________________________________________________________________________________

Sumarsýning HRFÍ 2005

Sumarsýning HRFÍ var haldin helgina 24.-26. júní sl. Keppni ungra sýnenda fór fram á föstudeginum og var það dómarinn Hans Åke sem dæmdi bæði yngri og eldri flokk.
Úrslit í eldri flokki voru:
1. sæti: Ágústa Pétursdóttir með am.cocker spaniel
2. sæti: Rakel Ósk Þrastardóttir með boxer
3. sæti: Jónína Sif Eyþórsdóttir með pug
4. sæti: Þorbjörg Ásta Leifsdóttir með írskan setter

Úrslit í yngri flokki voru:
1. sæti: Guðrún Hauksdóttir með weimaraner
2. sæti: Karen Ösp Guðbjartsdóttir með papillon
3. sæti: Elín Jónsdóttir með cavalier
4. sæti: Helga K. Magnúsdóttir með chihuahua

Unglingadeildin óskar vinningshöfum hjartanlega til hamingju! :o)
_______________________________________________________________________________

Gjöf!
Soffía og Jóhann í Dýrheimum gáfu Unglingadeildinni tvö sýningarborð nýlega til að nota á æfingum fyrir unga sýnendur. Stjórn deildarinnar þakkar þeim kærlega fyrir þessa þörfu og frábæru gjöf! :)

________________________________________________________________________________

Afmælissýning Cavalierdeildar HRFÍ

Afmælissýning Cavalierdeildar HRFÍ var haldin 7.-8. maí sl. og var Unglingadeildinni boðið að vera með ásamt hundum úr tegundahópi 9. Að sjálfsögðu þáði Unglingadeildin boðið með þökkum. Berglind Sigurgeirsdóttir dæmdi keppni ungra sýnenda en yngri og eldri flokkur voru sameinaðir að þessu sinni. Cavalierdeildin gaf bikar fyrir fyrsta sætið og Dýrabær (verslun-hundasnyrting) gaf öllum keppendum fallega tösku með hundanammi í. Unglingadeildin þakkar þeim kærlega fyrir :)

Úrslitin voru eftirfarandi:

1. sæti Þorbjörg Ásta Leifsdóttir með standard poodle 2. sæti Karen Ösp Guðbjartsdóttir með papillon 3. sæti Jónína Sif Eyþórsdóttir með pug 4. sæti Lilja Kristjánsdóttir með chihuahua
________________________________________________________________________________

Ársfundur Unglingadeildar var haldinn 10. apríl sl. Á fundinum var lesin ársskýrsla deildarinnar, stjórnarkjör fóru fram og nýjar reglur fyrir deildina voru kynntar. Stórn deildarinnar starfsárið 2005-2006 skipa:

Aðalstjórn; Auður Sif Sigurgeirsdóttir, Anna Francesca Bianchi og Helga Dögg Snorradóttir Varastjórn: Hulda Hrund Sigmundsdóttir og Svava Arnórsdóttir

________________________________________________________________________________

Mars sýningin
Mars-sýning HRFÍ fór fram 4.-6. mars sl. Hátt í 50 ungir sýnendur voru skráðir til leiks og stóðu sig með miklum sóma. Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir dæmdi yngri flokkinn en hún er “gamall” ungur sýnandi og var sigursæl á árum sínum sem ungur sýnandi. Hún fór tvisvar sinnum á Crufts hundasýninguna fyrir Íslands hönd að keppa í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda (International junior handling final). Í verðlaunasætum í yngri flokki voru:

1. sæti Guðrún Hauksdóttir með weimaraner
2. sæti Karen Ösp Guðbjartsdóttir með papillon
3. sæti Eydís A. Marteinsdóttir með íslenskan fjárhund
4. sæti Karen Ósk Ólafsdóttir með papillon

Þess má geta að þær Eydís og Karen Ósk voru að sýna í fyrsta skipti í flokki ungra sýnenda! Glæsilegur árangur hjá þeim.

Diane T. Anderson frá Bandaríkjunum dæmdi eldri flokk ungra sýnenda. Í verðlaunasætum voru:

1. sæti Eyrún Anna Tryggvadóttir með shih tzu
2. sæti Valdís Ösp Gísladóttir með cavalier
3. sæti Rakel Ósk Þrastardóttir með boxer
4. sæti Kjartan Þór Ingason með amerískan cocker spaniel

Þessi sýning var fyrsta keppni Kjartans Þórs sem ungs sýnanda og stóð hann sig frábærlega!
________________________________________________________________________________

Stigahæstu ungu sýnendur ársins 2004

Stigahæstu ungu sýnendur ársins voru heiðraðir á októbersýningunni.

