Schnauzerganga sunnudaginn 29. Janúar kl. 13:00
Fyrsta ganga ársins verður farin frá Barðastöðum 1-5 í Staðahverfi, Grafarvogi. Sjá nánar kort af bílastæði og gönguleið. Næg bílastæði og stutt í náttúruna við Úlfarsá.
Lagt verður af stað kl. 13:00 og gengið í hring um golfvöllinn á Korpúlfsstöðum, áætlað að þetta taki um einn og hálfan tíma. Létt leið, engar brekkur, en getur verið snjóþungt, allt háð veðri. Munið eftir góðum gönguskóm, klæðnaði eftir veðurfari og skítapokum til að ekkert festist undir golfskónum í vor.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kveðja, göngunefndin
Ævar Örn, s: 860-9234 og Sigrún, s: 862-6969
Aðventuganga Schnauzer deildarinnar
28.11.2011 - Ritstjóri
Hin árlega Aðventuganga Schnauzer deildarinnar verður laugardaginn 3.desember og ætlum við að hittast á sama stað og í fyrra, Guðmundarlundi, kl.14:00 sjá slóð á kort hér neðar í auglýsingunni. Að göngunni lokinni ætlar deildin að bjóða upp á heitt kakó og smákökur en gott væri ef fólk tæki með sér plastmál að heiman til að drekka kakóið úr.
Guðmundarlundur er í nágrenni Elliðavatns.
- Farið er upp fyrir Kóra- og Þingahverfi í Kópavogi, af Vatnsendavegi um Þingmannaleið og upp með hesthúsahverfinu á Heimsenda KORT
- Önnur leið er frá Breiðholtsbraut inn Vatnsendahvarf og Vatnsendaveg.
Svo er bara að klæða sig eftir veðri og koma með jólaskapið.
Hlökkum til að hitta sem flesta.
Göngunefndin
Ævar, sími: 860-9234 og Sigrún, sími: 862-6969
Besti Hundur Sýningar 2!
20.11.2011 - Ritstjóri
Í úrslitum sýningarinnar í gær urðu tveir Dvergschnauzerar í fyrst tveim sætunum í grúppu úrslitum en það hefur aldrei gerst áður. Í öðru sæti var svarti dvergschnauzer rakkinn Svartwalds Bright 'N' Shiny Future sem einnig varð Íslenskur meistari og í fyrsta sæti varð HCH HJCH ISCH Szentendrei Ördög All Right "Orri".
Orri mætti svo aftur í dag til að keppa í BESTI HUNDUR SÝNIGAR og náði þeim stórkostlega árangri að verða Annar Besti Hundur Sýningar! Þetta er besti árangur sem Schnauzer hefur gert á stórri Hrfí Sýningu.
Deildin óskar eigendum Orra til hamingju með þennan stórglæsilega árangur.
Úrslit vinnuprófa
14.11.2011 - Ritstjóri
Sporapróf Schnauzerdeildarinnar fór fram laugardaginn 16 október síðastliðin. Að þessu sinni var bæði keppt í Spor 1 og Spor 2. Prófin voru opin öllum tegundum og voru 7 hundar skráðir í þessi tvö próf. Dómari var Albert Steingrímsson, prófstjóri var Guðjón Ármann Halldórsson og ritari var Haukur Birgisson.
Úrslit í Spor 1 voru:
Sæti
Stig
Hundur
tegund
Eigandi
1. sæti
98
Ice Tindar Bravo
Schafer
Bryndís Kristjándsdóttir
-
40
Svarthöfða Joy
Dvergschnauzer
Anna D. Hermannsdóttir
-
0
Welincha´s Yasko
Schafer
Sirrý Halla Stefánsdóttir
Úrslit í spor 2 voru:
Sæti
Stig
Nafn hunds
Tegund
Eigandi
1. sæti
98
Ice Tindra Aragon
Schafer
Kirstjana Bergsteinsdóttir
2. sæti
90
Kolgrímu Bond Hólm
Schafer
Friðrik Friðriksson
-
0
Svarthöfða Javer Frosti
Dvergschnauzer
Guðbjörg Guðmundsdóttir
ME.
0
Bláklukku Byr Rúfus
Schnauzer
Valgerður Stefánsdóttir
Bryndís 1.sæti í Spor1, Guðjón prófstjóri, Albert dómari, Kristjana 1.sæti Spor2, Friðrik 2.sæti Spor2 og Ragnhildur fulltrúi deildarinnar
Hlýðnipróf Schnauzerdeildarinnar fór fram sunnudaginn 13 nóvember síðastliðin. Keppt var í Hlýðni 1 prófi, var prófið opið öllum tegudum og voru 6 hundar skráðir í prófið. Dómari var Björn Ólafsson, prófstjóri var Lovísa Bragadóttir og ritari var Guðbjörg Guðmundsdóttir. Allir hundarnir náði 1. einkunn og náðu 5 efstu hundarnir sér í silfurmerkið
Úrslit í hlýðni 1 voru:
Sæti
Stig>
Nafn hunds
Tegund
Eigandi
1. sæti
195,5
Kolgrímu Blaze Hólm
Schafer
Sirrý Halla Stefánsdóttir
2. sæti
190
Lei-Anns Bodil
Malino
Ylfa Ólafsdóttir
3. sæti
189,5
Svarskeggs Black Pearl
Risaschnauzer
Ragnhildur Gísladóttir
4. sæti
183
Stefsstells Skrúður
Íslenskur fjárhundur
Elma Cates
5. sæti
172
Helja
blendingur
Ragnhildur Gísladóttir
6. sæti
167
Bjarkarkots Dimma Nótt
Íslenskur fjárhundur
Elma Cates
Ylfa 2.sæti, Björn dómar, Sirrý Halla 1.sæti, Ragnhildur 3. og 5.sæti og Elma 4. og 6.sæti
Verslunin Bendir í Hlíðarsmára 13 Kópavogi styrkti prófin með gjöfum handa fyrstu 3 sætunum í öllum prófunum og þakkar stjórn Schnauzerdeildarinnar Bendi kærlega fyrir.
Kynningarbás
10.11.2011 - Ritstjóri
Stjórn Schnauzerdeildarinnar ákvað að hafa kynningarbás á næstu sýningu HRFÍ.
Við leitum nú af áhugasömu fólki til að vera á bás þessa tvo daga í ca 1-2 tíma í senn.
Allar stærðir og alla liti ;)
Einu skilyrðin sem þarf að uppfylla er glaðlegt viðmót hunds og eiganda.
Það er engin krafa um að hundurinn sé í "sýningarfeld". Loðnir og niðurrakaðir hundar eru að sjálfsögðu velkomnir.
Þeir sem hafa áhuga á að vera á kynningarbás vinsamlegast sendið póst á Ragnhildi ragga@schnauzerdeild.com eða hringja í 8651945 og takið fram hvernig hund þið eruð með, hvaða tími hentar best og hvort þið getið verið báða dagana.
Sýningarþjálfun
2.11.2011 - Ritstjóri
Sýningarþjálfun Schnauzerdeildarinnar verður miðvikudaginn 9. og 16. Nóvember í húsnæði Gæludýr.is í Korputorgi kl 19:00 til 20:00
Skiptið kostar 500kr.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningu HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokum, nammi og sýningartaum.
Ganga
2.11.2011 - Ritstjóri
Schnauzer ganga verður sunnudaginn 06.11.2011 og ætlum við að hittast við Straum í Straumsvík kl.13:00, bærinn við hliðina á Álverinu í Straumsvík.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Sigrún og Ævar
Dagskrá sýningar
1.11.2011 - Ritstjóri
Schnauzerinn verður sýndur í hring 1 á laugardeginum, 19 nóvember.
Dómari verður Blaž Kavcic
Aðeins er um áætlun að ræða og birt með fyrirvara um breytingar á dagskrá.
Augnskoðun 19. - 20. nóvember
6.10.2011 - Ritstjóri
Finn Boserup og Jens Kai Knudsen frá Danmörku mun augnskoða hunda í Reiðhöllinni í Víðidal 19. og 20. nóvember nk. Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður.
Síðasti skráningardagur í augnskoðun er föstudaginn 11. nóvember 2011.
Augnskoðun hunda kostar 5.720 fyrir virka félagsmenn. Hundaeigendur, sem ekki eru félagsmenn í HRFÍ, en með hunda í ættbók HRFÍ, geta skráð sig í augnskoðun gegn hærra gjaldi þ.e. kr. 11.440. Hundar virkra félagsmanna ganga fyrir í augnskoðun.
Það er skylda að augnskoða Dvergschanuzer fyrir pörun og má augnvottorð ekki vera eldra en 18 mánaða við pörun.
Dýralæknirinn augnskoðar hunda með tilliti til arfgengra sjúkdóma sem finnast í fjölmörgum hundategundum.
Smáhundadagar í Garðheimum
5.9.2011 - Ritstjóri
Schnauzerdeildin ætlar að vera með á bás á smáhund-dögum í Garðheimum helgina 17-18 september og leitar því nú að fólki og hundum til að vera á kynningarbás.
Öllum er velkomið að vera með hvort sem fólk er skráð í deildina eða ekki og einu skilyrðin sem þarf að uppfylla er glaðlegt viðmót hunds og eiganda. Það er engin krafa um að hundurinn sé í "sýningarfeld". Loðnir og niðurrakaðir hundar eru að sjálfsögðu velkomnir til að geta verið á kynningarbás.
Kynningin í Garðheimum er frá kl 12-17:00 báða dagana og æskilegt að fólk mæti ca hálftíma fyrr og leitum við að dverg schnauzerum til að vera á bás í Garðheimum
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Ragnhildi í e-mail ragga(hjá)schnauzerdeild.com fyrir 14 september.
Vinsamlegast takið fram hvaða tími hentar best og hvort þið viljið vera báða dagana eða annann daginn.
Hlýðni og Sporapróf
5.9.2011 - Ritstjóri
Schnauzerdeildin mun standa fyrir vinnuprófum í samstafi við Vinnuhundadeild HRFÍ. Prófin eru opin ÖLLUM!
Sporaprófin verða laugardagin 15 október og verður hægt að skrá í Spor 1 og Spor 2. Dómari sporaprófsins verður Albert Steingrímsson.
Hlýðniprófin verða svo sunnudaginndaginn 16 októer og verður hægt að skrá í hlýðni Brons og Hlýðni 1. Dómari í hlýðni verður Björn Ólafsson.
Tekið er á móti skráningum í vinnupróf á skrifstofu Hundaræktarfélags Íslands. Síðumúla 15, 108 Reykjavík
Sími: 588 5255 Fax: 588 5269 Netfang: hrfi@hrfi.is
Reikningsnúmer félagsins er: 515-26-707729 Kt. 680481-0249
Skráningarfrestur rennur út 2 okt. fyrir öll prófin.
Börn og hundar!
2.9.2011 - Ritstjóri
Börn og hundar munu hittast 1. laugardag í hverjum mánuði kl. 13 í
versluninni Gæludýr.is á Korputorgi og eru ábyrgðarmenn verkefnisins Brynja
Tomer hjá Smáhundadeild og Hugrún Diljá Þorgeirsdóttir hjá PMF-deild.
Hugmyndin er sú að öll börn, á aldrinum 2 - 12 ára, sem eiga eða hafa áhuga
á hundum, eigi þess kost að koma saman og fræðast um hunda ásamt því að eiga
góða stund með hundinum sínum og öðrum.
