Fréttir      Stjórn     Tegundir      Hvolpar      Starfsemi      Fundagerðir      Aðrir tenglar      Heilbrigði

Deildarsýning myndir:

Sýningarþjálfun: Myndir

Smáhundadagar í Garðheimum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Sýningaþjálfun fyrir sumarsýningu 2011
 
Í versluninni Gæludýr.is á Korputorgi verður sýningaþjálfun Smáhundadeildar sem hér segir:
 
Fimmtudaginn 26. maí  kl. 1 8 - 19.
Miðvikudaginn 1. júní kl. 18.30 - 20 (athugið lengri tíma).
 
Þátttökugjald er 500 krónur og eru allir HRFÍ-hundar velkomnir.
 

STEFNUMÓTADAGUR

Fundur fyrir áhugasama félagsmenn, sem hafa áhgua á að koma hugmyndum sínum á framfæri.

 

Papillon- og phalénedeild heldur sérsýningu 26. mars næstkomandi.

Dómari  er Mikael Nilsson frá Svíþjóð.

Skráning á sýninguna var dræmari en við var búist og hefur stjórn HRFÍ því veitt undanþágu til að hægt sé að skrá hunda af eftirtöldum tegundum á sýninguna:
Bichon Frise
Havanese
Coton de Tuléar
Maltese.

 
Vinsamlegast athugið að skráningafrestur er óvenju stuttur og rennur út föstuaginn 18. mars 2011. Árangur hunda á þessari sýningu telur ekki til stiga hjá Smáhundadeild.

 

 
Vonast stjórn Smáhundadeildar til að þessi möguleiki mælist vel fyrir hjá eigendum hunda af þessum tegundum.
 
 

Sýningaþjálfun smáhundadeildar:

Sýningaþjálfun fyrir febrúarsýninguna 2011:


 
Smáhundadeild býður að venju upp á sýningaþjálfun fyrir febrúarsýningu HRFÍ
Sýningaþjálfunin er að þessu sinni í sal inn af versluninni Gæludýr.is á Korputorgi, þar sem gólfið er steypt og munu áreiðanlega margir fagna því að þurfa ekki að vera á moldargólfi.

 

Þátttakendum er skipt í litla hópa, svo tíminn nýtist sem best og er ekki ætlast til að hver þátttakandi komi með fleiri en einn hund.
Sýningaþjálfun er sem hér segir:
Fimmtudaginn 17. febrúar kl. 20.00
Þriðjudaginn 22. febrúar kl. 18.00
Verslunin verður opin þessi kvöld og í boði verða spennandi tilboð fyrir hundaeigendur.

 

Þátttökugjald: 500 kr.


 
Farið verður yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar hundur er sýndur og er þátttakendum skipt í litla hópa þannig að leiðsögnin verði sem persóulegust.

 
Vinsamlegast komið með sýningataum fyrir hundinn og leikfang eða góðgæti sem hundurinn kann að meta og hægt er að nota til að verðlauna hann.

 
Þeir sem vilja, geta  komið með fyrri dóma hunda sinna af sýningum, þannig a hægt sé að hafa þá til hliðsjónar í sýningaþjálfuninni.

 
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn smáhundadeildar HRFÍ.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Deildarsýning myndir:

Sýningarþjálfun: Myndir

 Smáhundadagar í Garðheimum