Fréttir      Stjórn     Tegundir      Hvolpar      Starfsemi      Fundagerðir      Aðrir tenglar      Heilbrigði

  FRÉTTIR  

SÝNINGARÞJÁLFUN

TVÖFÖLD DEILDARSÝNING 2011

ÁRSFUNDUR SMÁHUNDADEILDAR

HEILSUFARSKRÖFUR FYRIR PÖRUN

LÁGMARKSALDUR TÍKA VIÐ FYRSTU PÖRUN

 

 

 
Sýningaþjálfun fyrir sumarsýningu 2011

 

 
Í versluninni Gæludýr.is á Korputorgi verður sýningaþjálfun Smáhundadeildar sem hér segir:
 
Fimmtudaginn 26. maí  kl. 1 8 - 19.
Miðvikudaginn 1. júní kl. 18.30 - 20 (athugið lengri tíma).
 
Þátttökugjald er 500 krónur og eru allir HRFÍ-hundar velkomnir.

 

 

 

 

 

 

 

SÝNINGARÞJÁLFUN

TVÖFÖLD DEILDARSÝNING 2011

ÁRSFUNDUR SMÁHUNDADEILDAR

HEILSUFARSKRÖFUR FYRIR PÖRUN

LÁGMARKSALDUR TÍKA VIÐ FYRSTU PÖRUN

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

TVÖFÖLD DEILDARSÝNING!!

Smáhundadeild, Terrierdeild, Mjóhundadeild, Yorkshire terrierdeild og Shih Tzu deild slá saman í deildarsýningu, dagana 16. og 17. apríl næstkomandi!!

Tvær aðskildar sýningar og því frábært tækifæri fyrir hundana okkar að ná tveimur ísl. meistarastigum á einni helgi.

Sjá nánari upplýsingar og tilkynningu hérna: 

 

Framboð til stjórnar HRFÍ

Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Formann skal kjósa sérstaklega

 til tveggja ára í senn. Árlega skal kjósa sameiginlega tvo meðstjórnendur til tveggja ára.

Árlega skal kjósa einn varamann til tveggja ára. Endurkjör er leyfilegt.

Framboðsfrestur til stjórnarkjörs rennur út 30. mars ár hvert.

Í ár er kosið um formann, tvo meðstjórnendur til tveggja ára og einn varamann til tveggja ára.
 

Framboðum á að skila á skrifstofu HRFÍ.
 

STEFNUMÓTADAGUR

Fundur fyrir áhugasama félagsmenn, sem hafa áhgua á að koma hugmyndum sínum á framfæri.

Papillon- og phalénedeild heldur sérsýningu 26. mars næstkomandi.

Dómari  er Mikael Nilsson frá Svíþjóð.

Skráning á sýninguna var dræmari en við var búist og hefur stjórn HRFÍ því veitt undanþágu til að hægt sé að skrá hunda af eftirtöldum tegundum á sýninguna:
Bichon Frise
Havanese
Coton de Tuléar
Maltese.

 
Vinsamlegast athugið að skráningafrestur er óvenju stuttur og rennur út föstuaginn 18. mars 2011. Árangur hunda á þessari sýningu telur ekki til stiga hjá Smáhundadeild.

 

 
Vonast stjórn Smáhundadeildar til að þessi möguleiki mælist vel fyrir hjá eigendum hunda af þessum tegundum.
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 
 
 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ársfundur smáhundadeildar

Smáhundadeild heldur ársfund sinn fimmtudaginn 10. mars 2011 í Gamla Vínhúsinu (A. Hansen) í Hafnarfirði og hefst fundurinn kl. 20.

Stjórn deildarinnar hvetur smáhundaeigendur til að mæta á fundinn og taka þátt í mótun deildarstarfsins.

Dagskrá:

Skýrsla stjórnar

Kosning í stjórn

Önnur mál

Undir liðnum Önnur mál er hugmyndin að ræða m.a. um tengiliði og starfsemi  deildarinnar á nýju ári.

Að þessu sinni ganga úr stjórn Sigríður Margrét Jónsdóttir og Þórdís Björg Björgvinsdóttir. Sigríður Margrét gefur kost á sér til áframhaldandi starfa, en það gerir Þórdís Björg ekki.