Upplýsingar og drög að dagskrá annarinnar má m.a. sjá á Facebook-síðunni
Börn og hundar.
Ekkert þátttökugjald og ekki þarf að skrá börnin. Þau geta mætt ef og þegar
þau vilja.
Við hittumst í fyrsta skipti á morgun, laugardaginn 3. september í
Gæludýr.is á Korputorgi kl. 13.
Með kærri kveðju og von um að verkefnið falli í frjóan jarðveg.
Úrslit Ágústsýningarinnar eru komin inn og hægt að sjá þau hér.
Við viljum þakka Platinum Ísland fyrir eignabikar í Besta hvolp í Hvítum Dverg, 4-6 mánaða og Pipar og salt dverg, 6-9 mánaða. Og Breytingu ehf fyrir medalíu í BOB í svörtum Risa.
Schnauzerdeildin gaf medalíur í BOB og BOS í öllum stærðum og litum nema Svörtum Risa.
Einnig viljum við þakka eftirfarandi sem gáfu farandsbikara á sýningunni:
Breyting hef sem gaf farandbikar í Svörtum Risa Schnauzer
Versluninni Hundaheimur sem gaf farandsbikar í Pipar og salt dverg Schnauzer
Icenice Ræktun sem gaf farandsbikar í Svart og silfur Dverg og Svörtum Dverg Schnauzer
Fiskbúðin í Mosó sem gaf farandsbikar í Hvítum Dverg Dverg Schnauzer og
Platínum Ísland sem gaf farandsbikar í Svörtum og Salt og pipar Standard Schnauzer
Dagskrá sýningar
22.8.2011 - Ritstjóri
Schnauzerinn verður sýndur í hringur 1 á sunnudaginn, 27 ágúst.
Dómari er Carlos Fernandez-Renau Glez-Anleo frá Spán.
Athugið að aðeins um um áætlun að ræða.
09:24 Risaschnauzer,sv (1)
09:28 Schnauzer,sv (4)
09:44 Dvergschnauzer,p&s (6)
10:08 Dvergschnauzer, hv (11)
10:52 Dvergschnauzer,s&s (13)
11:44 Dvergschnauzer,sv (19)
13:00 Schnauzer,p&s (4)
Aðstoða á sýningu
18.8.2011 - Ritstjóri
Hefur þú áhuga á að vinna á næstu sýningu HRFÍ?
Við erum að leita að 4 (eða fleirum og þá þarf ekki að standa báða dagana) áhugasömum einstaklingum til að standa vaktina í dyrunum á sýningunni. Vaktin byrjar 08:30 ca á laugardaginn og er til 13:00 báða dagana.
Einnig þurfum við nokkra aðila til að hjálpa til við að setja upp sýninguna á fimmtudeginum og taka hana svo aftur niður á sunnudeginum.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa á sýningunni og hjálpa til við að setja upp sýninguna og taka hana niður vinsamlegast hafið samband við Ragnhildi í e-mail ragga@schanuzerdeild.com eða í síma 8651945 fyrir mánudaginn 22 ágúst.
Sýningarþjálfun
9.8.2011 - Ritstjóri
Sýningarþjálfun Schnauzerdeildarinnar verður mánudaginn 15 og 22 ágúst í húsnæði Gæludýr.is í Korputorgi kl 19:00 til 20:00 Skiptið kostar 500kr og allar tegundir velkomnar.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningu HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokum, nammi og sýningartaum. Þjálfarar þann 15.ágúst eru Ragga Gisla og Magga, en í þeirri seinni þann 22.ágúst munu Klara og Elis sjá um þjálfun.
Viltu gefa farandbikar?
9.8.2011 - Ritstjóri
Stjórn deildarinnar hefur verið að reyna að koma upp farandsbikurum fyrir allar stærðir og liti á sýningum HRFI og erum við komin með sett fyrir flest allar sýningar félagsins nema Ágústsýninguna.
Því leitum við til félagsmanna núna og óskum eftir að ef það er einhver þarna sem hefur áhuga á að gefa bikar fyrir næstu sýningu sem mun ganga áfram næstu ár og skrásetja söguna.
Endilega ekki hika við að hafa samband við Ragnhildi í tölvupóst ragga(at)schnauzerdeild.com og tilgreini hvaða stærð og hvaða lit þið óskið eftir að gefa farandbikar í. Farandbikar er fín auglýsing fyrir ræktendur og/eða fyrirtæki sem gengur ár eftir ár.
Vinsamlega athugið að farandsbikarar eru látnir skera sig út frá hefðbundnum bikurum, annað hvort hafðir stærri eða eitthvað óhefðbundið eins og t,d styttur.
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 27. - 28. ágúst 2011
13.7.2011 - Ritstjóri
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram helgina 27. - 28. ágúst 2011 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur föstudaginn 29. júlí 2011.
Vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum getum við því miður ekki tekið við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár. Hundaræktarfélagið er að láta búa til skráningarvef sem stenst kröfur kreditkortafyrirtækjanna en hann verður því miður ekki tilbúinn fyrir næstu sýningu.
Félagið hefur því ákveðið að taka á móti skráningum í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti, ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. Einnig er tekið á móti skráningum á hrfi@hrfi.is. Ath! Greiðslukortanúmer, gildistími & öryggisnúmer(3ja tölustafa númer aftan á kortinu) verður að fylgja skráningu. Félagsmenn geta eins og venjulega skráð á sýninguna á opnunartíma skrifstofu.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.
Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.
Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ sem sýna skal á haustsýningunni eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna.
Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
Keppni ungra sýnenda fer fram föstudaginn 26. ágúst.
Skráning fyrir unga sýnendur er í gegnum: hrfi@hrfi.is Senda þarf:
Nafn þátttkanda:
Kennitölu:
Heimilisfang:
Póstnúmer: Símanúmer:
Netfang: Greiðslukortanúmer, gildistími og öryggisnúmer verður að fylgja skráningu.
Mjög mikilvægt er að í "Subject" sé skráð: Ungir sýnendur - skráning á ágústsýningu.
Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
Dómarar að þessu sinni eru: Carlos-Fernandez Renau (Spánn), Jos De Cuyper (Belgía), Kornelija Butrimova (Litháen), Javier Sanchez (Spánn), Monique Van Brempt (Belgía), Per Iversen (Noregur).
Á þessari sýningu geta hundar fengið íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
Úrslit sýningar
24.6.2011 - Ritstjóri
Úrslit Júnísýningarinnar eru komin inn og hægt að sjá þau hér.
Við viljum þakka Dýrheimum innflutningsaðila Royal Canin hundafóðurs fyrir bikara til eignar fyrir BOB í öllum stærðum og litum og besta hvolpinn í öllum stærðum og litum.
Einnig viljum við þakka eftirfarandi sem gáfu farandsbikara á sýningunni:
Heljuheims ræktun sem gaf farands í pipar og salt dverg og Svörtum Risa Schnauzer
Versluninni Hundaheimur sem gaf farandsbikar í Hvítum dverg
Hundasnyrtistofunni Hundarvinir sem gaf farandsbikar í Svart og silfur Dverg og
Rosetops ræktun sem gaf farandsbikar í Svörtum Dverg.
kl.15.00 - Opin sýning hefst með dóm á svörtum dvergschnauzer - Dómari Sigríður Pétursdóttir.
kl..15.55 - Dvergschnauzer svartur/silfur
kl. 16.40 - Dvergschnauzer hvítur
kl.16.50 - Dvergschnauzer pipar &salt
kl.17.00 - Áætluð úrslit.
Eftir sýninguna verður farið í ratleik um svæðið, keppt í innkalli og fleira skemmtilegt fram að sameiginlegum kvöldmat, en stefnan er að hópurinn grilli saman og borði í samkomutjaldi sem verður uppsett á svæðinu og svo kvöldvaka í framhaldi af því. Vinsamlega athugið að aðeins um áætlun á dagskrá er að ræða, endilega mætið að minnsta kosti hálftíma fyrir áætlaðan tíma á svæðið.
Deildaviðburður 18.júní
6.6.2011 - Ritstjóri
Schnauzerdeild hefur ákveðið að samflétta fyrstu útilegu deildarinnar við opna útisýningu laugardaginn 18.júní að Ólafsvöllum á Skeiðunum (ca 15 mín frá Selfossi), dómari verður Frú Sigríður Pétursdóttir sem er viðurkenndur FCI dómari í tegundinni, heiðursfélagi HRFI ásamt því að hafa verið fyrsti schnauzer ræktandinn á Íslandi.
Keppt verður í hefðbundnum flokkum og eins freestyle flokki, en í freestyle flokki er hægt að mæta með þá hunda sem einhverja hluta vegna ekki er hægt að sýna á hefðbundinni sýningu (niðurrakaður, geldir o.s frv) og fá þeir hundar byggingadóm og er þetta einstakt tækifæri fyrir eigendur þeirra hunda að mæta með þá. En að öðruleiti verður sýninginn með hefðbundi sniði, allir fá skriflegan dóm, en enginn meistarastig verða hinsvegar gefin á þessari sýningu.
Sýningin verður undir berum himni ef veður leyfir, en við verðum líka með samkomutjald ef þörf er á að færa hana inn. Jafnframt verður ganni keppni ungra sýnenda, 10 ára og yngri og 10-17 ára og fá allir krakkar sem taka þátt viðurkenningaskjal og efstu sætin fá verðlaunapening, þannig að það er um að gera að fara að æfa sig :)
Hugmyndin er að grilla svo öll saman um kvöldið og vera með kvöldvöku eitthvað frammá nóttina og þeir sem vilja geta komið með tjöld og gist. Kamar verður á staðnum og er aðgangur að tjaldsvæðinu innifalið í skráningu á hundi. (Kamarinn verður komin uppá fimmtudegi, ef fólk vill koma á föstudegi og tjalda)
Ýmis afþreying verður fyrir alla fjölskylduna, svosem ratleikur og fleira skemmtilegt sem nánar verður auglýst síðar. Frábært tækifæri til að eiga góða helgi með fjölskyldu og hundum og flott umhverfisþjálfun fyrir alla hunda.
.
Skráningagjöld:
Ungir sýnendur: 500 kr (tveir flokkar, 10 ára og yngri og 10-17 ára, allir þáttakendur fá viðurkenningaskjal)
Hvolpaflokkur: 1000 kr á hund (allir hvolpar sem mæta fá viðurkenningaskjal frá deildinni)
Ungliða/unghunda/opinn/meistaraflokkur/freestyle: 2000 kr á hund
Skrái sami eigandi fleiri en tvo hunda á fullu verði (2000kr) er gefinn helmingsafsláttur af skráningargjaldi þriðja, fjórða...o.s.frv
Þeir sem aðeins koma og tjalda (skrá engan hund), borga 2000 kr fyrir tjaldsvæðið yfir helgina á fjölskyldu.
.
Skráning:
Klara í síma 845-0009(rosetopps@gmail.com) eða Fríður Esther í síma 846-8171(esther@midja.is). Greiðsla þarf að koma inná reikning deildarinnar fyrir 8.júní til að skráning teljist gild.
Bankanúmer 0101-26-100308 kt.601109-0930 (setjið nafn á skráðum eiganda hunds/hunda í athugasemd með greiðslu)
Video af sýningunni
1.6.2011 - Ritstjóri
Kristinn hjá 3ernir ehf mun vera við hring 1 á laugardaginn að taka upp sýninguna. Hann verðru einnig að taka upp úrslitin báða dagana og unga sýnendur á föstudeginum.