Í eldri flokki var Anna Francesca stigahæsti ungi sýnandi ársins og fékk m.a. í verðlaun ferð á Crufts hundasýninguna sem er haldin í Birmingham í Englandi í mars ár hvert. Anna fer á sýninguna í boði Sláturfélags Suðurlands, umboðsaðila Pedigree á Íslandi. Hún mun keppa þar fyrir Íslands hönd í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda (International Junior Handling Final) þar sem að yfir 30 ungir sýnendur frá jafn mörgum löndum taka þátt. Anna hlaut einnig fallegan farand kristalgrip sem nokkrir dómarar frá Svíþjóð ákváðu að gefa stigahæsta unga sýnanda ársins á Íslandi í minningu Emilíu Sigursteinsdóttur (Millu okkar).

Í yngri flokki var Þorbjörg Ásta Leifsdóttir stigahæsti ungi sýnandi ársins og fékk m.a. í verðlaun ferðastyrk á erlenda hundasýningu frá Royal Canin, Dýrheimum.

Unglingadeildin óskar þeim hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur! :)

________________________________________________________________________________

Úrslit októbersýningarinnar

Keppt var í flokki ungra sýnenda á föstudaginn 1. október, bæði í yngri og eldri flokki.

Í yngri flokki bar Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir sigur úr býtum með Cavalier en í 2. sæti var Eyrún Anna Tryggvadóttir með Shih Tzu. Þorbjörg Ásta Leifsdóttir var svo í 3. sæti með írskan setter og Karen Ösp Guðbjartsdóttir í því 4. með Papillon. Dómarinn var frá Írlandi og heitir Trudy Walsh. Allir krakkarnir stóðu sig með miklum sóma og voru nokkrir að stíga sín fyrstu skref í ungum sýnendum.

Í eldri flokki var það Rakel Ósk Þrastardóttir sem var í 1. sæti en hún sýndi Boxer. Í 2. sæti var Anna Francesca með Siberian Husky og í 3. var Sunna Rós Agnarsdóttir með Cavalier. Í 4. sæti var Inger Eyjólfsdóttir með írskan setter. Dómari í eldri flokki var Carl-Gunnar Stafberg frá Svíþjóð
.________________________________________________________________________________

Keppni ungra sýnenda á afmælishátíð HRFÍ 4. september

Keppni ungra sýnenda í yngri og eldri flokki fór fram í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði 4. september sl. Dómari keppninnar var Rudi Stiphout frá Hollandi og reyndi hann vel á keppendur, enda vanur ungra sýnenda dómari og fyrrum ungur sýnandi.

Í yngri flokki voru 19 keppendur skráðir til leiks og var Þorbjörg Ásta Leifsdóttir í 1. sæti, Elín Lára Tryggvadóttir í 2. sæti, í 3. sæti var Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir og í því 4. var Hanna Rún Ingibergsdóttir. Þorbjörg Ásta sýndi írskan setter og fékk í skiptum Cavalier King Charles Spaniel. Elín Lára sýndi Cavalier og fékk í skiptum Maltese. Guðrún Dögg sýndi Cavalier og fékk í skiptum írskan setter og Hanna Rún sýndi Maltese og fékk í skiptum Cavalier. Allar þessar stúlkur stóðu sig frábærlega, bæði með sína eigin hunda og hundana sem þær fengu í skiptum.

Í eldri flokki voru 9 keppendur skráðir og var Anna Francesca í 1. sæti og í 2. sæti var Sunna Rós Agnarsdóttir. Í 3. sæti var Rakel Ósk Þrastardóttir og í 4. sæti var Anna Kristín Guðnadóttir. Anna Francesca sýndi Siberian Husky og fékk Cavalier sem skiptihund. Sunna Rós sýndi Cavalier og fékk Siberian Husky í skiptum. Rakel sýndi Boxer og fékk Cavalier í skiptum og Anna Kristín sýndi Cavalier og fékk Boxer í skiptum. Þær stóðu sig allar vel að vanda með báðar tegundirnar.
________________________________________________________________________________

Afmælisdagur HRFÍ 4. september 2004

Keppt verður í flokki ungra sýnenda, yngri og eldri flokki, á afmælisdegi HRFÍ sem verður 4. september nk. Dómari verður Rudi Stiphout frá Hollandi. Rudi er "gamall" ungur sýnandi og hefur m.a. keppt í ungum sýnendum á hundasýningunni Crufts tvisvar sinnum með frábærum árangri. Hann hefur alla sína "hundatíð" verið að sýna hunda af hinum ýmsu tegundum og fjölskylda hans hefur ræktað Border Terrier og eiga einnig Rottweiler hunda.

