
Fréttir Stjórn Tegundir Hvolpar Starfsemi Fundagerðir Aðrir tenglar Heilbrigði
|
|
Chinese crested
Saga tegundar... Það eru til nokkrar hárlausar tegundir í heiminum, t.d. Inca Hairless dog, Mexican Hairless, Peruvian Inca Orchid og svo auðvitað Chinese Crested. En talið er að allar eigi þær rætur sínar að rekja til Afríku... Saga Faxhundsins
hefur verið rakin allt til 15. aldar. Afríkubúar notuðu Faxhundinn, sem að þeir
nefndu African hairless terrier, til varma í rúmum sínum. Tegundin... Kínverski
Faxhundurinner þokkafullur og glæsilegur smáhundur. Faxhundurinn er
bæði til, hárlaus og í fullum feld. Bæði afbrigðin fæðast oft í sama gotinu.
Hárlausi hundurinn hefur hár á höfði, fótum og skotti. Sá loðni hefur , mjúkan,
sléttan, millisíðan feld. Bæði afbrigðin eru leyfileg í öllum litasamsetningum.
Faxhundurinn er
mjög hreinlegur hundur og fer lítið úr hárum. Síðhærða hundinn þarf að greiða
reglulega eigi feldurinn ekki að verða mattur og flæktur. Hárlausa hundinn þarf
einnig að baða reglulega og stundum hafa þeir gott af smá rakakremi. Allt fer
þetta þó eftir árstíð og lífsstíl. Hann er frábær
félagi. ljúfur, líflegur, leikglaður og mikill knúsari. Faxhundurinn er gáfaður
og fylgist vel með því sem er að gerast í kringum hann. Hann er mjög náinn og
trúr eiganda sínum. Faxhundurinn er mjög lipur og hafa þeir náð góðum árangri í
t.d. hundafimi. Hann er ekki geltinn og hentar vel til borgarlífs. En þarfnast
þó, og hefur gaman af að fara í göngutúra og frjáls hlaup. Hæð: um 30cm (á herðarkamb), Þyngd: um 5,5kg Skemmtilegur alþjóðlegur gagnagrunnur um tegundina:
|
|