Ef þið hafið áhuga á að eiga video af Schnauzernum endilega hafið samband við Kristinn í e-mail 3ernir@internet.is eða síma 866-0839
Verðinu er stillt í algjörlegt hóf og kostar ákveðin tegund í hring 1 aðeins 2700kr. Úrslit annan daginn kostar einnig 2700kr.
Endilega nýtið ykkur þetta frábæra tækifæri.
Dagskrá Sýningar - ATH breytt dagskrá
23.5.2011 - Ritstjóri
Schnauzerinn er sýndur á laugardeginum 4 júní í hring 1.
Svend Lövenkjær verður dómari tegundanna.
Sýningarþjálfun Schnauzerdeildarinnar verður þrjá Miðvikudaga fram að sýningu.
Fyrsta sýningarþjálfunin verður Miðvikudaginn 11 maí í húsnæði Gæludýr.is í Korputorgi kl 20:00 til 21:00
Næstu verða 25 maí og seinasta verður miðvikudaginn 1 Júní.
Skiptið kostar 500kr.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningu HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokum, nammi og sýningartaum.
ATH að það er EKKI sýningarþjálfun miðvikudaginn 18 maí vegna aðalfundar HRFÍ.
Finn Boserup frá Danmörku mun augnskoða hunda í Reiðhöllinni í Víðidal 4. og 5. júní nk. Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður.
Augnskoðun hunda kostar 5.720 fyrir virka félagsmenn. Hundaeigendur, sem ekki eru félagsmenn í HRFÍ, en með hunda í ættbók HRFÍ, geta skráð sig í augnskoðun gegn hærra gjaldi þ.e. kr. 11.440. Hundar virkra félagsmanna ganga fyrir í augnskoðun.
Það er skylda að augnskoða Dvergschnauzer fyrir pörun og má augnvottorð ekki vera eldra en 18 mánaða við pörun.
Einnig mælir deildin með að Risaschnauzerinn sé augnskoðaður fyrir pörun.
Úr lögum HRFÍ
•Áður en hundur er augnskoðaður, mjaðma- og/eða olnbogamyndaður, skal hann örmerktur (húðflúr).
•Auk þess skulu hundar sem taka þátt í viðburðum á vegum félagsins t.d. sýningum, veiði- hlýðni og sporaprófum svo og skapgerðarmati, einnig vera örmerktir (húðflúr).
•Þetta ákvæði gildir fyrir alla hunda, óháð fæðingardegi.
•Sé þetta ákvæði ekki uppfyllt
Viltu gefa farandbikar?
6.5.2011 - Ristjóri
Stjórn deildarinnar hefur verið að reyna að koma upp farandsbikurum fyrir allar stærðir og liti á sýningum HRFI og erum við komin með sett fyrir flest allar sýningar félagsins nema júnísýninguna.
Því leitum við til félagsmanna núna og óskum eftir að ef það er einhver þarna sem hefur áhuga á að gefa bikar fyrir næstu sýningu sem mun ganga áfram næstu ár og skrásetja söguna.
Endilega ekki hika við að hafa samband við Ragnhildi í tölvupóst ragga(at)schnauzerdeild.com og tilgreini hvaða stærð og hvaða lit þið óskið eftir að gefa farandbikar í. Farandbikar er fín auglýsing fyrir ræktendur og/eða fyrirtæki sem gengur ár eftir ár.
Vinsamlega athugið að farandsbikarar eru látnir skera sig út frá hefðbundnum bikurum, annað hvort hafðir stærri eða eitthvað óhefðbundið eins og t,d styttur.
Velheppnuð Páskaganga
29.4.2011 - Ritstjóri
Föstudaginn Langa var árleg páskaganga Schnauzerdeildarinnar í sólheimakoti ásamt páskaeggjaleit fyrir krakkana.
Fengum mjög gott veður og var mætingin hreint frábær. Um 60-70 manns mættu og áttu með okkur glaðan dag.
Og að þessu sinni tóku 26 börn þátt í páskeggjaleit deildarinnar
Fleiri myndir eru að finna á facebook síður deildarinnar.
Aðalfundurinn
28.4.2011 - Ritstjóri
Aðalfundur Schnauzerdeildarinnar var haldin mánudaginn 18 apríl. Tvö sæti voru laus til kosningar og bauð Margrét Kjartansdóttir sig aftur fram ásamt Klöru Hafsteinsdóttir, þar sem engin mótframboð bárust voru þær sjálfkjörnar í stjórn og óskum við Klöru velkomna í stjórn deildarinnar. Sigrún Valdimarsdóttir bauð sig ekki fram og þökkum við henni fyrir vel unnin störf í stjórn deildarinnar.
Stigahæsti sýningarhundur, stigahæsti vinnuhundur og stigahæsti ræktandi deildarinnar voru heiðraðir með farandbikurum frá deildinni.
Eigendur stigahæsta hunds deildarinnar, Merkurlautar Ísars, taka hér við farandbikar frá deildinni frá formanni deildarinnar
Stigahæsta ræktanda deildarinnar, Helguhlíðaræktun, afhendur faranbikarinn.
Því miður var enginn til að taka við bikar fyrir stigahæsta vinnuhund deildarinnar, Bláklukku Bjart Tómars.
Árlega páskaganga deildarinnar
19.4.2011 - Ritstjóri
Þann 22.apríl næstkomandi eða föstudaginn langa ætlum við schnauzerfólk að gera okkur glaðan dag uppí Sólheimakoti. Hugmyndin er að byrja kl.14.00 með léttri göngu um svæðið og eftir gönguna ætlum við að vera með eggjaleit í kringum kotið. Það verður búið að fela nokkur harðsoðin egg fyrir krakkana að leita að og meðan geta foreldrarnir fengið sér kaffisopa inn í kotinu. Eftir eggjaleitina fá allir krakkarnir lítið páskaegg að gjöf frá deildinni og sá aðili sem finnur flest egg fær stærra páskaegg í verðlaun.
Frábært tækifæri fyrir fjölskyldur að eyða hluta af deginum saman með hundinn sinn með. Hlökkum til að sjá sem flesta. Leiðalýsing að Sólheimakoti.
Aðalfundur Schnauzerdeildarinnar
22.3.2011 - Ritstjóri
Aðalfundur Schnauzerdeildarinnar verður mánudaginn 18 apríl kl 20:00 á skrifstofu HRFÍ í Síðumúla 15, annari hæð.
Dagskrá fundar:
1. Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2010-2011
2. Kosning til stjórnar (kosið er um 2 sæti)
Ræktunarstjórn er skipuð 5 félagsmönnum, sem kosnir eru til 2ja ára í senn. Nú er kosið um 2 sæti. Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.
3. Önnur mál
Augnskoðun og fyrirlestur
17.3.2011 - Ritstjóri
Finn Boserup og Susanne Kaarsholm frá Danmörku munu augnskoða hunda í Sólheimakoti og á Akureyri 25.-26. mars. Jafnframt munu dýralæknarnir halda fyrirlestur fyrir félagsmenn sunnudaginn 27. mars. Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.720.- fyrir hund og er aðeins fyrir virka félagsmenn í HRFÍ.
Síðasti skráningardagur er á morgun, föstudaginn 18. mars.
Mikilvægt er að skrá sig á fyrirlesturinn til þess að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir varðandi húsnæði. Fyrirlesturinn er eingöngu fyrir félagsmenn HRFÍ.
Föstudaginn 25. mars - Susanne Kaarsholm augnskoðar hunda í Sólheimakoti frá kl.9:00 og Finn Boserup augnskoðar hunda á Akureyri frá kl.9:45. Augnskoðunin á Akureyri fer fram hjá Dýralæknaþjónustu Eyjafjarðar, Dýrey, sjá vefsíðu: http://www.dyrey.is, Perlugata 11, Kaupangur v. Mýrarveg.
Laugardaginn 26. mars - Báðir dýralæknarnir augnskoða hunda í Sólheimakoti frá kl.9:00.
Sunnudaginn 27. mars - FYRIRLESTUR
Susanne Kaarsholm og Finn Boserup halda fyrirlestur fyrir félagsmenn HRFÍ sunnudaginn 27. mars kl. 17:00, staðsetning verður auglýst síðar.
Dýralæknarnir munu m.a. fjalla um uppbyggingu augans (eye anatomy), PRA og arfgengni þess. Eftir fyrirlesturinn svara þau spurningum félagsmanna. Félagsmenn geta sent þeim fyrirspurnir á ensku eða dönsku fyrir fyrirlesturinn, vinsamlegast sendið fyrirspurnina á vala@hrfi.is.
Það er skylda hjá fjölmörgum hundategundum að niðurstaða augnskoðunar liggi fyrir hjá undaneldisdýrum fyrir pörun. Vinsamlegast kynnið ykkur sérreglur ræktundardeilda fyrir „ykkar" hundategund.
ATH: Dverg schnauzer þarf að hafa gilt augnvottorð fyrir pörun, sem má ekki vera eldra en 18 mánaða.
Dýralæknirinn augnskoðar hunda með tilliti til arfgengra sjúkdóma sem finnast í fjölmörgum hundategundum.
Úr lögum HRFÍ
•Áður en hundur er augnskoðaður, mjaðma- og/eða olnbogamyndaður, skal hann örmerktur (húðflúr).
•Auk þess skulu hundar sem taka þátt í viðburðum á vegum félagsins t.d. sýningum, veiði- hlýðni og sporaprófum svo og skapgerðarmati, einnig vera örmerktir (húðflúr).
•Þetta ákvæði gildir fyrir alla hunda, óháð fæðingardegi.
•Sé þetta ákvæði ekki uppfyllt hefur hundur, ekki rétt til þátttöku.
(Gildir frá 1. janúar 2004).
Aðalfundi frestað vegna veðurs
14.3.2011 - Ritstjóri
Áður auglýstum aðalfundi schnauzerdeildar sem halda átti í kvöld, mánudaginn 14.mars að skrifstofu HRFI Síðumúla 15 hefur verið frestað vegna stormviðvörunar í óákveðinn tíma.
Stjórnin.
DVD diskur - Alþjóðleg hundasýning HRFÍ
9.3.2011 - Ritstjóri
Keppni Ungra sýnenda og úrslit laugardags og sunnudags fáanleg á DVD diski hjá 3ernir ehf.
Diskurinn kostar 2.500kr, þ.e.a.s. keppni ungra sýnenda og hinsvegar úrslitin á 2.500kr. (úrslit báða dagana innifalið.)
Hægt er að panta dvd diskana á 3ernir@internet.is allar nánari upplýsingar veitir Kristinn, sími: 866-0839 eða 3ernir@internet.is.
Úrslit Deildarsýningar
9.3.2011 - Ritstjóri
Við viljum þakka Dýrheimum innflutningsaðila Royal Canin hundafóðurs kærlega fyrir eignabikara fyrir BOB og besta hvolpinn í öllum stærðum og litum.
Garðheimum fyrir aðstöðuna og frábæra þjónustu og liðleg heit í alla staði.
Og að lokum Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Nóa Síríus fyrir gos og konfekt handa dómurum og starfsfólki sýningar.
