Fréttir 2006

________________________________________________________________________________

Sýningarþjálfun
Vegna mikillar aðsóknar hefur stjórn Unglingadeildar HRFÍ ákveðið að bæta við einum klukkutíma í sýningarþjálfun næstu sunnudaga, þ.e. sunnudaginn 28. janúar og 4. febrúar.

28. janúar verða stórir hundar kl. 19-20 og litlir hundar kl. 20-21.

4. febrúar verða stórir hundar kl. 20-21 og litlir hundar kl. 21-22.

Staðsetning er reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Kær kveðja,

Auður Sif Sigurgeirsdóttir, formaður Unglingadeildar.
________________________________________________________________________________

CLICKER NÁMSKEIÐ

Monika Karlsdóttir mun halda clicker-námskeið fyrir Unglingadeild HRFÍ dagana 10.-11. febrúar nk.í Sólheimakoti.

Námskeiðið mun kosta 5000.- kr. fyrir þátttakendur með hund en 2500.- kr. fyrir þátttakendur án hunds, þ.e. áhorfendur. Monika hélt á dögunum námskeið fyrir hinn almenna félagsmann HRFÍ sem gekk framar öllum vonum.

Mary Ray, sú sem kemur til Íslands í mars og heldur námskeið í hundadansi (Heelwork to music), notar clicker-þjálfun á hundana sem hún þjálfar og mælir eindregið með clickernum. Það, að fara á námskeiðið hjá Moniku, er að sjálfsögðu frábær undirstaða fyrir námskeiðið í hundadansi.

Aðeins 8 þátttakendur með hunda komast að á námskeiðið en 12 þátttakendur án hunds. Þannig að núna gildir reglan, fyrstir koma fyrstir fá! Verð námskeiðsins er frábært!

Clicker fylgir með í verðinu en Monika er með til sölu svokölluð target-stick sem eru m.a. notuð í danskennsluna. Þau kosta 2000.- kr. sem greiðist á staðnum fyrir þá sem hafa áhuga.

Ég mæli með því að þeir sem hafi áhuga skrái sig sem allra allra fyrst á skrifstofu HRFÍ s: 588-5255 og verður greiðsla að fylgja með skráningu.

Vona að sem flestir nýti sér þetta, enda ekki oft sem slíkt tækifæri býðst!

Kær kveðja,
Auður Sif, form. Unglingadeildar HRFÍ.

________________________________________________________________________________

Hundafimi
Nú fer hundafimin hjá íþróttadeild og unglingadeild HRFÍ að byrja aftur og verður á sunnudögum í reiðhöll Gusts í Kópavogi kl. 13.00. Fyrsti tíminn er næsta sunnudag þ.e. 14. janúar. Krakkar og unglingar á aldrinum 10 (á 10. ári) til 17 ára (út 17. árið) eru velkomnir!

Hlökkum til að sjá ykkur öll
________________________________________________________________________________

Unglingadeildin óskar öllum hundeigendum gleðilegs árs!

Nú fara æfingar Unglingadeildarinnar fyrir unga sýnendur að byrja aftur.

Dagskráin er eftirfarandi:

Sunnudagur 14. janúar kl. 18-19
Sunnudagur 21. janúar kl. 18-19
Sunnudagur 28. janúar kl. 18-19
Sunnudagur 4. febrúar kl. 19-20 (ath! breytt tímasetning!)

Sýningaþjálfun fyrir hinn almenna sýnanda verður á sömu dögum og ungra sýnenda æfingar en verður frá kl. 19-20 sunnudagana 14.-28. janúar og kl. 20-21 sunnudaginn 4. febrúar. Sú þjálfun kostar 500 kr. skiptið og rennur ágóðinn í sjóð til styrktar keppendum í Norðurlandakeppni ungra sýnenda sem fram fer í Svíþjóð seinna á árinu.

Allar æfingarnar fara fram í reiðhöll Gusts í Kópavogi. Áætlað er að sunnudaginn 11. febrúar og sunnudagana fram að marssýningu HRFÍ munu æfingar verða í reiðhöllinni í Víðidal en það kemur betur í ljós síðar og verður sett inn tilkynning um leið og það er vitað.

Gott er að vera búinn að láta hundinn gera þarfir sínar fyrir tímann og munið að taka með sýningartaum, skítapoka og verðlaunabita fyrir hundana ykkar. Einnig er gott að mæta u.þ.b. 5 mínútum fyrir æfinguna svo hægt sé að byrja á réttum tíma.

Hlökkum til að sjá ykkur öll hress og kát!
________________________________________________________________________________

Meistaramót HRFÍ í hundafimi var haldið laugardaginn 25. nóvember sl. og var þátttaka góð. Keppnin var haldin í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum og skemmtu bæði hundar og krakkar sér konunglega.

