Maltese

Maltese er
glæsilegur smáhundur og heillandi tegund með gólfsíðan hvítan silki feld. Hann
hentar vel sem gæludýr fjölskyldunnar og einnig fyrir þá sem langar að eiga hund
sem þarfnast mikillar feldhirðu og dúllerís, sem jafnframt er þá glæsilegur
sýningarhundur. Maltese er heilbrigður og glaðlegur smáhundur sem er jafnframt
mjög duglegur og finnst gaman í göngutúrum.
En hreyfing er samt ekkert endilega skilyrði fyrir hann. Hægt er að þjálfa þá í
hlýðni svo og í hundafimi. Tegundin er einstaklega ljúf í skapi miðað við margar
smáhundategundir og henta vel með börnum.
Maltese fara ekki úr hárum en þarfnast á móti mikillar feldhirðu. Feldurinn á að
vera glansandi með silkiáferð án þess að hafa undirull. Þarf að baða þá 1 sinni
í viku og greiða þeim á hverjum degi til að halda feldinum fallegum og
flókalausum. Á sýningarhundum er æskilegt að pakka inn feldinum til að ná úr
öllu sliti og svo að feldurinn sé sem glæsilegastur. Sumir eigendur kjósa
hinsvegar að klippa niður feldinn og er það oft gert með gæludýr og hunda sem
fara ekki á sýningar.
Annars eiga þeir að hafa síðan feld á öllum líkamanum og í andliti sítt skegg.
Hárin á höfðinu eru tekin í teygju til að þau lafi ekki niður í augu.
En ekkert jafnast samt á við maltese í sínum besta skrúða með fallega síða hvíta
silki skikkju.
Stærðin á Maltese er þægileg þeir eru um 20-25 cm á herða kamb og 3-4 kg. Því
hentar stærðin mörgum og þeir passa inn í lífsstíl allra. Hann er kátur og
alltaf tilbúinn að leika eða fara í smá göngu, svo eru þeir alltaf tíl í að kúra
bara hjá eigandanum og fjölskyldunni.
Maltese hundar á Íslandi eru ekki margir í dag, en væntanlega fjölgar þeim á
næstu árum, þar sem kominn er aftur mikill áhugi á þessari tegund.