Og Schnauzerdeildin gaf BIS bikarar 1-4, BIS junior og BIS hvolpar yngri og eldri
Sérsýning laugardaginn 5 mars 2011
Dómari: Walter Schicker frá Þýskalandi 5 mars 2011
Besti hundur sýningar 1. sæti
Helguhlíðar Óskadís Dvergschnauzer svart og silfur
Eigandi: Margrét Kjartansdóttir
Ræktandi: Margrét Kjartansdóttir
Besti hundur sýningar 3. sæti
Svartskegggs Black Pearl Risaschnauzer svartur
Eigandi: Ragnhildur Gísladóttir
Ræktandi: Fríður Esther Pétursdóttir
Besti hundur sýningar 4. sæti
Silfurskugga Capone white Boss Dvergschnauzer hvítur
Eigandi: Fríður Esther Pétursdóttir
Ræktandi: Marta Gylfadóttir
Besti ungliði sýningar 1. sæti
Svartwalds Bright 'n' Shiny future Dvergschnauzer svartur
Eigandi: María Björg Tamimi og Líney Björk Ívarsdóttir
Ræktandi: María Björg Tamimi og Elis Veigar Ingibergsson
Besti hvolpur Sýningar 4-6 mánaða 1. sæti
Svarthöfða Angus Young Dvergschnauzer svartur
Eigandi: Gróa Sturludóttir
Ræktandi: Anna D. Hermandsóttir
Besti hvolpur Sýningar 4-6 mánaða 2. sæti
Black Standard Addicdet to love Schnauzer svartur
Eigandi: Sigrún Valdimarsdóttir
Ræktandi: Sigrún Valdimarsdóttir
Besti hvolpur Sýningar 6-9 mánaða 2. sæti
Icenice Erpur Dvergschnauzer Svartur
Eigandi: Gunnar Gunnarsson
Ræktandi: Rakel Rán Guðjónsdóttir
Besti hvolpur Sýningar 6-9 mánaða 3. sæti
Svarskeggs Marilyn salt Monro Dvergschnauzer salt og pipar
Eigandi: Fríður Esther Pétursdóttir
Ræktandi: Fríður Esther Pétursdóttir
Besta Par Sýningar 1. sæti Dvergschnauzer svartur
Svartwalds Bright 'n' Shiny future og Barba Nigra Miss Sunshine
Besta Par Sýningar 2. sæti Dvergschnauzer hvítur
Silfurskugga Capone white Boss og Made in ICeland White Volcano Rise
Besta Par Sýningar 3. sæti Dvergschnauzer pipar og salt
Wellingley Whats the game at Benare og Silfurskugga Querida ps Beloved
Besti ræktunarhópur sýningar 1. sæti Dvergschnauzer svart og silfur
Helguhlíðar ræktun
Sérsýning 6 mars 2011
Dómari Gisa Schicker frá Þýskalandi 6 mars 2011
Besti hundur sýningar 1. sæti
Svartwalds Bright 'n' Shiny future Dvergschnauzer svartur
Eigandi: María Björg Tamimi og Líney Björk Ívarsdóttir
Ræktandi: María Björg Tamimi og Elis Veigar Ingibergsson
Besti hundur sýningar 3. sæti
Helguhlíðar Óskadís Dvergschnauzer svart og silfur
Eigandi: Margrét Kjartansdóttir
Ræktandi: Margrét Kjartansdóttir
Besti hundur sýningar 4. sæti
Silfurskugga Capone white Boss Dvergschnauzer hvítur
Eigandi: Fríður Esther Pétursdóttir
Ræktandi: Marta Gylfadóttir
Besti ungliði sýningar 1. sæti
Svartwalds Bright 'n' Shiny future Dvergschnauzer svartur
Eigandi: María Björg Tamimi og Líney Björk Ívarsdóttir
Ræktandi: María Björg Tamimi og Elis Veigar Ingibergsson
Besti hvolpur Sýningar 4-6 mánaða 1. sæti
Black Standard About a boy Schnauzer svartur
Eigandi: Anna María Gunnarsdóttir
Ræktandi: Sigrún Valdimarsdóttir
Besti hvolpur Sýningar 4-6 mánaða 2. sæti
Svarthöfða Angus Young Dvergschnauzer svartur
Eigandi: Gróa Sturludóttir
Ræktandi: Anna D. Hermandsóttir
Besti hvolpur Sýningar 6-9 mánaða 2. sæti
Icenice Erpur Dvergschnauzer Svartur
Eigandi: Gunnar Gunnarsson
Ræktandi: Rakel Rán Guðjónsdóttir
Besti hvolpur Sýningar 6-9 mánaða 3. sæti
Svarskeggs Marilyn salt Monro Dvergschnauzer salt og pipar
Eigandi: Fríður Esther Pétursdóttir
Ræktandi: Fríður Esther Pétursdóttir
Besta Par Sýningar 1. sæti Dvergschnauzer svartur
Svartwalds Bright 'n' Shiny future og Barba Nigra Miss Sunshine
Besta Par Sýningar 2. sæti Dvergschnauzer svart og silfur
Gabríel frá Ólafsvöllum og Freydís frá Ólafsvöllum
Besti ræktunarhópur sýningar 1. sæti Dvergschnauzer svart og silfur
Helguhlíðar ræktun
Ítarleg úrslit tvöföldu deildarsýninganna eru komin inn og hægt að sjá úrslit laugardagsins hér og myndir hér. Úrslit sunnudagsins má sjá hér og myndir hér.
Aðalfundur Schnauzerdeildarinnar
8.3.2011 - Ritstjóri
Aðalfundur Schnauzerdeildarinnar verður mánudaginn 14 mars kl 20:00 á skrifstofu HRFÍ í Síðumúla 15, annari hæð.
Dagskrá fundar:
1. Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2010-2011
2. Kosning til stjórnar (kosið er um 2 sæti)
Ræktunarstjórn er skipuð 5 félagsmönnum, sem kosnir eru til 2ja ára í senn. Nú er kosið um 2 sæti. Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.
3. Önnur mál
Dagskrá deildarsýningar!
5.3.2011 - Ritstjór
Smá ruglingur varð á dagskrá deildarsýningarinnar á laugardeginum. Hérna kemur rétt dagskrá. Við biðjumst velvirðingar á þessum ruglingi.
Vinsamlega mætið hálftíma fyrir áætlaðan tíma, sýninganúmer og sýningaskrá verða afhent á staðnum.
Á tvöfaldri afmælissýningu Schnauzerdeildarinnar næstu helgi í Garðheimum verður keppt í Ungliði Sýningar (Junior winner), parakeppni, ræktunarhópur og afkvæmahópur sýningar, báða dagana.
Dagskrá í Úrslitum
Laugardagur:
Mæting eigi síðar en 16:30
Besti hvolpur sýningar yngri flokkur
Besti hvolpur sýningar eldri flokkur
Besta Par sýningar
Besti afkvæmahópur sýningar
Besti Ræktunarhópur sýningar
Besti Ungliði Sýningar
Besti hundur sýningar
Sunnudagur:
Mæting eigi síðar en 15:30
Besti hvolpur sýningar yngri flokkur
Besti hvolpur sýningar eldri flokkur
Besta Par sýningar
Besti afkvæmahópur sýningar
Besti Ræktunarhópur sýningar
Besti Ungliði Sýningar
Besti hundur sýningar
Í keppni um Ungliða sýningar mæta þeir ungliðar sem unnið hafa ungliða sinnar tegundar.
Ungliða rakkinn sem hlýtur fyrsta sæti í ungliðaflokk, keppir við Ungliða tíkina sem fékk fyrsta sæti í ungliðaflokk strax á eftir BOB/BOS úrslitum í tegundinni.
Það kynið sem vinnur keppir svo við hina ungliða sem unnu sína tegund í úrslitum sýningarinnar.
Athygli er vakin á því að titillinn "Ungliði Sýningar" fæst ekki færður í ættbók. Þetta er einungis til skemmtunar gert!
Eiganda Ungliði tegundar og Ungliði Sýningar sem að sjálfsögu samt sem áður frjálst að titla hund sinn á heimasíðu viðkomandi sem "ungliði Sýningar Schnauzerdeildar"
Í parakeppni eru rakki og tík af sömu tegund, í eigu sama aðila, sýnd saman. Hundarnir verða að vera eldri en 9 mánaða á sýningardaginn. Besta par tegundar með
heiðursverðlaun keppir til úrslita um besta par sýningar.
Í keppni um afkvæmahóp sýningar hefur tík/rakki með þrjú til fimm afkvæmi. Afkvæmin
verða að vera skráð til þátttöku og sýnd í öðrum flokkum sýningar, þó ekki í
hvolpaflokkum. Sama gildir um undaneldistík/rakka sem verða að vera skráð til þátttöku og sýnd í öðrum flokkum sýningar.
Afkvæmin og undaneldishundar mega ekki hljóta einkunnina 0 eða Ekki hægt að dæma.
Aðeins má sýna undaneldisrakkann/tíkina með einn afkvæmahóp á viðkomandi sýningu.
Afkvæmin verða að vera af sömu stærð og hafa sama feldlag.
Eigandi/sýnandi undaneldishunds/tíkur velur sjálfur þau afkvæmi sem hann vill sýna í afkvæmahópi. Sýnandi afkvæmahóps skal tímalega tilkynna hringstjóra hvaða afkvæmi
hann hefur valið og gera eigendum þeirra viðvart í tíma.
Besti afkvæmahópur tegundar með Heiðursverðlaun keppir til úrslita um Besta
afkvæmahóp sýningar.
Í keppi í Ræktunarhóp. Ræktunarhópur samanstendur af þremur til fimm hundum af sömu tegund frá einum og sama ræktanda (með sama ræktunarnafn).
Hundarnir verða að vera af sama stærðarflokki og hafa sama feldlag og lit, þar sem það skiptir máli, og vera skráðir til þátttöku í öðrum flokkum sýningar, þó ekki í
hvolpaflokkum. Hundarnir mega ekki hljóta 0 í einkunn eða Ekki hægt að dæma.
Ræktandi skal gera eigendum hunda sem hann hefur valið að sýna í ræktunarhópi viðvartí tíma. Ræktandi skal tilkynna tímalega til hringstjóra hvaða hunda hann hefur valið.
Sýnanda/eiganda ber að sýna hund í ræktunarhópi, óski ræktandi þess.
Besti ræktunarhópur tegundar með Heiðursverðlaun keppir til úrslita um Besta
ræktunarhóp sýningar.
Vinsamlega mætið hálftíma fyrir áætlaðan tíma, sýninganúmer og sýningaskrá verða afhent á staðnum.
Viltu eiga fallega mynd af hundinum þínum?
1.3.2011 - Ritstjóri
Sýningarstjórn deildarsýninganna hefur fengið ljósmyndara með sér í lið.
Ljósmyndarinn er Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir áhugaljósmyndari. Hún mun vera með lítið studió í Garðheimum nálægt sýningarsvæðinu.
Verð fyrir stúdíómyndir:
1500 kr - 2 myndir í fullri upplausn, sendar á viðkomandi með netpósti, 1 stand-mynd og 1 andlitsmynd
1500 kr - 1 mynd í 13x18 útprentuð, send í pósti til viðkomandi, max viku eftir sýningu.
Tilboð:
1000 kr - 1 barn + 1 hundur - andlitsmynd af þeim saman, sent með netpósti í fullri upplausn.
Þeir sem vilja fá fallega mynd af hundinum sínum geta pantað myndartöku hjá Sóley í e-mail soleyosks@gmail.com. En einnig er hægt að koma á staðinn og fá pantaða myndatöku.
Sóley Ósk er með Facebook síðu þar sem hægt er að sjá myndir sem hún hefur tekið.