Ungir sýnendur athugið! Æfingar verða alla sunnudaga fram að sýningunni í reiðhöll Gusts kl. 18.00. Allir að mæta!!! Sjá dagskrá!
________________________________________________________________________________

Ungir sýnendur að sýna í úrslitum sýningar um besta hund sýningar á sumarsýningu HRFÍ

Þorgbjörg Ásta Leifsdóttir sýndi besta hund sýningar, ISCH Leiru Runu Gunn, á sumarsýningu HRFÍ. Eyrún Anna Tryggvadóttir var einnig í úrslitum um besta hund sýningar en hún sýndi Shih Tzu hundinn INT UCH ISCH Santosha Jumping Jack Flash sem varð í 4. sæti. Anna Francesca sýndi tvo hvolpa, einn af tegundinni Chihuahua, Anganóru Baldintátu sem var besti hvolpur sýningar í yngri flokki hvolpa og Siberian Husky hvolpinn Heimskauta Nætur Jörð sem var annar besti hvolpur sýningar í eldri flokki hvolpa. Við í Unglingadeildinni vorum að sjálfsögðu ekkert smá stolt að "eiga" þarna þrjá unga sýnendur í úrslitum sýningar!

________________________________________________________________________________

Ungur sýnandi að sýna í Danmörku
Karen Ösp Guðbjartsdóttir fór á dögunum til Danmerkur til þess að keppa í ungum sýnendum þar í landi. Hún fór á sýninguna í Helsingör og sýndi þar Papillon sem hún fékk lánaðan hjá ræktanda þar í landi. Keppt var í flokki ungra sýnenda báða dagana en Karen sýndi á laugardeginum. Alls voru 27 ungir sýnendur sem tóku þátt á aldrinum 10-17 ára. Karen fékk í skiptum amerískan cocker og stóð sig eins og hetja með báðar tegundirnar, Papillon hundinn og am.cockerinn. Dómari var Michael Kristensen en hann er "gamall" ungur sýnandi.

________________________________________________________________________________

Æskan og hesturinn
Helgina 13. og 14. mars fór fram stórglæsileg hestasýning sem haldin er árlega í reiðhöll Fáks í Víðidal. Tvær sýningar fóru fram hvorn daginn og þurfti að læsa húsinu og vegna mikillar aðsóknar gátu ekki allir sem vildu fylgst með öllum sýningunum. Á þessum sýningum eru sýnd ýmis atriði þar sem ungir knapar sýna hesta sína, ungir og efnilegir söngvarar og knapar syngja fyrir áhorfendur. Á þessari sýningu var krökkum úr Unglingadeild HRFÍ boðið að vera með sýningu í hundafimi.. Allir sem sýndu fyrir deildina stóðu sig mjög vel, bæði krakkar og hundar. Samtals voru krakkarnir átta en á hverri sýningu voru sex sem fóru í gegnum hundafimibrautina. Þeir sem voru svo duglegir að leggja vinnu í þetta og vera með voru: Ásta með Astro, Bjarney með Völku, Elín með Jörfa, Guðrún með Kókó, Guðrún Dögg með Brúnó, Hanna Rún með Kollu, Karen með Pippí og Sunna með Lenin. Þær stóðu sig allar frábærlega og eiga svo sannarlega hrós skilið. Stelpurnar æfðu mikið fyrir sýningarnar enda vildu allir gera sitt allra besta. Fram að sýningunni sóttu þær og hundarnir þeirra tíma einu sinni í viku undir leiðsögn Helgu Daggar og Svövu og hvetjum við áhugasama og unga hundaeigendur að slást í hópinn með okkur og skrá sig í Unglingadeildina.