Í reglum HRFÍ segir meðal annars að þeir sem hafa verið félagsmenn í tvö ár eða lengur geti gefið kost á sér í stjórn ræktunardeildar. Hinsvegar eru fordæmi fyrir því að undanþágar sé veitt  frá þessari reglu.

Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild, eru skráðir í deildina og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn.

 

Í safndeild, eins og smáhundadeild, er ákjósanlegt að þeir sem sitja í stjórn deildarinnar sé fulltrúar mismunandi hundakynja. Þeir verða að starfa af sömu ábyrgð fyrir öll hundakyn sem tilheyra deildinni.

 

Kaffi verður í boði deildarinnar og veitingar til sölu á staðnum.

 

Stjórn Smáhundadeildar HRFÍ

 

 
 
 
 
 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 
 
 
 
 
Augnskoðun í mars 2011

 

Finn Boserup og Susanne Kaarsholm frá Danmörku augnskoða hunda í Sólheimakoti og á Akureyri 25. - 26. mars.  Hægt er að panta tíma á skrifstofu HRFÍ til og með 18. mars 2011.  Augnskoðun kostar 5.720 krónur fyrir hund. Eingöngu félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald sitt eiga rétt á að koma með hunda sína í augnskoðun.  
 
Eru eigendur smáhunda hvattir til að kynna sér reglur um augnskoðanir ræktunardýra. Þeir sem eru í vafa geta sent stjórn deildarinnar fyrirspurn á netfangið smahundadeild@gmail.com
 
Föstudaginn 25. mars:
Susanne Kaarsholm augnskoðar hunda í Sólheimakoti frá kl. 9 og Finn Boserup augnskoðar hunda hjá Dýralæknaþjónustu Eyjafjarðar, Dýrey, á Akureyri frá kl. 9.45.  
 
Laugardaginn 26. mars:
Báðir dýralæknarnir augnskoða hunda í Sólheimakoti frá kl. 9.

 

   
   
 

Fyrirlestur um augnsjúkdóma 

 

Dönsku dýralæknarnir Susanne Kaarsholm og Finn Boserup, sem eru sérfræðingar í arfgengum augnsjúkdómum hunda, halda fyrirlestur fyrir félagsmenn HRFÍ sunnudaginn 27. mars og hefst hann kl. 17. Staðsetning verður auglýst síðar.

Dýralæknarnir munu m.a. fjalla um uppbyggingu augans (eye anatomy), PRA og arfgengi.  Eftir fyrirlesturinn svara þau spurningum fundargesta. 

Þeir sem vilja, geta sent þeim fyrirspurnir á ensku eða dönsku í gegnum netfangið vala@hrfi.is

Til að hægt sé að gera ráðstafanir varðandi húsnæði, eru menn beðnir um að tilkynna mætingu á fyrirlesturinn á netfangið vala@hrfi.is

Stjórn smáhundadeildar hvetur ræktendur og eigendur smáhunda til að nýta þetta frábæra tækifæri til að auka þekkingu á augnheilbrigði og augnsjúkdómum hunda!

 

   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 

Febrúarsýning HRFÍ 2011

Sjá sýningarþjálfun hér.

 


Alþjóðleg hundasýning HRFÍ verður haldin 26. – 27. febrúar 2011 og er skráning hafin.

 
Vill stjórn smáhundadeildar hvetja fólk til að skrá hunda sína tímanlega á sýninguna og vekur

jafnframt athygli á eftirfarandi:

Vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum er ekki hægt að taka við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár. Verið er að útbúa skráningarvef sem stenst kröfur kreditkortafyrirtækjanna en hann verður því miður ekki tilbúinn fyrir næstu sýningu.


Félagið hefur því ákveðið að taka á móti skráningu í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti. Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. 

Vegna ofangreindra breytinga verður svarað í síma á skrifstofu HRFÍ frá kl. 10 til kl. 17 alla virka daga fram að síðasta skráningardegi. Síðasta skráningardag, föstudaginn 28. janúar verður svarað í síma frá kl. 9 til kl. 13.