Augnskoðun í Reykjavík og á Akureyri 25.-26. mars
17.2.2011 - Ritstjóri
Finn Boserup og Susanne Kaarsholm frá Danmörku munu augnskoða hunda í Sólheimakoti og á Akureyri 25.-26. mars. Jafnframt munu dýralæknarnir halda fyrirlestur fyrir félagsmenn sunnudaginn 27. mars. Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.720.- fyrir hund og er aðeins fyrir virka félagsmenn í HRFÍ.
Mikilvægt er að skrá sig á fyrirlesturinn til þess að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir varðandi húsnæði. Fyrirlesturinn er eingöngu fyrir félagsmenn HRFÍ.
Föstudaginn 25. mars - Susanne Kaarsholm augnskoðar hunda í Sólheimakoti frá kl.9:00 og Finn Boserup augnskoðar hunda á Akureyri frá kl.9:45. Augnskoðunin á Akureyri fer fram hjá Dýralæknaþjónustu Eyjafjarðar, Dýrey, sjá vefsíðu: http://www.dyrey.is, Perlugata 11, Kaupangur v. Mýrarveg.
Laugardaginn 26. mars - Báðir dýralæknarnir augnskoða hunda í Sólheimakoti frá kl.9:00.
Sunnudaginn 27. mars - FYRIRLESTUR
Susanne Kaarsholm og Finn Boserup halda fyrirlestur fyrir félagsmenn HRFÍ sunnudaginn 27. mars kl. 17:00, staðsetning verður auglýst síðar.
Dýralæknarnir munu m.a. fjalla um uppbyggingu augans (eye anatomy), PRA og arfgengni þess. Eftir fyrirlesturinn svara þau spurningum félagsmanna. Félagsmenn geta sent þeim fyrirspurnir á ensku eða dönsku fyrir fyrirlesturinn, vinsamlegast sendið fyrirspurnina á vala@hrfi.is.
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 18. mars.
Það er skylda hjá fjölmörgum hundategundum að niðurstaða augnskoðunar liggi fyrir hjá undaneldisdýrum fyrir pörun. Vinsamlegast kynnið ykkur sérreglur ræktundardeilda fyrir „ykkar" hundategund.
Dýralæknirinn augnskoðar hunda með tilliti til arfgengra sjúkdóma sem finnast í fjölmörgum hundategundum.
Úr lögum HRFÍ
•Áður en hundur er augnskoðaður, mjaðma- og/eða olnbogamyndaður, skal hann örmerktur (húðflúr).
•Auk þess skulu hundar sem taka þátt í viðburðum á vegum félagsins t.d. sýningum, veiði- hlýðni og sporaprófum svo og skapgerðarmati, einnig vera örmerktir (húðflúr).
•Þetta ákvæði gildir fyrir alla hunda, óháð fæðingardegi.
•Sé þetta ákvæði ekki uppfyllt hefur hundur, ekki rétt til þátttöku.
(Gildir frá 1. janúar 2004).
ATH: Dverg schnauzer þarf að hafa gilt augnvottorð fyrir pörun, sem má ekki vera eldra en 18 mánaða.
Dagskrá Sýningar
17.2.2011 - Ritstjóri
Schnauzerinn er sýndur á lugardeginum 26 febrúar. Hringur 1
Dómar: Birgit Seloy
Á sunnudagskvöldið eftir deildarsýningarnar er hugmyndin að félagsmenn úr Schnauzer, Am.cocker og Cavalierdeild, sem hafa áhuga, hittist og geri sér glaðan dag eftir velheppnaða sýningahelgi.
Stefnan er sett á veitingastaðinn Nítjánda í Turninum Smáratorgi en á Nítjánda færðu brot af því besta í matargerð fjölmargra landa, frá Singapore, Indlandi, Ítalíu, Frakklandi, Malasíu og Japan svo fátt eitt sé nefnt. Yfir tuttugu réttir eru á gómsætu hlaðborðinu þar sem meðal annars má finna sushi, heilsteikta nautasteik og ótrúlegt úrval franskra og ítalskra eftirrétta. Verð fyrir okkur er kr.3950.- á mann og er mæting kl.19.30.
Fyrir þá sem hafa áhuga er þetta einstakt tækifæri til að setjast niður með dómurunum og spjalla.
Skrá sig þarf í matinn fyrir miðvikudaginn 2.mars hjá eftirfarandi aðilum, (athugið að það er ekki ótakmarkað pláss svo endilega skrá sig fyrr en seinna)
ATH SKRÁNINGARFRESTUR HEFUR VERIÐ FRAMLENDUR TIL ÞRIÐJUDAGINS 15 FEBRÚAR!!
Hægt er að skrá á sýninguna með því að hringja á skrifstofu HRFÍ í síma 5885255. Á mánudaginn 14 febrúar er opið frá 09:00 til 13:00 og þriðjudaginn 15 febrúar er skrifstofan opin frá 11:00 til 15:00.
Mjög einfalt og fljótlegt er að skrá. Eina sem þarf að hafa við höndina er ættbókarnafn hundsins og kreditkortanúmer.
Sýningarþjálfun
3.2.2011 - Ritstjóri
Sýningarþjálfun Schnauzerdeildarinnar verður þrjá laugardaga fram að sýningu.
Fyrsta sýningarþjálfunin verður laugardaginn 5 febrúar í húsnæði Gæludýr.is í Korputorgi kl 17:00 til 18:00
Næstu verða 12 febrúar og seinasta verður laugardaginn 19 febrúar.
Skiptið kostar 500kr.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningu HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokum, nammi og sýningartaum.
Ganga
3.2.2011 - Ritstjóri
Næsta ganga Schnauzerdeildarinnar verður næsta sunnudag, 6 febrúar kl 15:00 við Rauðavatn.
Gengið verður frá bílastæðinu fyrir ofan Rauðavatn og gengið niður í Paradísardal.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Fyrir hönd Göngunefndar.
Ragga og Sigrún
Breyting á heilsufarskröfum
18.1.2011 - Ritstjóri
Á stjórnarfundi Hundaræktarfélags Íslands þann 12. janúar 2011 var eftirfarandi erindi stjórnar Schnauzerdeildar samþykkt og tekur gildi 1. apríl 2011:
Dvergschnauzer Greinist hundur með staðfesta arfgenga starblindu (cataract) skal hann skráður í ræktunarbann. (Gildir frá 1. apríl 2011).
Skráningarfrestur rennur út 28 jan.!
18.1.2011 - ritstjóri
Alþjóðleg hundasýning verður 26-27 febrúar 2011.
Skráningarfrestur rennur út 28 janúar.
Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ í síma 5885255.
Vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum getum við því miður ekki tekið við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár.
Vegna breytinga verður síminn á skrifstofu HRFÍ opinn frá kl.10:00-17:00 alla daga fram að síðasta skráningadegi. Síðasta skráningardaginn, föstudaginn 28. janúar verður síminn opinn frá kl.9:00-13:00. Félagsmenn geta eins og venjulega skráð á sýninguna á opnunartíma skrifstofu.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst. Athygli er vakin á því að ekki er hægt að skrá eftir klukkan 13:00 föstudaginn 28 janúar!!
Í gagnagrunni deildarinnar eru að finna allar helstu upplýsingar sem þarf til skráningar eins og Ættbókarnafn, fæðingardag og ættbókarnr.
Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir hafa ákveðið að fara aftur af stað með sýnendanámskeið þar sem áhersla er lögð á sýnandann sjálfan og hvernig hann ber sig að í sýningarhringnum.
Báðar hafa þær sýnt hunda með frábærum árangri frá unga aldri ásamt því að þjálfa börn, unglinga og fullorðna fyrir sýningar HRFÍ.
Byrjendanámskeið: Sunnudagur 23. janúar kl. 16-18 og mánudagur 24. janúar kl. 19-21
Byrjendanámskeið: Mánudagur 31. janúar kl. 19-21 og miðvikudagur 1. febrúar kl. 19-21
Framhaldsnámskeið (fyrir þá sem hafa lokið byrjendanámskeiði hjá okkur): Mánudagur 14. febrúar kl. 19-21 og miðvikudagur 16. febrúar kl. 19-21
Byrjendanámskeið: 7.500 kr.
Framhaldsnámskeið: 6.500 kr. Námskeiðin fara fram tvö kvöld í 2 klst. í húsnæði Gæludýr.is á Korputorgi.
Skráning fer fram á synendanamskeid@gmail.com. Í skráningunni þarf að koma fram nafn, hundategund, símanúmer og á hvaða námskeið viðkomandi vill skrá sig.
Þær eru með Facebook grúbbu sem heitir "Viltu verða góður/betri sýnandi".
Deildasýningar helgina 5-6 mars 2011
17.1.2011 - Ritstjóri
Í tilefni af 5 ára afmæli Schnauzerdeildar í mars á þessu ári, mun Schnauzerdeild í samvinnu við Cavalier og Ameriskan Cocker spanieldeild standa fyrir fjórum deildasýningum helgina 5-6 mars 2011 í Garðheimum. Höfum við fengið til liðs við okkur þýsku dómarahjónin Gisa og Walter Schicker en bæði eru þau sérfræðingar í schnauzer og eins er Gisa sérfræðingur í Cavalier og Walter í Amerískum cocker spaniel. Eru þau mjög virtir dómarar í sýnu heimalandi og eins á alþjóðlegan mælikvarða. Íslensk meistarastig verða í boði á öllum sýningunum.
Dagskrá helgarinnar.
Laugardagur:
kl.10.00 – Cavalierdeildasýning, dómari Gisa Schicker
Eftir hádegi – Schnauzerdeildasýning, dómari Walter Schicker
Sunnudagur :
kl.10.00 – Amerískur Cocker Spaniel deildasýning, dómari Walter Schicker
Eftir hádegi - Schnauzerdeildasýning, dómari Gisa Schicker
Nánari dagskrá kemur eftir að skráningu líkur, en bendum við schnauzer fólki á að ef það skráir báða dagana er 50% afsláttur af skráningagjaldi seinni daginn. Skrái sami eigandi fleiri en tvo hunda er gefin helmingsafsláttur af skráningajaldi þriðja, fjórða og svo framvegis.
Hægt er að byrja að skrá á sýninguna mánudaginn 31.janúar og er skráningafrestur til 11.febrúar, en vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum getum HRFI því miður ekki tekið við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár og hefur félagið því ákveðið að taka á móti skráningum í gegnum síma á opnunartíma skrifstofu þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkort . Sími HRFI er 588 5255 og opnunartími er mánudaga og föstudaga kl. 9-13 og þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11 – 15.
Vonumst við að sjá sem flesta á sýningunni, en fyrir þá sem eru með feldhunda er gríðalega mikilvægt að fá tækifæri til að nota snyrtinguna á fleiri en einni sýningu og vonum við að okkar fólk stökkvi á það tækifæri.
Smáhundadagar í Garðheimum og Kynningarbás
14.1.2011 - Ritstjóri
Schnauzerdeildin ætlar að vera með á bás á smáhund-dögum í Garðheimum helgina 12-13 febrúar og kynningarbás á febrúar sýningur HRFÍ helgina 26-27 febrúar og leitar því nú að fólki og hundum til að vera á kynningarbás.
Öllum er velkomið að vera með hvort sem fólk er skráð í deildina eða ekki og einu skilyrðin sem þarf að uppfylla er glaðlegt viðmót hunds og eiganda. Það er engin krafa um að hundurinn sé í "sýningarfeld". Loðnir og niðurrakaðir hundar eru að sjálfsögðu velkomnir til að geta verið á kynningarbás.
