Crufts
________________________________________________________________________________

Sláturfélag Suðurlands, umboðsaðili Pedigree á Íslandi, býður stigahæsta unga sýnanda ársins í eldri flokki og forráðamanni hans á Crufts hundasýninguna sem haldin er í Birmingham á Englandi. Þar tekur ungi sýnandinn þátt í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda eða International Junior Handling Final. Í þeirri keppni taka þátt yfir 30 ungir sýnendur frá jafnmörgum löndum. Fyrirkomulagið á keppninni er þannig að nokkrum mánuðum fyrir keppnina sækir ungi sýnandinn um ákveðna tegund sem hann langar að sýna í keppninni og aðra tegund til vara. Svo um 2 klst. fyrir keppnina sjálfa, sem fer fram á sunnudegi, fær ungi sýnandinn að hitta hundinn og mynda samband og æfa sig með hann fyrir stóru stundina.
Íslenskur fulltrúi hefur tekið þátt í þessari keppni frá árinu 1998.

Íslenskir þáttakendur á Crufts frá árinu 1998
________________________________________________________________________________

2007 - Rakel Ósk Þrastardóttir (12 manna úrslit)


ljósm. Inga Björk Gunnarsdóttir

2006 - Rakel Ósk Þrastardóttir (11 manna úrslit)

2005 - Anna Francesca Bianchi

2004 - Anna Francesca Bianchi

2003 - Helga Dögg Snorradóttir

2002 - Steinunn Þóra Sigurðardóttir (10 manna úrslit)

2001 - Steinunn Þóra Sigurðardóttir

2000 - Auður Sif Sigurgeirsdóttir (2. sæti)

1999 - Auður Sif Sigurgeirsdóttir (10 manna úrslit)

1998 - Auður Sif Sigurgeirsdóttir