Símianúmer skrifstofu HRFÍ: 588- 5255

Ennfremur geta þeir sem vilja komið á skrifstofu félagsins í Síðumúla 15 á

afgreiðslutíma skrifstofunnar og skráð hunda á sýninguna.


 

Skráning  í keppni ungra sýnenda fyrir börn og unglinga á aldrinum 10 - 13 ára og

14 - 17 ára fer fram í gegnum netfangið: hrfi@hrfi.is 

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í tölvupóstinum:

Nafn þátttakanda

Kennitala

Heimilisfang

Póstnúmer

Netfang

Greiðslukortanúmer
 

Í "subject" þarf að skrá: Ungir sýnendur - skráning á febrúarsýningu. 

Með nýjárskveðju,

Stjórn smáhundadeildar.

 

   

 

 

 

 

 

 

 

 

Góð sýning í nóvember 2010

Hundum úr Smáhundadeild gekk mjög vel á nóvembersýningu HRFÍ og tóku yfir 70 hundar úr deildinni þátt. Nokkrir nýir meistarar bættust í hópinn, bæði íslenskir og alþjóðlegir. Bestu hundar tegundar úr deildinni okkar og öðrum smáhundadeildum tóku þátt í keppninni um besta hund í tegundahópi 9 og voru alls 21 hundur í þeirri keppni.

Þrír hundar úr smáhundadeild voru á verðlaunapalli í þetta sinn, Griffon Bruxellois tíkin ISCh Halastjörnu Brynfríður Borubratta var í 2. sæti, Maltese hundurinn Íslandssilfur Saphir var í þriðja sæti og Coton de Tuléar hundurinn Friendly Watcher‘s Iceland Dream í því fjórða. Dómari var Rodi Hűbenthal frá Noregi.

Hvolpar deildarinnar stóðu sig líka með stakri prýði og í flokki 4 – 6 mánaða sigraði Boston terrier tíkin Hagalíns Fröken Fix. Í öðru sæti var Griffon Bruxellois tíkin Rosetopp‘s Chanel og í 4. sæti var franski bulldog hundurinn Íslands Berg Positive Vibration. Í eldri hvolpaflokki, 6-9 mánaða var franski bulldog hundurinn Black Eyes Blue Tears í fyrsta sæti og Coton de Tuléar tíkin Auðnu Katla í 3. sæti. Dómari í hvolpakeppni var Hans Rosenberg frá Svíþjóð.

Í parakeppni röðuðu pör úr Smáhundadeild sér í 2., 3. og 4. sæti. Dómari í parakeppni var Birgitta Svarstadt frá Svíþjóð. Í 2. sæti var Griffon Bruxellois parið CIB SUCh ISCh Vendettas Overlord og ISCh Halastjörnu Brynfríður Borubratta. Í þriðja sæti var Maltese parið ST. Saphorin‘s Zorro og ISCh Íslandssilfurs Asis. Í fjórða sæti var Standard poodle parið ISCh Curonian Spit Backroad Adventure og Huffish Put The Blame On Me.

Stjórn smáhundadeildar óskar eigendum og ræktendum innilega til hamingju með góðan árangur. Einnig vill stjórn deildarinnar þakka eigendum kærlega fyrir góða umgengni á sýningarsvæði og prúðmannlega framkomu í alla staði.

 

   
 
 
 
 

 

 

  LOKAHÓF SMÁHUNDADEILDAR 2010

 

Mánudagskvöldið 29. nóvember verður haldin uppskeruhátíð Smáhundadeildar og hefst hún kl. 20 á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15.
 
Allir sem eiga hund í deildinni eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér eitthvað góðgæti á hlaðborðið, t.d. köku, smákökur, ost eða kex.
 
Deildin sér um öll drykkjarföng.
 
Uppskeruhátíð er nú orðin árviss viðburður hjá deildinni. Stigahæsti hundur ársins, í Smáhundadeild, verður heiðraður og einnig stigahæsti ræktandinn, auk þess sem stigahæstu hvolpar deildarinnar verða heiðraðir. 
 
Aðalatriðið er að hittast og eiga ljúfa kvöldstund saman í hópi þeirra sem eiga sameiginlegt áhugamál og það skemmtilegasta í heimi: Hunda!
 
