
Fréttir Stjórn Tegundir Hvolpar Starfsemi Fundagerðir Aðrir tenglar Heilbrigði
|
|
Bichon Frise
Bichon frise er glaðlyndur, fjörugur og blíður smáhundur sem
hefur notið síaukinna vinsælda hér á landi. Hann er duglegur og hefur
einstaklega gaman af að vera í námunda við fólk og nýtur hverrar mínútu sem
eigandinn veitir honum í þjálfun og útiveru. Han er lítill og hæð að herðakambi
á ekki að vera meiri en 30 sentimetrar.
Bichon frise er þægilegur heimilishundur, hann þarf ekki
mikla hreyfingu þó svo hann hafi mjög gaman af því að vera úti. Hann fer ekki úr
hárum en feldurinn, sem er tvöfaldur, þarf nokkra umhirðu og bursta þarf hann
nokkuð reglulega. Reynslan af þeim hér á landi sýnir að þeir gelta lítið og eru
mjög heimakærir. Bichon frise er fransk-belgískur að uppruna en sagan hermir að sjómenn hafi komið með hann til Kanaríeyra á 14. öld. Hann var vinsæll meðal kóngafólks á öldum áður og einnig var hann nokkuð notaður í sirkusa enda auðvelt að kenna honum alls konar hundakúnstir. Fyrstu sögur af honum í Bandaríkjunum eru frá árinu 1956 og þar var hann fyrst ættbókarfærður 1972. Bichon frise er vinsæll sýningarhundur en fyrst var hann sýndur á Croft sýningunni í Bretlandi árið 1980. |
|