________________________________________________________________________________

Crufts, alþjóðleg keppni ungra sýnenda 2004
Anna Francesca, stigahæsti ungi sýnandi ársins í eldri flokki 2003, fór í mars sl. á eina stærstu hundasýningu í heimi, Crufts, til þess að keppa í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda. 32 ungir sýnendur frá jafnmörgum löndum tóku þátt í keppninni sem er í boði Pedigree Masterfood. Allir keppendur fá vana sýningahunda til að sýna og fá að kynnast þeim og æfa sig með þá í aðeins eina klukkustund fyrir keppnina. Allir eru á sama báti og fá hunda sem þeir þekkja ekki og þess vegna skiptir miklu máli að ná góðu sambandi við hundinn áður en stóra stundin hefst. Keppendur eru kynntir eftir stafrófsröð landa þeirra og byrja á því að fara inn í hringinn og sýna hæfni sína með tegundina sem þeir völdu fyrir keppnina. Þegar það er afstaðið fara allir keppendur út úr hringnum og fá annan hund í skiptum. Eftir það sýna þeir hæfni sína með þann hund og að lokum fá þau aftur hundinn sem þau byrjuðu á að sýna og þá tekur dómarinn endanlega ákvörðun. Anna Francesca sýndi Siberian Husky hund og fékk í skiptum enskan pointer og stóð sig án efa frábærlega og var landi sínu til sóma. Sigurvegari keppninnar var stúlka frá Bandaríkjunum, Melanie Cotter sem sýndi enskan pointer og amerískan cocker spaniel í skiptum. Í 2. sæti var Jenna Cruthers frá Kanada sem einnig sýndi enskan pointer en fékk Airdale terrier í skiptum. 3. sætið hlaut Vibe Borregard Madsen frá Danmörku sem sýndi enskan springer spaniel og fékk írskan terrier í skiptum. Alls komust 8 lönd í úrslit en þau voru ásamt löndunum í verðlaunasætunum: Ástralía, Japan, Rússland, Svíþjóð og Bretland. Dómari keppninnar var Svend Lovenkjaer frá Danmörku.

________________________________________________________________________________

Sumarsýning HRFÍ
Sumarsýning HRFÍ var haldin 27., 28. og 29. júní sl. og fór keppni ungra sýnenda fram á föstudeginum bæði í yngri og eldri flokki. Dómari var Jenny Miller frá Englandi. Í yngri flokki voru 15 ungir sýnendur skráðir til leiks. Í 1. sæti var Eyrún Anna Tryggvadóttir sem sýndi Shih Tzu og í 2. sæti var Guðrún Sveinbjörnsdóttir með Cavalier King Charles Spaniel. Í 3. sæti var Guðrún Hauksdóttir með Weimaraner og í 4. sæti var Rakel Ósk Þrastardóttir með enskan cocker spaniel.
Í eldri flokki, þar sem 5 keppendur voru skráðir, sigraði Anna Francesca Bianci með Siberian Husky en í 2. sæti var Hulda Hrund Sigmundsdóttir með West highland white terrier. Í 3. sæti var Gunnur Hulda Stefánsdóttir með Cavalier King Charles Spaniel og í 4. sæti var Sunna Rós Agnarsdóttir sem einnig sýndi Cavalier.
Unglingadeildin óskar þeim öllum til hamingju!!

Haustsýning HRFÍ var haldin 3., 4. og 5. október sl. Keppni ungra sýnenda í yngri flokki fór fram á föstudeginum og voru 20 keppendur skráðir til leiks. Dómarinn var Monika Karlsdóttir. Í 1. sæti var Guðrún Hauksdóttir með Weimaraner, í 2. sæti var nafna hennar, Guðrún Sveinbjörnsdóttir með Cavalier og í 3. sæti var Karen Þorkelsdóttir með enskan cocker spaniel. 4. sætið hlaut Unnur Helga Briem sem sýndi Cavalier.
Eldri flokkinn dæmdi Bo Skalin frá Svíþjóð en í honum var hlutskörpust Anna Francesca Bianci með Siberian Husky. Í 2. sæti var Hulda Hrund Sigmundsdóttir með amerískan cocker spaniel en 3. sætið hlaut Anna Kristín Guðnadóttir með Cavalier. Í 4. sæti var Stefanía Kristjánsdóttir með Shih Tzu.

Unglingadeildin óskar verðlaunahöfum til hamingju með frábæran árangur!!
________________________________________________________________________________

Stigahæstu ungu sýnendur ársins 2003
Stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokki var að þessu sinni Anna Francesca Bianci og fer hún fyrir hönd Íslands á Crufts hundasýninguna í mars nk. til að keppa í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda. Við óskum henni hjartanlega til hamingju og vitum að hún á eftir að vera verðugur fulltrúi okkar í keppninni.
Stigahæsti ungi sýnandinn í yngri flokki var Guðrún Hauksdóttir og óskar deildin henni líka til hamingju með frábæran árangur.