Við hvetjum því alla í deildinni til að koma og geðjast í lok farsæls árs.
 
Með kveðju og þökkum fyrir frábært samstarf á árinu!

 
   
 
 
 
 
 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Augnskoðun
Stjórn smáhundadeildar mælir með því að allir ræktunarhundar séu augnskoðaðir reglulega. Auk þess er gerð krafa um að ræktunarhundar af áveðnum tegundum séu augnskoðaðir fyrir pörun.  Að öðrum kosti verða afkvæmin ekki ættbókarfærð.Nánari upplýsingar má m.a. sjá á heimasíðu deildarinnar (Heilbrigði) og einnig má leita upplýsinga hjá stjórn smáhundadeildar.

 
Í augnskoðun skimar dýralæknir einkum eftir arfgengum augnsjúkdómum.

 
Í nóvember næstkomandi eru tveir möguleikar á að láta augnskoða hundana sína, helgina 13. og 14. nóvember í Kópavogi og sýningahelgina 20. og 21. nóvember í reiðhöllinni í Víðidal, í tengslum við alþjóðlega sýningu HRFÍ.

 
Í Kópavogi 13. og 14. nóvember
Breski dýralæknirinn Ms. Lorna Newman BVM & S Cert. V. Opthal. MRCVS
kemur til landsins á vegum Shih Tzu deildar HRFÍ, en augnskoðunin stendur öðrum félagsmönnum HRFÍ líka til boða. Brenda situr í augnlæknaráði Breska hundaræktarfélagsins  og er sérfræðingur í arfgengum augnsjúkdómum.

HRFÍ viðurkennir þessa augnskoðun og augnvottorð Brendu.

Skoðunin fer fram í dýralæknaherberginu hjá Dekurdýrum að Dalvegi 18,
Kópavogi.

Vakin er athygli á því að þessi augnskoðun hentar þeim sérstaklega vel,
sem ekki geta eða vilja fara með hundana sína í augnskoðun á sama tíma og
hundasýning HRFÍ stendur yfir.

Skráning fram í gegnum netfangið 
stjorn@shihtzu.is  Vinsamlegast
tilgreinið nafn hunds, tegund og ættbókanúmer.


Skoðunargjald er  5.720 krónur sem greiða þarf fyrir 5. nóvember
næstkomandi inn á reikning deildarinnar 0701-15-202438 kt. 560810-0830 en
gjaldið rennur óskipt til dýralæknisins. Kvittun sendist á netfangið
stjorn@shihtzu.is
 

Í Reykjavík 20.-21. nóvember


Dýralæknarnir Susanne Kaarsholm og Jens Kai Knudsen frá Danmörku augnskoða hunda í

 Reiðhöllinni í Víðidal dagana 20. og 21. nóvember, í tenglsum við alþjóðlega hundasýningu

 félagsins.  


 
Vinsamlegast athugið að fara ekki með hunda í augnskoðun fyrr en eftir að búið er að sýna þá.
 

Hægt er að panta tíma á skrifstofu HRFÍ og þarf þá að gefa upp ættbókarnúmer hundsins,

 ásamt því að ganga frá greiðslu. Gjald fyrir augnskoðun er 5.720 krónur. Eingöngu

félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald fyrir árið 2010 geta komið með hunda í augnskoðun.

Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 12. nóvember.


 


 

 

   
 
 
 
 

 

  ljósmyndasamkeppni

Sámur efnir til ljósmyndasamkeppni fyrir jólatölublað Sáms sem kemur út í desember.

Þema keppninnar er "vetur".

10 fallegustu myndirnar verða birtar í jólablaði Sáms en sú sem ber sigur úr býtum verður notuð sem forsíðumynd blaðsins! Auk þess fær sigurvegarinn myndatöku í boði Sóleyjar Óskar Sigurgeirsdóttur, áhugaljósmyndara (
www.flickr.com/photos/soleyosk )

Skilafrestur rennur út miðvikudaginn 17. nóvember næstkomandi.

Vinsamlegast sendið myndir á netfangið
auja83@gmail.com ásamt upplýsingum um hundinn á myndinni. Eingöngu mynidr af hundum sem eru ættbókafærðir hjá HRFÍ koma til álita. Vinsamlegast látið einnig fylgja upplýsingar um ljósmyndara, eiganda og ræktanda.