Úrslit meistaramóts HRFÍ í hundafimi:

Flokkur 10-12 ára krakka
Sigurvegarar: Helga og Shih tzu tíkin Ronja

Flokkur 13-14 ára unglinga
Sigurvegari: Guðrún og Weimaraner tíkin Kókó

15-17 ára unglinga
Sigurvegari: Ástríður og blendingstíkin Fíasól

Við óskum sigurvegurunum hjartanlega til hamingju með frábæran árangur!
________________________________________________________________________________

Norðurlandakeppni ungra sýnenda – Nordic Junior Handling Winner
Íslenska landsliðið í ungum sýnendum þær Ágústa Pétursdóttir, Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir, Rakel Ósk Þrastardóttir og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir undir liðsstjórn Auðar Sifjar Sigurgeirsdóttur héldu til Hamar í Noregi helgina 17.-19. nóvember sl. til að taka þátt í Norðurlandakeppni ungra sýnenda sem fram fór í fyrsta sinn. Öll Norðurlöndin voru skráð til leiks með fjögurra manna lið. Dómari keppninnar var Hugo Quevedo frá Perú. Keppt var í liðakeppni og einstaklingskeppni. Ágústa sýndi Golden Retriever, Guðrún Dögg stríhærðan Vorsteh, Rakel Ósk Australian Shepard og Þorbjörg Ásta Shetland Sheepdog.

Íslenska liðið endaði í 2. sæti í keppninni sem má teljast hreint út sagt frábær árangur þar sem ungir sýnendur á Norðurlöndunum eru taldir með þeim bestu í heimi. Landslið Svíþjóðar sigraði í keppninni undir liðsstjórn Íslandsvinarins Cindy Pettersson en landslið Noregs endaði í 3. sæti. Ísland átti einnig fulltrúa í úrslitum einstaklingskeppninnar en Þorbjörg Ásta Leifsdóttir var valin í 3. sæti. Benedikte Nergaard frá Noregi sigraði einstaklingskeppnina en Louise Duwfa frá Svíþjóð varð í 2. sæti.

Stjórn unglingadeildarinnar óskar þessum frábæru ungu sýnendum innilega til hamingju með árangurinn! Þið voruð HRFÍ, unglingadeildinni, Íslandi og ykkur sjálfum til sóma!

________________________________________________________________________________

Deildarsýning Terrierdeildar HRFÍ 9. september 2006

Eldri flokkur, dómari Cindy Pettersson, Svíþjóð
1. sæti Þorbjörg Ásta Leifsdóttir, Labrador Retriever
2. sæti Rakel Ósk Þrastardóttir, Australian Shepard
3. sæti Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir, írskur setter
4. sæti Ágústa Pétursdóttir, Am.cocker spaniel

Yngri flokkur, dómari Cindy Pettersson, Svíþjóð
1. sæti Rósa María Sigurðardóttir Am.cocker spaniel
2. sæti Elín Rós Hauksdóttir, Weimaraner
3. sæti Sara Sigurjónsdóttir, Am.cocker spaniel
4. sæti Theodóra Róbertsdóttir, írskur setter

sýningin taldi ekki til stiga í keppninni um stigahæsta unga sýnanda ársins

_______________________________________________________________________________

Ný síða!!
Stjórn deildarinnar vill þakka Önju Björgu Kristinsdóttur kærlega fyrir að hanna þessa glæsilegu heimasíðu fyrir deildina!
________________________________________________________________________________

Crufts
Rakel Ósk Þrastardóttir, stigahæsti ungi sýnandi ársins 2005 í eldri flokki, keppti fyrir Íslands hönd í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda (International Junior Handling Final) ásamt um 30 þátttakendum frá jafnmörgum löndum. Rakel Ósk sýndi T íbet spaniel rakka og fékk í skiptum Fox terrier og stóð sig frábærlega með báðar tegundir. Hún endaði í 11 manna úrslitum í keppninni sem er vægast sagt frábær árangur! Stjórn deildarinnar óskar henni hjartanlega til hamingju!
Í 1. sæti í keppninni var stúlka frá Suður-Afríku með Australian Shepard, 2. sætið hlaut stúlka frá Kanada sem sýndi enskan pointer og í 3. sæti var strákur frá Írlandi sem sýndi Fox terrier.


Rakel með Tíbet spaniel
________________________________________________________________________________

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ var haldin 4.-5. mars sl. í reiðhöll Gusts í Víðidal. 26 ungir sýnendur voru skráðir til leiks í yngri flokki og 28 í þeim eldri. Ólöf Karítas Þrastardóttir, sem keppti í flokki ungra sýnenda á árum áður með frábærum árangri, dæmdi yngri flokkinn. Gunnel Holm frá Finnlandi dæmdi eldri flokk ungra sýnenda. Sjá úrslit!
________________________________________________________________________________

Meðlimir í stjórn deildarinnar sóttu námskeið sem ber heitið Að starfa í stjórn hjá Leiðtogaskóla UMFÍ á dögunum. Var það einróma álit stjórnarinnar að námskeiðið var mjög fróðlegt og skemmtilegt í alla staði.
________________________________________________________________________________

Fréttir 2005