|
|
|
Franskur Bulldog

Uppruni:
Frakkaland.
Útgáfudagur
gilds ræktunarmiðs: 28.04.1995.
Eiginleikar: Félagi,
heimilishundur, varðhundur.
FCI-flokkun: Tegundahópur
9. Félagar og gæluhundar. Litlir Molossian hundar.
vinnuprófs er ekki krafist.
Stærð : 8- 14 kg .
Sagan og uppruninn
Franskur Bulldog er
afkomandi af hinum forna Tíbetska eða Asíska Mastiff.
Þegar að tegundinn barst til Englands, var henni blandað
við Terrier hunda þar í landi, og stærð tegundarinnar
minnkaði gegnum aldirnar. Þó svo að skoðanir sérfræðinga
tegundarinnar séu margar, er almennt talið að þessi
tegund sé aðalega árangur þriggja kynblanda, Enska
Bulldog sem gaf tegundinni bygginguna og stóran hluta af
persónueinkennum , Terrier sem gaf tegundini uppréttu
eyrun og hraðan , og Pug sem gaf henni hringlaga augun .
Á miðri 19
öld, kom lítill hundur til Parísarborgar frá Bretlandi,
og þessi litli hundur hafði eiginleika mjög líka þeim og
nútíma Franski Bulldog hefur. Hundurinn varð strax
eftirlæti Parísarbúa, sérstaklega þá í ríkari hverfunum.
Kjötkaupmenn tileinkuðu sér tegundina fljótlega líka,
þar sem að hún var mjög lipur og losaði sláturhúsin og
verslanirnar við meindýr. Stórkaupmenn og konur í fínni
hverfunum notuðu hann líka sem varðhund, burt séð frá
smægðinni því hann var sterkur og hraður. Það er einnig
sagt að bílstjórar leyfðu þá í vögnum sínum og þótti það
kostur. Í enda 19 aldarinnar, vildu flest allir Franskir
listamenn eiga einn svona hund. Þeir listamenn sem áttu
slíka hunda voru t.d. seduced Chaliapine, Mistinguett,
Colette, Caruso og Joséphine Baker. Og jafnvel Evrópska
kongafólkið var heillað af Franska Bulldog, með
hrekkjótta augnaráðið. Það mátti sjá slíka hunda í
kjöltu hjá Edward konungi VII, eða við sumahús Nicolas
II.
Fyrsti
tegundaklúbburinn var stofnaður árið 1880 í Frakklandi.
Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað og opinberlega gefið út
árið 1898.
Báðar
heimstyrjaldirnar tóku því miður mörg líf Franska
Bulldog hunda, sem og fleiri tegunda. Tegundin féll
rólega gleymsku. Endurlífgun hennar hófst þó aftur
mörgum árum seinna, og skráningar Franska Bulldogs í
Frakklandi hafa hækkað um 486 skráða hvolpa árið 1991, í
1600 skráða hvolpa árið 2000.
Kraftur og atorka
Franski
Bulldog verður að sýna merki um krafta og atorku við
fyrstu sýn. Hann er þéttur og vöðvamikill, líkt og hjá
Mastiff hundum, en mun minni. Höfuðið er sterkt, breytt
og ferhyrnt. Trýni stutt, lengd þess er u.þ.b. 1/6 af
lengt höfuðsins. Fellingar í andliti eru eru samræmdar
og ekki of margar. Eyrun, sem að einkennir tegundina,
eru borin upprétt og bein. Þau eru breið við kollinn og
ávöl í endann. Skottið er lítið og breytt og mjókkar í
átt að endanum. Margir litir eru leyfilegir Stutti,
þykki og gljáandi feldurinn er mjúkur.
Ofsalega blíður og vel
gefinn
Hann er félagslyndur að
eðlisfari, líflegur, gáskafullur og ákafur. Einstaklega
ástúðlegur gagnvart eiganda sínum og börnum. Það þarf
ekki mikið til aðgera Franska Bulldog ánægðan. Franski
Bulldog er mjög vingjarnlegur hundur með viðráðanlegan
persónuleika. Hann aðlagast að eiganda sínum, hvort sem
það er kraftmikið par eða rólegt, eldra fólk. En honum
líkar ekki að vera skilinn eftir einn allan daginn. Hann
vill alltaf vera nálægt eiganda sínum þeir gelta sjaldan
helst ef eitthvað nálgast húsið sem þeim líst ekki á
,hann passar sitt umhverfið mjög vel . Hann á það til að
vera eigingjarn á fólkið sitt gangvart öðrum hundum .
Franskur Bulldog er afar auðveldur í allri þjálfun þeir
eru fljótir að læra svo lengi sem þeim finnst
skemmtilegt
þeir geta verið þverir og þetta eru miklir karekterar .
Það þarf mikið að koma til svo Franskur Bulldog gefi
eftir gagnvart öðrum hundum , hann sækist alltaf eftir
því að vera nr 1 hjá sínum húsbónda .
Heilsa
Franskur Bulldog hentar
mjög vel í hundafimi og þeir geta hlupið hratt og hafa
mikið úthald . Þetta er mjög félagslyndur hundur og
nýtur þess að vera í kringum aðra hunda og dýr. Franski
Bulldog er sveitalegur og kröftugur. Kröftugur vegna
þess að tegundin er almennt mjög heilbrigð, og ekki
hrjáir hana neinir sérstakir sjúkdómar , það sem helst
er að hrjá hann snýr að öndun eða öndunarfærum , stutt
nef og þröngar nasir geta haft þau áhrif að þeir eiga
erfitt með öndun sérstaklega eftir mikil hlaup og í
heitu veðri . Franskur Bulldog er líka afar hugrakkur og
fátt sem hræðir hann .
Líftími tegundarinnar er u.þ.b. 10-12 ár, það er mjög
góður líftími miðað við Molossians hunda.
Keisaraskurður er líka algengur hjá tíkunum þær eiga
erfitt með að fæða hvolpa stærri en ca 200 gr , oft
velja ræktendur bara keisaraskurð og láta ekki á það
reyna hvort tíkin geti fætt og er keisaraskurður eflaust
oftar framkvæmdur en í raun þörf er á .
Umhirðan
Burst þarf feldinn
reglulega annars er umhirðan mjög þægileg , Þeir fara úr
hárum 1x – 2x á ári . þess á milli er ekki hárlos
, hárlosa tímabilið er líka mjög stutt mjög þægilegir
hvað það varðar .
Að velja Franskan Bulldog
Tegundin er nokkuð vinsæl
og hefur fjölgað svo kölluðum ,,ræktendum" sem að hugsa
aðeins um gróða. Franskur Bulldog er tegund sem nokkuð
erfitt er að rækta. Gotin eru yfirleitt lítil og flestar
fæðingar eru teknar með keisara. Finndu ábyrgan ræktanda
sem leggur metnað í það sem hann/hún er aðgera og getur
sýnt þér allt gotið, gotaðstöðu, móður og föður.
Kannaðu ættina hvað varðar skapgerð og heilbrigði, sem
og útlit og sýningarferil. Hvolpurinn skal vera hreinn
og fjörugur og alinn upp inná heimili .
17
Franskir Bulldog eru skráðir hjá HRFÍ 2010
9 . tíkur
8 . Rakkar

Á þetta meil má fólk
senda myndir og /eða hvað sem þeim dettur í hug varðandi
Franksn Bulldog ..
franskir@bulldog.is
www.bulldog.is
http://www.bulldogklubben.dk/
http://www.fbksverige.se/
http://www.hbc-fransebulldog.nl/
http://www.norskbulldogklubb.net/
|
|
|