 

   
 
 
 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Alþjóðleg sýning í ágúst 2010

ISCH Break-Dance-N di San Gimignano (Destiny) BIS4

Fulltrúum smáhundadeildar gekk vel á alþjóðlegri sýningu HRFÍ 28. og 29. ágúst 2010. Samtals voru sýndir 759 hundar í fimm dómhringjum, þar af 77 úr smáhundadeild. Ber fyrst að nefna glæsilegan árangur miniature poodle-tíkarinnar  ISCH Break-Dance-N di San Gimignano (Destiny), sem stóð uppi sem sigurvegari í tegundahópi 9, en alls voru 236 hundar á sýningunni sem tilheyra þeim tegundahópi. Hún var þar af leiðandi fulltrúi smáhunda í keppninni um besta hund sýningar og varð þá í 4. sæti. Eigandi hennar er Daníel Örn Hinriksson og ræktandi er Francesco Cochetti.

Breski dómarinn Barbara Banbury dæmdi bæði tegundahóp 9 og úrslitakeppni um besta hund sýningar.

Tveir aðrir fulltrúar smáhundadeildar voru á verðlaunapalli í tegundahópi 9; standard poodle-hundurinn ISCH Curonian Spit Backroad Adventure í eigu Þórdísar B. Björgvinsdóttur var í 3. sæti. Ræktandi hans er Olga u. Jan Bitomsky. Maltese-tíkin Íslandssilfurs Shaphir var í 4. sæti, en hún er í eigu ræktanda síns, Valgerðar Hauksdóttur.

Smáhundadeild átti einnig hvolpa í verðlaunasætum. Í flokki 4 – 6 mánaða hvolpa varð Havanese-hvolpurinn Coco í 4. sæti í keppninni um besta hvolp dagsins. Coco er í eigu ræktanda síns, Sigríðar Kristjánsdóttur. Dómari var Juha Putkonen frá Finnlandi.

Í flokki 6 – 9 mánaða var Griffon Bruxellois-hvolpurinn Evening Star Dinastija í 4. sæti, en hún er í eigu Fríðar Estherar Pétursdóttur. Ala Perederij er ræktandi. Dómari í eldri hvolpaflokki var Igor Selimovik frá Króatíu.

Griffon Bruxellois-hundurinn CIB Such Isch Vendettas Overlord var sýndur með þremur afkvæmum sínum í keppni um besta afkvæmahóp dagsins og sigraði í þeirri keppni. Eigandi hans er Brynja Tomer og ræktandi Siv Jernhake. Dómari var Jean Lanning frá Englandi.

Smáhundadeild var með kynningabás á sýningunni og vöktu hundar deildarinnar að venju athygli.

Smáhundadeild vann við uppsetningu sýningarinnar og dyravörslu og vill stjórn deildarinnar þakka sjálfboðaliðum innilega fyrir vel unnin störf.

Eigendum og ræktendum hunda sem náðu góðum árangri, eru færðar einlægar hamingjuóskir.

    

ISCH Curonian Spit Backroad Adventure BOG3

Íslandssilfurs Shaphir BOG4

Evening Star Dinastija Bhv4

   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   

 

