
Fréttir Stjórn Tegundir Hvolpar Starfsemi Fundagerðir Aðrir tenglar Heilbrigði
|
|
Griffon Belge, Griffon Bruxellois og Petit Brabanqon
Griffon-hundar eru
upprunnir í Belgíu og njóta vaxandi vinsælda sem heimilishundar hvarvetna í
heiminum. Útlit
Ásjóna þeirra,
stór augu og stutt trýni setja sterkan svip á þessa hunda, sem hafa, fyrir
vikið, nánast mannlegan svip. Fullþroskaður griffon er kröftugur að sjá, þótt hann sé smávaxinn, um 3,5 – 6 kg. að þyngd. Lunderni Griffon er kátur og vökull hundur sem hænist mjög að eiganda sínum. Hann þolir illa einveru og honum lyndir vel við önnur dýr, enda er hann friðarsinni frá náttúrunnar hendi. Griffon geltir gjarnan og lætur vita þegar gesti ber að garði. Umhirða Snögghærðir hundar þurfa litla sem enga feldhirðu, en stríhærða hunda þarf að snyrta reglulega til að feldgerðin haldi sér. Hárlos er ekki mikið. Hreyfing Griffon er dugmikill göngugarpur sem hefur gaman af því að hlaupa um holt og hæðir, en þess á milli nægir honum að hlaupa um í rúmgóðum garði. Sýningar Hundasýningar HRFÍ eru mikilvægur liður í hundarækt. Allir griffon-hundar sem sýndir hafa verið hér á landi hafa fengið 1. einkunn og eru tveir þeirra þegar orðnir íslenskir sýningameistarar.
|
|