Kynningin í Garðheimum er frá kl 12-17:00 báða dagana og æskilegt að fólk mæti ca hálftíma fyrr og leitum við að dverg schnauzerum til að vera á bás í Garðheimum en leitum að öllum stærðum til að vera á bás á HRFÍ sýningunni.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Önnu Björk í e-mail annabjork(hjá)vatnsendaskoli.is fyrir 9 febrúar fyrir Smáhundadagana og 22 febrúar fyrir febrúar sýninguna.
Vinsamlegast takið fram hvaða tími hentar best og hvort þið viljið vera báða dagana eða annann daginn.
Tímabundin breyting á skráningu
10.1.2011 - Ritstjóri
Alþjóðlega hundasýningu HRFÍ 26. – 27. febrúar 2011
Vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum getum við því miður ekki tekið við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár. Hundaræktarfélagið er að láta búa til skráningarvef sem stenst kröfur kreditkortafyrirtækjanna en hann verður því miður ekki tilbúinn fyrir næstu sýningu.
Félagið hefur því ákveðið að taka á móti skráningum í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti.
Vegna ofangreindra breytinga verður síminn á skrifstofu HRFÍ opinn frá kl.10:00-17:00 alla daga fram að síðasta skráningadegi. Síðasta skráningardaginn, föstudaginn 28. janúar verður síminn opinn frá kl.9:00-13:00. Félagsmenn geta eins og venjulega skráð á sýninguna á opnunartíma skrifstofu.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.
Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.
Skráning fyrir unga sýnendur er í gegnum: hrfi@hrfi.is Senda þarf:
Nafn þátttkanda:
Kennitölu:
Heimilisfang:
Símanúmer:
Netfang:
Greiðslukortanúmer verður að fylgja skráningu.
Mjög mikilvægt er að í "Subject" sé skráð: Ungir sýnendur - skráning á febrúarsýningu.
Margrét Kjartansdóttir og Guðbjörg Ólafsdóttir verða með snyrtinámskeiðið í Sólheimakoti 8-9 janúar 2011.
Námskeiðið verður skipt upp í 2 hluta, fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir.
Fyrri hlutinn verður laugardaginn 8 janúar og komast 12 manns á það námskeið.
Framhaldsnámskeiðið verður 9.janúar og komast allt að 16 manns á það námskeið.
Dagurinn kosta 8.000.- kr og ef fólk vill koma báða dagana, þá 12.000.- og byrja bæði námskeiðin kl 11:00
Nauðsynlegt er að hafa schnauzerhund til að snyrta á námskeiðinu og stefnan er sett á að allir ljúki að snyrta einn hund með aðstoð. Reikna með að það taki allan daginn, en þegar að fólk klárar sinn hund er því að sjálfsögðu velkomið að fara.
Fólk skal samt reikna með að þetta taki 4-5 klst og koma með léttan hádegismat með sér.
Skráning fer fram hjá Ragnhildi í e-mail ragga(hjá)schnauzerdeild.com
Lágmarksþáttaka á námskeiðin eru 6 manns, svo námskeiðin verði haldin.
Myndir fyrir deildarbás!
15.12.2010 - Ritstjóri
Við erum enn að leita að myndum fyrir nýtt útlit á deildarbásinn.
Okkur sárvantar myndir af Standar schnauzer bæði svörtum og salt og pipar.
Myndin verður að vera í mjög góðum gæðum og best að þær séu minnsta kosti 1600×1200 pixlar
Og eina skilyrðið er að Schnauzer sé í aðalhlutverki á myndinni. Leyfilegt er að senda inn fleiri en eina mynd.
Myndir(nar) má senda á ragga(hja)schnauzerdeild.com fyrir 1 febrúar 2011.
Ef engar myndir af Schnauzer berast fyrir þann tíma neyðumst við til að nota myndir af erlendum hundum, sem við viljum síður.
Með von um góðar viðtöku.
SÁMUR - MISTÖK Í TÖLVUVINNSLU
14.12.2010 - Ritstjóri
Vegna mistaka í tölvuvinnslu á félagaskrá HRFÍ hefur orðið ruglingur á nöfnum og heimilisföngum félagsmanna við dreifingu á Sámi.
Vinsamlegast greiðið greiðsluseðla ykkar í heimbanka . Einnig er hægt að fá senda gíróseðla frá skrifstofu.
Ekki þarf að endursenda Sám en þeir sem ekki fá blaðið eru beðnir að hafa samband við skrifstofu HRFÍ .
Ný félagsskírteini fylgja með næsta Sámi. Þeir sem þurfa að fá félagsskírteini fyrr eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu HRFÍ.
Félagsmenn HRFÍ eru beðnir velvirðingar á mistökunum.
Undaneldisrakkalisti og augnskoðun
10.12.2010 - Ritstjór
Á síðunni "Ræktun / Got" er kominn listi yfir undaneldisrakka.
Listinn er hugsaður til að hjálpa tíkareigendum að finna rakka á tíkurnar sínar fyrir pörun.
Á listanum eru bara þeir hundar sem standast kröfur HRFÍ fyrir undaneldi.
Ef þú vilt fá rakkann þinn skráðann á listann sendu þá e-mail á ragga(at)schnauzerdeild.com með eftirfarandi upplýsingum: Nafn hunds, upplýsingar um augnskoðun, nafn tengiliðs, símanrúmer, netfang, veffang, auk upplýsinga um hundinn sem skipta máli í ræktun, allt að 280 stöfum með bilum.
Enginn rakki fer á listann sjálfkrafa og beiðni verður að berast frá eiganda hundsins.
Einnig eru komnar inn allar eldri augnskoðanir á hunda.
Aðventuganga Schnauzerdeildarinnar verður sunnudaginn 5 desember í Guðmundarlundi kl 15:00
Eftir gönguna mun svo deildin bjóða uppá smákökur og heitt Kakó.
Munið að vera vel klædd. Og endilega mætið með jólasveinahúfurnar ;)
Guðmundarlundur
í nágrenni Elliðavatns.
- Farið er upp fyrir Kóra- og Þingahverfi í Kópavogi, af Vatnsendavegi um Þingmannaleið og upp með hesthúsahverfinu á Heimsenda KORT.
- Önnur leið er frá Breiðholtsbraut inn Vatnsendahvarf og Vatnsendaveg.
fyrir hönd göngunefndar
Ragnhildur (s: 8651945) og Sigrún (s: 8626969)
Úrslit sýningar
28.11.2010 - Ritstjóri
Úrslit Nóvembersýningar eru komin inn og hægt að sjá þau hér.
Í fyrsta skipti í sögu Schnauzers á Íslandi varð Schnauzer í fyrst sæti í Grúppu. En það var hundurinn Merkurlautar Ísar og viljum við óska eiganda hans til hamingju með þennan stórglæsilega árangur. En Merkurlautar Ísar varð með þessum árangri jafnframt stigahæsti hundurinn deildarinnar árið 2010.
Við viljum þakka Dýrheimum innflutningsaðila Royal Canin hundafóðurs fyrir bikara til eignar fyrir BOB í Svörtum, Hvítum og Pipar og salt dverg, Svörtum og Salt og pipar Standard og besta hvolpinn í öllum stærðum og litum.
Einnig viljum við þakka Swedetops ræktun sem gaf eignarbikar í Svart og Silfur Dverg, Versluninn Hundaheimur sem gaf farandsbikar í Salt og pipar dverg, Svarthöfða ræktun sem gaf farandbikar í Hvítum Dverg, Kolskeggs og Svartwalds ræktun sem gáfu farandbikar í Svörtum Dverg, Rosetops ræktun sem gaf farandbikar í Svart og silfur Dverg, Gistiheimilið Grái hundurinn sem gaf farandbikar í Salt og pipar Standard og Black Standard ræktun sem gaf farandbikar í Svörtum Standard.
Mánudagskvöldið 8.nóvember 2010 verður schnauzerdeild með opið hús í Sólheimakoti kl.20:00. Nanna Zophoniasdóttir hundanuddari ætlar að koma og kynna fyrir okkur hundanudd og jafnframt sýna okkur hvernig á að nudda hundana okkar, athugið að taka hundinn ykkar því endilega með.
Léttar veitingar verða á staðnum, 1000 kr aðgangseyrir, allar tegundir velkomnar.
Sýningarþjálfun
3.11.2010 - Ritstjóri
ATH BREYTTA DAGSETNINGU
Sýningarþjálfun fyrir Nóvembersýninguna kl 20:00 í Gusti Álalind
Schnauzerdeildin mun standa fyrir sýningarþjálfun í Gusti Álalind fimmtudagskvöldin 4 nóv. og 11 nóv. og miðvikudagskvöldið 17 nóv. frá kl 20:00 til 20:40.
Skiptið kostar 500kr.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningu HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokum, nammi og sýningartaum.
Augnskoðun 20.-21. nóvember 2010
2.11.2010 - Ritstjóri
Augnskoðun 20.-21. nóvember 2010
Dýralæknarnir Susanne Kaarsholm og Jens Kai Knudsen frá Danmörku augnskoða hunda í Reiðhöllinni í Víðidal dagana 20. og 21. nóvember, í tenglsum við alþjóðlega hundasýningu félagsins. Virkir félagsmenn geta látið skoða hundana eftir að þeir hafa verið sýndir.
Tímapantanir fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.720.- fyrir hund og er aðeins fyrir virka félagsmenn í HRFÍ.
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 12. nóvember.
Það er skylda að augnskoða Dverg Schnauzer fyrir pörun.
Greinist hundur með arfgenga vaxandi sjónurýrnun (PRA) fást hvolpar undan honum ekki ættbókarfærðir né afkvæmi hvolpa hans úr fyrri gotum og/eða fleiri afkvæmi foreldra hans.
Að auku mælir deildin með augnskoðun á Risa Schnauzer fyrir pörun.
Úr lögum HRFÍ
•Áður en hundur er augnskoðaður, mjaðma- og/eða olnbogamyndaður, skal hann örmerktur (húðflúr).
•Auk þess skulu hundar sem taka þátt í viðburðum á vegum félagsins t.d. sýningum, veiði- hlýðni og sporaprófum svo og skapgerðarmati, einnig vera örmerktir (húðflúr).
•Þetta ákvæði gildir fyrir alla hunda, óháð fæðingardegi.
•Sé þetta ákvæði ekki uppfyllt hefur hundur, ekki rétt til þátttöku.
(Gildir frá 1. janúar 2004).
Dagskrá Sýningar
2.11.2010 - Ritstjóri
Birt með fyrirvara um breytingar Hringur 1
Dómar: Wera Hübenthal
Næsta ganga deildarinnar verður Laugardaginn 30 Október. kl 15:00
Farið verður í taumgöngu um Leirvogin
Gengið verður frá bílastæðinu hjá ÓB bensínstöðunni við Barðastaði 3 í Grafarvogi og þaðan gengið niður með Úlfarsá og yfir brúna í átt að Mosó. Hundunum verður svo sleppt á leirvogstanga í smá tíma og gengið svo aftur til baka að bílunum.
Þetta er umþað bil 1 klukkustunda ganga.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Skráningarfrestur rennur út 22 okt!
19.10.2010 - Ritstjóri
Alþjóðleg hundasýning verður 20-21 nóvember. Á þessari sýningu getur hundur unnið Alþjóðlegt meistarastig (CACIB).