________________________________________________________________________________

Marssýning 2003
Vorsýning HRFÍ var haldin 1-2. mars s.l. Fleiri ungir sýnendur í yngri flokki voru skráðir til leiks en í þeim eldri. Berglind Sigurgeirsdóttir fékk það hlutverk að dæma ungu sýnendurna bæði í yngri og eldri flokki. Var þetta í annað sinn sem að íslenskur dómari dæmir unga sýnendur hér á landi. Allir ungir sýnendur sýndu á laugardeginum og var byrjað á yngri flokki. Sigurvegari yngri flokksins var Elín Lára Tryggvadóttir sem sýndi Cavalier King Charles Spaniel hundinn Gæða Jörva. Í 2. sæti var Sunna Líf Hafþórsdóttir sem sýndi Íslenska fjárhundinn Grjósku Vask. 3. sætið hreppti Rakel Ósk Þrastardóttir með enska cocker spaniel hundinn Rushni Rhythm N´Blue og í 4. sæti var svo Inger Eyjólfsdóttir sem sýndi Írsku setter tíkina Eðal Ninju.

Í eldri flokki voru 4 sýnendur valdir úr öllum hópnum, þær Stefanía Kristjánsdóttir með Shih Tzu tíkina Ævintýra Þyrnirós er Besta Barn, Sunna rós Agnarsdóttir með Cavalier hundinn Tanmerak Lloyd Georg, Ólöf Karítas Þrastardóttir með ensku Cocker Spaniel tíkina Bjarkeyjar Dröfn og Hulda Hrund Sigmundsdóttir með West Highland White Terrier hundinn ISCH Ljósheima Jökul. Þær mættu svo aftur til leiks á sunnudeginum til að keppa um sætaröðun. 1. sætið hreppti Stefanía Kristjánsdóttir og 2. sætið Ólöf Karítas Þrastardóttir. Í 3. sæti var Hulda Hrund Sigmundsdóttir og í 4. sæti var Sunna Rós Agnarsdóttir. Allir sýnendurnir stóðu sig mjög vel og var greinilegt að langflestir sýnendurnir kunnu vel til verka þegar Berglind Sigurgeirdóttir lét reyna á hæfni þeirra á margvíslegan hátt. Stjórn Unglingaeildar óskar verðlaunahöfum hjartanlega til hamingju með frábæran árangur.
________________________________________________________________________________

Crufts, alþjóðleg keppni ungra sýnenda 2003

Helga Dögg Snorradóttir, stigahæsti ungi sýnandi ársins 2002, hélt þann 5. mars 2003 til Birmingham á Englandi til að fara á Crufts hundasýninguna ásamt stórum hópi Íslendinga. Crufts hófst fimmtudaginn 6.mars og var fram á sunnudaginn 9. mars. Helga keppti fyrir Íslands hönd í keppninni International Junior Handling Final 2003 (alþjóðleg keppni ungra sýnenda 2003). Hátt í 30 lönd voru mætt til leiks víðsvegar að úr heiminum og voru nokkur lönd að mæta til leiks í fyrsta skipti. Helga sýndi Cavalier King Charles Spaniel tík en eins og margir vita er það tegundin sem hún sýndi í ungum sýnendum hér á landi með vægast sagt frábærum árangri. Keppnin var þannig uppbyggð að fyrst komu allir sýnendurnir inn með tegundina sem þeir völdu. Þegar dómarinn var búinn að dæma alla fóru þeir útaf og fengu allt aðra tegund og fékk Helga Dögg Standard Poodle. Eftir að hafa sýnt hina tegundina fengu sýnendurnir aftur sinn upphaflega hund og þá valdi dómarinn 11 úr öllum hópnum. Keppnin endaði þannig að í 1. sæti var strákur frá Möltu sem sýndi Whippet, 2. sætið hreppti stúlka frá Svíþjóð sem sýndi German Shorthaired Pointer og í 3. sæti var stúlka frá Ástralíu sem sýndi enskan Pointer. Öll stóðu þau sig mjög vel og voru mjög vel að sigrinum komin. Helga Dögg stóð sig frábærlega í keppninni og var verðugur fulltrúi Íslands að mati Íslendinganna sem mættuu til að styðja hana og óskum við henni hjartanlega til hamingju með frábæran árangur!