ALÞJÓÐLEG HUNDASÝNING HRFÍ, 28.-29. ÁGÚST, 2010

Kæru sýnendur,

Sú staða kom upp í dag, að írsku hjónin Colm Beattie og Rita McCarry Beattie afboðuðu sig á sýningu félagsins um helgina.  Fyrir helgi misstum við Bo Skalin úr hópnum og lentum í töluverðum vandræðum við að finna staðgengil fyrir hann með svo skömmum fyrirvara. Það var því ljóst að heppnin þyrfti að vera með okkur, ef takast ætti að leysa úr þessum nýju forföllum. Ekki er ofsögum sagt, að það hékk á bláþræði hvort af sýningunni gæti orðið yfir höfuð.
Við höfum nú fengið það staðfest að tvær heiðurskonur og velunnarnar félagsins hafa samþykkt að koma og dæma báða dagana. Þetta eru þær Jean Lanning frá Bretlandi og frú Sigríður Pétursdóttir frá Ólafsvöllum, heiðursfélagi HRFÍ. Báðar dæmdu þær á afmælissýningum félagsins fyrir ári síðan. Kunnum við þeim okkar bestu þakkir fyrir.
Til að koma öllu heim og saman höfum við þurft að endurskipuleggja dagskránna töluvert. Við viljum því biðja alla sýnendur um að athuga vel í hvaða dómhring hundar þeirra verða dæmdir og hver leiðbeinandi tími er.
Við erum jafnan viðbúin því að dómari geti forfallast, en að missa meirihluta dómaranna með svo skömmum fyrirvara, er mjög óvenjulegt. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sýnenda vegna þessa og vonum að allir geti þrátt fyrir allt átt ánægjulega sýningahelgi í góðum félagsskap.
Með kveðju, sýningastjórn.  

Breitt sýningarskrá hérna:
 

Sýningaþjálfun smáhundadeildar:

Smáhundadeild er með sýningaþjálfun  í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum, í Garðabæ sem hér segir:

Fimmtudaginn 5. ágúst kl. 19.15

Fimmtudaginn  12. ágúst kl. 19.15

Fimmtudaginn 19. ágúst kl. 19.15*

Fimmtudaginn 26. ágúst kl. 19.15*

Hver kennslustund er klukkutími og til að leiðsögn verði sem persónulegust og fjölbreyttust, fara þátttakendur milli leiðbeinanda, sem hver og einn leiðbeinir um ólíka þætti sem skipta máli.

Þátttökugjald er 500 krónur og getur hver sýnandi eingöngu komið með einn hund í hvert skipti.

Æskilegt er að sýnendur komi með sýningataum og dót eða nammi sem hundurinn er hrifinn af.

*Tíminn hefst á stuttu erindi (15 mínútur) um skipulag sýninga, klæðaburð, sýningatauma, einkunnir og annað sem viðkemur sýningum.

Verklegur tími verður kl. 19.30 – 20.30 og í lok tímans gefst þátttakendum þá kostur á að spyrja leiðbeinendur um hvaðeina sem viðkemur hundasýningum og undirbúningi þeirra.

Suðurnes

Smáhundadeild er einnig með sýningaþjálfun í Keflavík, í Hvalvík 2 (hvítt geymsluhúsnæði) sem hér segir:

Miðvikudaginn 18. ágúst kl. 20

Miðvikudaginn 25. ágúst kl. 20.

   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

SUMARSÝNING HRFÍ, JÚNÍ 2010, ÚRSLIT.

    Ljósmyndari: Rakel Ósk

Tæplega 800 hundar voru sýndir á sumarsýningu HRFÍ í júní 2010, þar af tæplega 70 úr smáhundadeild. Auk þeirra voru um 170 smáhundar úr öðrum deildum sýndir og kepptu bestu fulltrúar þeirra í úrslitum í tegundahópi 9.
 
Torbjörn Skaar dæmdi úrslit í tegundahópi 9 og átti smáhundadeild tvo fulltrúa á verðlaunapalli. Sigurvegari var miniature poodle-tíkin Break-Dance-N di San Gimignano, sem er í eigu Daníels Arnar Hinrikssonar. Ræktandi er Francesco Cochetti ,og í 4. sæti var Chinese Crested-hundurinn Practical Hero Coconut Captain, sem er í eigu Aldísar Ívarsdóttur, sem jafnframt ræktaði hann.
 
Áður en Torbjörn Skaar gerði upp hug sinn, valdi hann sjö hunda til undanúrslita og auk þeirra tveggja sem urðu í verðlaunasætum, valdi hann í þann hóp tvo fulltrúa smáhundadeildar, griffon bruxellois-tíkina Halastjörnu Brynfríði Borubröttu (eigandi og ræktandi: Brynja Tomer) og Coton de Tuléar-hundinn Tia Oroka Aron Smá (eigandi og ræktandi: Sigríður Margrét Jónsdóttir).
 
