Chinese Crested
Kínverskur
Faxhundur
Saga tegundar...
Það eru til nokkrar hárlausar tegundir í heiminum, t.d. Inca Hairless dog, Mexican Hairless, Peruvian Inca Orchid og svo auðvitað Chinese Crested. En talið er að allar eigi þær rætur sínar að rekja til Afríku...
Saga Faxhundsins
hefur verið rakin allt til 15. aldar. Afríkubúar notuðu Faxhundinn, sem að þeir
nefndu African hairless terrier, til varma í rúmum sínum.
Er kínversk
flutningaskip lögðust að við strendur Afríku komst Faxhundurinn í hendur
kínverja, hundurinn þótti mikill kostur og góður rottuveiðari. Það voru síðan
kínverjar sem að gáfu þessum hundum nafnið sem að þeir bera í dag, Chinese
Crested.
Kínverskir
könnuðir mátu Faxhundinn mikils og höfðu mikil vöruskipti með þá á ferðum sínum
um heiminn og eiga því stóran þátt í að “dreifa” Faxhundinum um heim allan.
Skemmtikrafturinn Gypsy Rose Lee átti, og ræktaði Faxhunda. Hún notaði þá í skemmtiatriði sín og á heiðurinn af því að kynna Breta fyrir tegundinni.
Tegundin...
Kínverski Faxhundurinner þokkafullur og glæsilegur smáhundur.
Faxhundurinn er
bæði til, hárlaus og í fullum feld. Bæði afbrigðin fæðast oft í sama gotinu.
Hárlausi hundurinn hefur hár á höfði, fótum og skotti. Sá loðni hefur , mjúkan,
sléttan, millisíðan feld. Bæði afbrigðin eru leyfileg í öllum litasamsetningum.
Faxhundurinn er
mjög hreinlegur hundur og fer lítið úr hárum. Síðhærða hundinn þarf að greiða
reglulega eigi feldurinn ekki að verða mattur og flæktur. Hárlausa hundinn þarf
einnig að baða reglulega og stundum hafa þeir gott af smá rakakremi. Allt fer
þetta þó eftir árstíð og lífsstíl.
Faxhundurinn er vinsælastur af hárlausu tegundunum en telst þó enn til sjaldgæfra tegunda. Hann er einnig eina hárausa tegundin sem að hefur síðhært afbrigði, en aðrar hafa snöggt afbrigði.
Hann er frábær
félagi. ljúfur, líflegur, leikglaður og mikill knúsari. Faxhundurinn er gáfaður
og fylgist vel með því sem er að gerast í kringum hann. Hann er mjög náinn og
trúr eiganda sínum. Faxhundurinn er mjög lipur og hafa þeir náð góðum árangri í
t.d. hundafimi. Hann er ekki geltinn og hentar vel til borgarlífs. En þarfnast
þó, og hefur gaman af að fara í göngutúra og frjáls hlaup.
Hæð: um 30cm (á herðarkamb)
Þyngd: um 5,5kg.
Allar frekari upplýsingar gefur, Kristjana M. Svansdóttir S: 8571580