. sæti Rán Magnúsdóttir
4. sæti Sara Sigurjónsdóttir
Eftir spennandi
keppni um stigahæsta unga sýnenda ársins í
yngri og eldri flokki þurfti að grípa til bráðabana.
Fyrsti bráðabaninn var í yngri flokki á milli
þeirra Theodóru Róbertsdóttur, Loga Þrastar
Linnet og Þórkötlu Lunddal Friðriksdóttur.
Eftir geysiharða og spennandi keppni bar Þórkatla sigur
úr býtum og er þess vegna stigahæsti ungi
sýnandi ársins í yngri flokki!
Annar bráðabaninn var um 4. sætið í keppninni
um stigahæsta unga sýnanda ársins í eldri
flokki en þrjár stúlkur þær Rán
Magnúsdóttir, Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir
og Karen Ösp Guðbjartsdóttir voru jafnar að stigum
fyrir bráðabanann. Sú sem sigraði og fékk
þar af leiðandi 4. sætið í landsliði
Íslands í ungum sýnendum var Hildur Sigrún
Guðbrandsdóttir en liðið mun keppa í Norðurlandakeppni
ungra sýnenda sem fram fer í Stokkhólmi í
desember nk.
Þriðji bráðabaninn var á milli Rakelar Óskar
Þrastardóttur og Þorbjargar Ástu Leifsdóttur
en þær voru jafnar að stigum í 1. sæti
um stigahæsta unga sýnanda ársins í eldri
flokki. Eftir spennandi keppni var það Rakel Ósk sem
sigraði og er þetta 3. árið í röð
sem Rakel endar sem stigahæsti ungi sýnandi ársins.
Rakel Ósk mun fara í mars á Crufts hundasýninguna
og verður þar fulltrúi Íslands í alþjóðlegri
keppni ungra sýnenda.
Alla bráðabanana dæmdi Tomasz Borkowski frá
Póllandi.
Landslið Íslands í ungum sýnendum 2007
skipa:
Rakel Ósk Þrastardóttir
Þorbjörg Ásta Leifsdóttir
Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir
Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir
Staða stigahæstu ungu sýnendanna eftir haustsýningu
HRFÍ 2007
Eldri
flokkur:
1. sæti Rakel Ósk Þrastardóttir 70 stig
1. sæti Þorbjörg Ásta Leifsdóttir með
70 stig
2. sæti Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir
40 stig
3. sæti Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir með
30 stig
3. sæti Karen Ösp Guðbjartsdóttir 30 stig
3. sæti Rán Magnúsdóttir með 30 stig
4. sæti Sunneva Svavarsdóttir 20 stig
5. sæti Sara Sigurjónsdóttir með 10 stig
Yngri
flokkur:
1. sæti Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir
70 stig
1. sæti Logi Þ. Hafsteinsson 70 stig
1. sæti Theodóra Róbertsdóttir 70 stig
2. sæti Jóna Dóra Hólmarsdóttir 20
stig
2. sæti Fríða Hansen 20 stig
2. sæti Bergey Flosaóttir 20 stig
2. sæti Kolbrún Ýr Sturludóttir 20 stig
3. sæti Hafdís María Pétursdóttir
10 stig
Stjórn Unglingadeildar óskar öllum verðlaunahöfum
hjartanlega til hamingju með frábæran árangur!
________________________________________________________________________________
Sýningarþjálfun
verður á vegum unglingadeildar eftirfarandi sunnudaga fyrir
haustsýningu HRFÍ:
Sunnudaginn
16. september
Sunnudaginn 23. september
Sunnudaginn 30. september
Dagskrá sýningarþjálfunar
er eftirfarandi:
Kl. 16-17 Ungir sýnendur
Kl. 17-18 Tegundahópar 7, 8 og 10
Kl. 18-19 Tegundahópar 1, 2, 5 og 6
Kl. 19-20 Tegundahópar 3, 4 og 9
ATHUGIÐ! Staðsetning
er reiðhöllin í Víðidal.
Skiptið kostar 500 kr.
og rennur allur ágóði í sjóð til
styrktar keppendum í Norðurlandakeppni ungra sýnenda
sem fram fer í Stokkhólmi í desember á þessu
ári.
Gott er að vera búinn
að láta hundinn gera þarfir sínar fyrir tímann
og munið að taka með sýningartaum, skítapoka
og verðlaunabita fyrir hundana ykkar. Einnig er gott að mæta
u.þ.b. 5 mínútum fyrir æfinguna svo hægt
sé að byrja á réttum tíma.
Hlökkum til
að sjá sem flesta!