Að auki var besti afkvæmahópur dagsins úr smáhundadeild, en hann samanstóð af Petit Brabancon-tíkinni Isch Vendettas Bon Bon og stríhærðum afkvæmum hennar. Eigandi er Brynja Tomer. Dómari var George Kostopoulos frá Grikklandi.
 
 
Smáhundadeild var með kynningarbás alla sýningarhelgina og vöktu fulltrúar deildarinnar þar mikla athygli gesta og gangandi.
 
Hundar deildarinnar fengu almennt mjög góða dóma. Stjórn deildarinnar er stolt af fulltrúum sínum og óskar eigendum og ræktendum hundanna innilega til hamingju. Sjá nánari úrslit  sýningar undir hverri hundategund fyrir sig.

    

   
   
Aðstoð í Sólheimakoti
Nefnd um viðhald á Sólheimakoti hefur ákveðið að fara í endurbætur og viðhald á Sólheimakoti
Nauðsynlegt er að félagsmenn standi saman og leggi hönd á plóg, til að tryggja áframhaldandi aðgang að þeirri frábæru aðstöðu sem við höfum í Sólheimakoti.
Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir um að leggja sitt af mörkum.
Um er að ræða málningavinnu og þessháttar verkefni og eru þeir, sem sjá sér fært að taka þátt, beðnir um að senda tölvupóst á eitthvert neðangreindra netfanga:
Ragnhildur Gísladóttir, schnauzerdeild, raggagisla@heljuheims.net
Guðbjörg Guðmundsdóttir, retrieverdeild,
gudgud@landspitali.is
Daníel Hinriksson, chihuahuadeild,
danielorn@simnet.is
Jóna Karlotta Herbertsdóttir, papillon- og phalenedeild,
fidrildi60@hotmail.com

 

   
     
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands 
verður haldin á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 26. maí kl.20:00
Dagskrá:
1. Skipan fundarstjóra, fundarritara og lögmæti fundarins kannað
2. Skýrsla stjórnar HRFÍ
3. Ársreikningar félagsins ásamt skýrslum löggilts endurskoðanda og félagskjörinna          skoðunarmanna fyrir síðastliðið ár, lagðir fram til staðfestingar
4. Skýrsla um starfsemi siðanefndar
5. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfstímabil
6. Lagabreytingar
7. Kosning stjórnarmanna skv. 10.gr.
8. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna og tveggja til vara
9. Kosning siðanefndar
10. Önnur mál

 

 

 

   

Myndasamkeppni FCI

FCI (Federation Cynologique Internationale), alþjóðasamtök hundaræktarfélaga stendur fyrir myndlistasamkeppni í tilefni af 100 ára afmæli stofnunarinnar árið 2011.   Hundaræktarfélag Íslands hefur verið aðili að FCI yfir 30 ár en í hverju landi hefur aðeins eitt hundaræktarfélag heimild til að starfa undir merkjum þeirra.

 
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í keppninni þurfa að skila inn myndum sínum til skrifstofu Hundaræktarfélags Íslands fyrir 6. maí 2010.  Öllum er heimil þátttaka.  Valdar verða 5 myndir, ein úr hverjum neðangreindum aldursflokki, viðfangsefnið er Hundurinn........
Flokkur I          3-7 ára
 Flokkur II         7-10 ára
   Flokkur III        10- 14 ára
  Flokkur IV       14-18 ára
         Flokkur V        18 ára og eldri

 
   Nánari upplýsingar veita starfsmenn á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15, 108 Reykjavík,                S: 588-5255
   
   
 

Aðalfundur Smáhundadeildar HRFÍ

verður miðvikudaginn 31. mars nk, kl 20.00 á A.Hanssen í Hafnarfirði, heitir nú Gamla Vínhúsið

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar.

2. Kosning í stjórn, í stjórn eru þrjú sæti laus, framboð berist á netpósti: magga@coton.is

3. Kosning tengiliðs fyrir Bichon Frise. Framboð berist til stjórnar á netpósti: magga@coton.is

4. Önnur mál.
Þeir sem vilja fá svör stjórnar við ákveðnum fyrirspurnum eru vinsamlega beðnir um að senda spurningar sínar til stjórnar í síðasta lagi mánudaginn 29. mars.

Með kveðju stjórn Smáhundadeildar