________________________________________________________________________________
Staða stigahæstu
ungu sýnendanna eftir sumarsýningu HRFÍ 2007
Eldri flokkur:
1. sæti Rakel Ósk Þrastardóttir 70 stig
2. sæti Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir
40 stig
3.-4. sæti Þorbjörg Ásta Leifsdóttir
30 stig
3.-4. sæti Karen Ösp Guðbjartsdóttir 30 stig
5. sæti Sunneva Svavarsdóttir 20 stig
6. sæti Rán Magnúsdóttir 10 stig
Yngri flokkur:
1. sæti Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir
70 stig
2. sæti Logi Þ. Hafsteinsson 40 stig
3. sæti Theodóra Róbertsdóttir 30 stig
4.-5. sæti Jóna Dóra Hólmarsdóttir
20 stig
4.-5. sæti Fríða Hansen 20 stig
6.-7. sæti Bergey Flo óttir 10 stig
6.-7. sæti Hafdís María Pétursdóttir
10 stig
________________________________________________________________________________
Sumarsýning
HRFÍ var haldin helgina 23.-24. júní sl. Góð
þátttaka var í báðum flokkum ungra sýnenda.
Úrslit voru
eftirfarandi:
Eldri flokkur
1. sæti
Rakel Ósk Þrastardóttir með Boxer
2. sæti Þorbjörg Ásta Leifsdóttir með
Shetland sheepdog
3. sæti Sunneva Svavarsdóttir með Am.cocker spaniel
4. sæti Karen Ösp Guðbjartsdóttir með Afghan
hound
Yngri
flokkur
1. sæti
Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir með Am.cocker
spaniel
2. sæti Theodóra Róbertsdóttir með íslenskan
fjárhund
3. sæti Jóna Dóra Hólmarsdóttir með
Am.cocker spaniel
4. sæti Hafdís María Pétursdóttir
með Am.cocker spaniel
Stjórn unglingadeildar
óskar vinningshöfum hjartanlega til hamingju með frábæran
árangur!
Einnig vill stjórn þakka þeim sem sátu í
bás unglingadeildar á sýningunni.
________________________________________________________________________________
Hundafimimót
Innanfélagsmót Íþróttadeildar HRFÍ
fór fram 22. maí sl. Sigurvegari í unglingaflokki
var Gríma Björg Thorarensen með cavalier-tikina Andreu.
Stjórn Unglingadeildar óskar Grímu og Andreu hjartanlega
til hamingju með frábæran árangur!
________________________________________________________________________________
Breyttar
reglur varðandi unga sýnendur
Á fundi sýningarstjórnar Hundaræktarfélags
Íslands 18.04.07, var ákveðið að breyta fyrirkomulagi
ungra sýnenda varðandi skráningu hunda sem þeir
nota í keppnum ungra sýnenda.
Fyrirkomulagið
breytist úr neðangreindu;
Þátttakandi í ungum sýnendum skráir
sig með ákveðna tegund hunds en ekki með sérstakan
fulltrúa þeirrar tegundar. Hundurinn skal vera ættbókarfærður
í HRFÍ eða vera með viðurkennda ættbók
af HRFÍ.
Þátttakandi í ungum sýnendum skráir
sig til leiks án þess að tiltaka þá hundategund
sem hann mun spreyta sig með. Hundurinn sem sýnandi mætir
með skal vera ættbókarfærður í HRFÍ
eða vera með viðurkennda ættbók af HRFÍ.
Framkvæmdin
yrði þá á þann hátt að hver
ungur sýnandi fengi úthlutað númer eins og
áður en yrði svo raðað inn eftir þeirri
tegund hunds sem hann mætti með. Sýnendur væru
þá ekki endilega í númeraröð inni
í sýningarhring, röðin færi eins og áður
var sagt eftir stærð hunds og þeim hraða sem hann
ætti að sýna á.
Breytingin tekur
gildi nú þegar.
________________________________________________________________________________
Stjórn
Unglingadeildar HRFÍ starfsárið 2007-2008 skipa:
Auður Sif Sigurgeirsdóttir formaður
Ásta María Guðbergsdóttir
Jónína Sif Eyþórsdóttir
Sunna Rós Agnarsdóttir
Svava Arnórsdóttir
________________________________________________________________________________
Crufts 2007
Rakel
Ósk Þrastardóttir, stigahæsti ungi sýnandi
ársins 2006, keppti í alþjóðlegri keppni
ungra sýnenda á Crufts hundasýningunni þann
11. mars sl. 36 lönd voru skráð til leiks. Rakel sýndi
Australian Shepard með frábærum árangri og fékk
svo í skiptum Petit Basset Griffon Venden. Dómari keppninnar
var Bo Bengtson og valdi hann Rakeli í 12 sýnenda úrslit
sem er vægast sagt frábær árangur! Keppnina
sigraði stúlka frá Lettlandi með enskan pointer
2. sætið hreppti stúlka frá Bretlandi sem sýndi
Papillon og í 3. sæti var strákur frá Mexikó
með enskan pointer. Stjórn deildarinnar óskar Rakeli
hjartanlega til hamingju með frábæran árangur!
ljósm. Inga Björk Gunnarsdóttir
________________________________________________________________________________