Skráningarfrestur rennur út 22 október. Hægt er að skrá á sýninguna hér
Nánari upplýsingar eru að finna hér
Í gagnagrunni deildarinnar eru að finna allar helstu upplýsingar sem þarf til skráningar eins og Ættbókarnafn, fæðingardag og ættbókarnr.
Á stjórnarfundi Hundaræktarfélags Íslands þann 13. október var beiðni deildarinnar samþykkt varðandi auknar ræktunarkröfur fyrir standard schnauzer. Reglan tekur gildi 1. janúar 2011.
Eftirfarandi verður sett inn í reglur sérdeilda varðandi undaneldisdýr í reglugerð um skráningu í ættbók HRFÍ:
Schnauzer:
Mjaðmamyndir: Undaneldisdýr skulu mynduð og niðurstaða kunn fyrir pörun. (Gildir frá 01.01.2011).
Myndir fyrir deildarbás
13.10.2010 - Ritstjóri
Verið er að vinna að nýju útliti fyrir tegundarbás Schnauzerdeildarinnar.
Og nú vantar okkur myndir af Schnauzerum, öllum stærðum og öllum litum.
Myndin verður að vera í mjög góðum gæðum og best að þær séu minnsta kosti 1600×1200 pixlar
Og eina skilyrðið er að Schnauzer sé í aðalhlutverki á myndinni. Leyfilegt er að senda inn fleiri en eina mynd.
Næsta ganga deildarinnar verður sunnudaginn 26 septermber. kl 14:00
Farið verður í taumgöngu um Elliðaárdalinn
Gengið verður frá bílastæðinu hjá Árbæjarsafninu og þaðan gengið niður í Elliðaárdalinn
Meistarar - ISCH Just for Merkurlaut Misurata bætt við
Nýliðadagur
8.9.2010 - Ritstjóri
Sunnudaginn 19.septemberer stefnan sett á að vera með fyrsta nýliðadag deildarinnar í Sólheimakoti.
Dagurinn byrjar kl.14.00 og meðal annars verður Líney Ívarsdóttir með kynningu á almennri feldumhirðu á schnauzerhundum,Margrét Kjartansdóttir verður með fyrirlestur um tjáningu hunda og þroska hvolpa, Ragnhildur Gísladóttir mun verða með stutta kynningu á skapgerðamati, Sporavinnu og Hlýðni, og hvolparnir fá að leika sér saman úti.
Nýliðadagurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem eiga hunda undir 1.árs (fullbólusetta) en allir sem eiga schnauzerhunda eru að sjálfsögðu velkomnir.Kaffi á könnunni.
Meistarar - ISCH Silfurskugga Griffin PS Flying High bætt við
Úrslit sýningar
4.9.2010 - Ritstjóri
Úrslit Ágústsýningar eru komin inn og hægt að sjá þau hér.
Við viljum þakka Dýrheimum innflutningsaðila Royal Canin hundafóðurs fyrir bikara til eignar fyrir BOB og besta hvolpinn í öllum litum.
Smáhundadagar í Garðheimum 11-12 September 2010
1.9.2010 - Ritstjóri
Schnauzerdeildin ætlar að vera með á smáhunda dögum í Garðheimum helgina 11-12 September og leitar því nú að fólki og hundum til að vera á kynningarbás.
Öllum er velkomið að vera með hvort sem fólk er skráð í deildina eða ekki og hundurinn þarf heldur ekki að vera í sýningarfeld til að geta verið á kynningarbás.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Önnu Björk í e-mail annabjork@vatnsendaskoli.is fyrir 8 september.
Vinsamlegast takið fram hvaða tími hentar best og hvort þið viljið vera báða dagana eða annann daginn.
Sýningarþjálfun ATH Breytt tímasetning.
20.8.2010 - Ritstjóri
ATH Breytt tímasetning
Næsta sýningarþjálfun Schnauzerdeildarinnar verður þriðjudaginn 24 ágúst kl 19:00 í reiðhöll Gusts Kópavogi.
Einnig verður ein útisýningarþjálfun Fimmtudaginn 26 ágúst kl 20:00 á bílastæðinu hjá Hagkaup í Holtagörðum.
Skiptið kostar 500kr.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningi HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokun, nammi og sýningartaum.
Dagskrá Sýningar
18.8.2010 - Ritstjóri
Schnauzerinn verður sýndur á sunnudeginum að þessu sinni á Alþjóðlegu sýningunni sem verður 28-29 ágúst.
Dómari að þessu sinni er Juha Putkonen frá Finnlandi.
Schnauzerinn verður í hring 1.
09:48 Dverg schauzer hv (7)
10:16 Dverg scnauzer p/s (5)
10:36 Dverg scnauzer sv (23)
12:08 Dverg scnauzer sv/si (23)
13:40 Schnauzer sv (1)
13:44 Schnauzer p/s (4)
Við minnum fólk á að mæta tímanlega þar sem dagskráin er bara áætlun og gæti hliðrast eitthvað. Gott er að vera mættur ca klukkutíma fyrir áætlaðann sýningartíma.
Og ekki gleyma vatni fyrir hundinn, sýningartaum, kúkapoka og sýningarnúmerinu.
Við viljum minna á að áhorfendur eiga að vera í áhorfendastúkunni og kostar 500kr inn.
Kynningarbás
10.8.2010 - Ritstjóri
Sæl Öllsömul
Stjórn Schnauzerdeildarinnar ákvað að hafa kynningarbás á næstu sýningu HRFÍ.
Við leitum nú af áhugasömu fólki til að vera á bás þessa tvo daga í ca 1-2 tíma í senn.
Allar stærðir og alla liti ;)
Einu skilyrðin sem þarf að uppfylla er glaðlegt viðmót hunds og eiganda.
Það er engin krafa um að hundurinn sé í "sýningarfeld". Loðnir og niðurrakaðir hundar eru að sjálfsögðu velkomnir.
Þeir sem hafa áhuga á að vera á kynningarbás vinsamlegast sendið póst á Ragnhildi ragga@schnauzerdeild.com og takið fram hvernig hund þið eruð með, hvaða tími hentar best og hvort þið getið verið báða dagana.
Fyrsta lokaða Schnauzerhlýðniprófið
5.8.2010 - Ritstjóri
Fyrsta lokaða Schnauzerprófið var haldið í gær.
Fjórir hundar mættu til leiks í fínu veðri fyrir utan Byko í Kauptúni.
Einn hundur lauk prófi með viðurkennda einkunn.
Óskum við Kolbrúni Snorradóttir og Merkurlautar Atlasi innilega til hamingju með Bronsmerkið.
Ragnhildur Gísladóttir, Heljuheimsræktun, gaf Kolbrúni Schnauzerklukku að gjöf fyrir árangurinn.
Albert Steingrímsson dómari prófsins að afhend Kolbrúni Bronsmerkið.
Ragnhildur Gísladóttir að afhenda Kolbrúni klukku af gjöf.
Þáttakendur, prófstjóri, dómari og fulltrúi frá Schnauzerdeildinn.
Fleiri myndir eru að finna á Facebook síðu deilarinnar.
Sýningarþjálfun
4.8.2010 - Ritstjóri
ATH Breyttar dagsetningar
Sýningarþjálfun fyrir Ágústsýninguna kl 20:00 í Gusti Álalind
Schnauzerdeildin mun standa fyrir sýningarþjálfun í Gusti Álalind fimmtudagskvöldin 12 ágúst, 19 ágúst og þriðjudagskvöldið 24 ágúst kl 20:00.
Einnig verður ein útisýningarþjálfun Fimmtudaginn 26 ágúst. Staðsetning verður auglýst síðar.
Skiptið kostar 500kr.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningi HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokun, nammi og sýningartaum.
Hlýðni próf 4 ágúst
29.7.2010 - Ritstjóri
Fyrstu Schnauzer hlýðniprófin verða haldin miðvikudaginn 4 ágúst.
Prófin verða á planinu fyrir framan Byko í Kauptúni (hjá IKEA) og hefst nafnakall kl 19:00
Að þessu sinni eru 5 hundar skráðir í hlýðni Brons og 2 hundar skráðir í hlýðni 1.
Við hvetjum sem flesta til að koma og fylgjast með.
Við viljum biðja fólk að vera mætt þá ekki seinna en 19:00.
Og óskum við þátttakendum góðs gengis.
Ágúst sýning HRFí
27.7.2010 - Ritstjór
Ágústsýning HRFÍ verður haldin helgina 28-29 ágúst.
Sýningin er Alþjóðleg meistarastig sýning, gefur alþjóðleg og íslensk meistarastig.
Schnauzerdeildin mun standa fyrir lokuðum Schnauzerprófum í samstafi við Vinnuhundadeild HRFÍ.
Hlýðniprófin verða miðvikudaginn 4 ágúst og Sporaprófin laugardaginn 7 ágúst.
Okkur er einnig sönn ánæga að tilkynna að skrái sami eigandi fleiri en tvo hunda á fullu verði í prófin er gefin helmingsafsláttur af skráningarjaldi hunda hans eftir það þ.e. þriðja, fjórða.. osfrv.
Tekið er á móti skráningum í vinnupróf á skrifstofu Hundaræktarfélags Íslands. Síðumúla 15, 108 Reykjavík
Sími: 588 5255 Fax: 588 5269 Netfang: hrfi@hrfi.is
Reikningsnúmer félagsins er: 515-26-707729 Kt. 680481-0249
Skráningarfrestur rennur út viku fyrir próf. 28 júlí fyrir Hlýðni og 30 júlí fyrir Spor.
Ganga og Grill
16.6.2010 - Ritstjóri
Næsta ganga deildarinna verður sunnudaginn 20.júní. kl 16:00 við Snorrastaðatjarnir.
Eftir gönguna er hugmyndin að grilla saman pylsur /pulsur.
Seinast þegar það var gert töluðu margir um að eiga ferða gasgrill sem þeir væru til í að koma með í næstu grillgöngu og værum við fegnar ef þeir sem gætu komið með það hefðu samband við Sigrúni í síma:862-6969 eða á sigrun@mitt.is.
Deildin bíður uppá meðlæti með pylsum.
Hlökkum til að sjá sem flesta
Sigrún 8626969
Úrslit sýningar
10.6.2010 - Ritstjóri
Úrslit Júnísýningar eru komin inn og hægt að sjá þau hér.
Við viljum þakka Dýrheimum innflutningsaðila Royal Canin hundafóðurs og Vistor innflutningsaðila Hill´s hundafóðurs fyrir bikara og gjafastyttur til eignar fyrir BOB og besta hvolpinn í öllum litum.
Einnig þökkum við Breytingu fyrir eignabikar og Heljuheimsræktun fyrir farandbikar í BOB í risa.
Á síðasta fulltrúaráðs fundi miðvikudaginn 5. maí var rætt um Sólheimakot - umgengni og viðhald.
Ákveðið var að stofna nefnd sem myndi sjá um að koma þessu máli í farveg.
Nú vantar okkur sjálfboðaliða og leitum því til félagsmanna okkar og vonandi leynist einhver þarna úti sem hefur áhuga á smá málingar vinnu og öðru tilfallandi.
Farið verður í viðhaldið á Sólheimakoti í september ef veður leyfir. Hugmyndin er að nota fyrstu 3 helgarnar. Nauðsynlegt er að fá nöfn sjálfboðaliða fyrir mánaðamót.
Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í sjálfboðavinnu vinsamlegast sendið e-mail á Sólheimakot nefndina
Miðvikudaginn 2 júní munu þær Ragnhildur Gísladóttir og Valgerður Stefánsdóttir kynna Spor og Hlýðni fyrir Schnauzereigendum í Sólheimakoti kl 20:00. Frábært tækifæri fyrir þá sem langar að kynnast þessu skemmtilegu vinnu áður en skráð sig er á námskeið eða próf sem verður vonandi í framhaldinu.
Byrjað verður á að hittast við afleggjarann að Sólheimakoti þar sem Ragnhildur og Valgerður muni sýna hvernig hundur rekur Spor. Spor verður lagt og getur fólk fylgst með bæði hvernig það er gert og eins hvernig hundurinn leysir úr verkefninu. Að því loknu verður farið svo uppí Sólheimakot og sýndar nokkrar hlýðni æfingar, farið yfir æfingar fyrir hlýðni próf og svarað spurningum.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Augnskoðun
14.5.2010 - Ritstjóri
Augnskoðun 5. og 6. júní 2010
Dýralæknarnir Finn Bøserup og Jens Knudsen frá Danmörku augnskoða hunda í Reiðhöllinni í Víðidal dagana 5. og 6. júní, í tenglsum við sumarsýningu félagsins. Virkir félagsmenn geta látið skoða hundana eftir að þeir hafa verið sýndir.
Tímapantanir fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.720.- fyrir hund og er aðeins fyrir virka félagsmenn í HRFÍ. Vinsamlegast staðfestið eldri skráningar!
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 23. maí.
Nauðsynlegt er að augnskoða Dverg Schnauzer fyrir pörun!
Skráningarfrestur rennur út í dag!
7.5.2010 - Ritstjóri
Sumarsýningin sem verður helgina 5-6 júní, er íslensk meistarastig sýning, gefur semsé ekki alþjóðleg stig þannig að það er aðeins ódýrara að skrá á hana og venjulega eitthvað færri hundar og því um að gera að vera með.
Sýningarþjálfun Fimmtudaga kl 20:00 í Gusti Álalind
Schnauzerdeildin mun standa fyrir sýningarþjálfun í Gusti Álalind fimmtudagskvöldin 13 maí, 20 maí, 27 maí og 3 júní kl 20:00. Skiptið kostar 500kr.
Við hvetjum alla schnauzereigendur sem eru að fara að sýna á næstu sýningi HRFÍ til að mæta.
Munið eftir kúkapokun, nammi og sýningartaum.
Hundanudd í Sólheimakoti miðvikudagskvöldið 5.maí
4.5.2010 - Ritstjóri
Annað kvöld miðvikudagskvöldið 5. maí býður Fuglahundadeild upp á fyrirlestur og sýnikennslu í hundanuddi.
Frá Noregi kemur Eva Sondresen sem er lærður hundanuddari og með kennararéttindi í því.
Staðsetning: Sólheimakot kl. 20:30.
Gangan á sunnudaginn 2 maí gekk mjög vel. Gengið var niður í Paradísardal hjá Rauðavatni og var mæting afar góða.
Nokkrar myndir út göngunni en fleiri myndir úr göngunni og fleiri göngu er að finna á Facebook grúbbu deildarinnar.
Ganga
28.4.2010 - Ritstjóri
Næsta ganga deildarinnar verður sunnudaginn 2 maí. kl 14:00 við Rauðavatn.
Gengið verður frá bílastæðinu fyrir ofan Rauðavatn og gengið niður í Paradísardal.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Fyrir hönd Göngunefndar.
Raggaog Sigrún
Schnauzerdeildin á Facebook
26.4.2010 - Ritstjóri
Schnauzdeildin er með hóp á Facebook. Endilega gangtu í hópinn og deildu með okkur myndum af Schnauzerninum þínum :D
Upplýsingar frá sýningarstjórn HRFÍ
21.4.2010 - Ritstjóri
Sýningastjórn hefur ákveðið að taka fyrstu skrefin í að nefna dómara fyrir nokkrar tegundir á komandi júnísýningu, fyrir lok skráningafrests. Farið verður mjög varlega í þeim efnum og einungis tilgreindar þær tegundir sem dómari er sérfræðingur í eða áður hefur verið ákveðið að hann myndi dæma, enda þarf lítið út af að bregða til þess að það gangi ekki upp.
Fyrirvari er gerður að því leyti, að forfallist dómari, eru aðrir auglýstir dómarar til vara, auk þess sem sýningastjórn HRFÍ áskilur sér rétt til að finna nýjan dómara til vara, ef fjöldi skráðra hunda gerir það nauðsynlegt.
Dómarar á eftirfarandi tegundir eru:
Úr TH-2: Thorbjorn Skaar (Svíþjóð) dæmir Schnauzer (allar stærðir og liti).
Jeff Horswell (UK) dæmir Stóra-Dana.
Úr TH-4:
Jeff Horswell (UK) dæmir Langhunda (allar stærðir og feldgerðir).
Úr TH-5
Paul Stanton (Svíþjóð) dæmir Íslenskan fjárhund
Úr TH-9:
Annukka Paloheimo (Finnland) dæmir Cavalier king charles spaniel.
Paul Stanton (Svíþjóð) dæmir Shi Tzu
Thorbjorn Skaar (Svíþjóð) dæmir Papillon, Phaléne, Poodle (allar stærðir), Tíbet spaniel.
TH-10
Georgious Kostopoulos (Grikkland)
Fyrirhugað ræktunarnámskeið í maí
21.4.2010 - Ristjóri
Fyrirhugað ræktunarnámskeið í maí - Einstakt tækifæri!- enn hægt að skrá sig.
Dómararnir Liz-Beth Liljeqvist og Ann-Chatrin Edoff hafa áhuga á að bjóða félagsmönnum HRFÍ upp á ræktunarnámskeið helgina 15.-16. maí, kl. 9:00- 17:00 báða dagana.
Ann-Chatrin sér um skapgerð og skapgerðarmat hunda en Liz-Beth það sem snýr að byggingu og heildarútliti hunda. Áhersla verður lögð á 5 hundategundir sem verður ákveðið þegar skráningu lýkur.
Lágmarksþátttaka er 30 manns.
Námskeiðsgjald er kr. 9.500
Á námskeiðinu verður stuðst við eftirfarandi atriði:
· The basic knowledge for breeders to know.
· Temperament, specific breeds, problems and how to deal with them.
· What can be done by the breeder before the puppies leave.
· Anatomy, conformation and proportions of the dog and how do recognise them. Compare the dog to the standard.
· How do see faults in your own dog? How do choose a mate to improve on it.
· Problems incurred in using popular sires.
· What do breeder have study before breeding from their dogs.
Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða á netfangið hrfi@hrfi.is. Þátttökugjald verður að greiðast við skráningu annars er skráning ekki staðfest.
Breyting á ræktunarkröfum fyrir Dverg Schnauzer
14.4.2010 - Ritstjóri
Stjórn HRFI hefur samþykkt beiðni stjórnar um að lækka pörunaraldur á dvergschnauzer niður úr 24 mánuðum í 20 mánaða
Hundafimikynning
12.4.2010 - Ritstjóri
Kynning á hundafimi verður í reiðhöll Gusts í Kópavogi 9 maí næst komandi kl 18:00
Íþróttadeild HRFÍ sér um kynninguna og kostar 700 kr fyrir hund sem greiða þarf á staðnum.
Við hvetjum alla Schnauzereigandur til að mæta og fá að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt og leyfa hundunum ykkar að spreyta sig í tækjunum undir góðri leiðsögn.
Hundafimi (Agility) er frábær íþrótt fyrir eiganda og hund. Hundafimi er fjörug og skemmtileg íþrótt sem gengur út á það að láta hund þræða þrautabraut og þarf hann að gera það eins fljótt og eins rétt eins og hann getur. Hundafimi á umfram allt að vera góð leið til að skemmta sér og leika við hundinn sinn. Allir hundar geta tekið þátt í Hundafimi og stjórnandinn getur verið á öllum aldri.
Munum skítapoka og 700 kr. þar sem greiða þarf fyrir leigu á reiðhöllinni. Lámarks aldur fyrir hund er 1 árs á kynninguna og að hundurinn sé bólusettur.
Föstudaginn langa var gríðalega vel heppnuð páskaganga deildarinnar í Sólheimakoti og var metþáttaka. Við vorum að vísu óheppin með veður rétt á meðan að gengið var, en það lagaðist sem betur fer og eftir gönguna leituðu yngstu félagsmenn okkar af eggjum í kringum kotið og eftir leitina fengu allir krakkarnir lítið páskaegg að gjöf frá deildinni og sá sem fann flest fékk stærra egg í verðlaun.Þetta var virkilega vel heppnað allt saman og vonandi verður árlegum viðburður framvegis.
Hér koma örfáar myndir. .
Páskaganga og eggjaleit.
22.3.2010 - Ritstjóri
Þann 2.apríl næstkomandi eða föstudaginn langa ætlum við schnauzerfólk að gera okkur glaðan dag uppí Sólheimakoti. Hugmyndin er að byrja kl.14.00 með léttri göngu um svæðið og eftir gönguna ætlum við að vera með eggjaleit í kringum kotið. Það verður búið að fela nokkur harðsoðin egg fyrir krakkana að leita að og meðan geta foreldrarnir fengið sér kaffisopa inn í kotinu. Eftir eggjaleitina fá allir krakkarnir lítið páskaegg að gjöf frá deildinni og sá aðili sem finnur flest egg fær stærra páskaegg í verðlaun, eldri börn (fullorðnir) mega að sjálfsögðu hjálpa til við leitina eða leita sjálfir.
Frábært tækifæri fyrir fjölskyldur að eyða hluta af deginum saman með hundinn sinn með. Hlökkum til að sjá sem flesta. Leiðalýsing að Sólheimakoti.
Aðalfundur deildarinnar
12.3.2010 - Ritstjóri
Á aðalfundi deildarinnar í gærkvöldi urðu talsverð mannaskipti í stjórn deildarinnar en úr stjórn gengu Valgerður Stefánsdóttir, Klara Á Símonardóttir, Líney Björk Ívarsdóttir og Margrét Ásgeirsdóttir en í þeirra stað þeirra komu inn Ragnhildur Gísladóttir, Rakel Rán Guðjónsdóttir, Fríður Esther Pétursdóttir og Sigrún Valdimarsdóttir. Margrét Kjartsdóttir var ekki í endurkjöri og mun áfram sitja sem formaður,
Úrslit sýningar
7.3.2010 - Ritstjóri
Úrslit febrúarsýningar eru komin inn og hægt að sjá þau hér.
Við viljum þakka Dýrheimum innflutningsaðila Royal Canin hundafóðurs og Vistor innflutningsaðila Hill´s hundafóðurs fyrir bikara og gjafastyttur til eignar fyrir BOB og BOS og besta hvolpinn í öllum litum.
Einnig þökkum við Svartskeggs og Heljuheimsræktun fyrir farandbikar í BOB og BOS í risa og dverg.
Ganga
3.3.2010 - Ritstjóri
Næsta ganga deildarinnar verður sunnudaginn 7 mars. kl 14:00
Gengur verður hjá Seltjörn.
Fyrir hönd Göngunefndar
Ragga 8651945og Sigrún 8626969
Aðalfundur Schnauzerdeildar
24.2.2010 - Ritstjóri
Aðalfundur Schnauzerdeildar verður haldinn fimmtudaginn 11. mars kl. 20.00 á skrifstofu HRFÍ Síðumúla 15.
Dagskrá:
Lesin ársskýrsla
Kosning
Önnur mál
Stórhundadagar í Garðheimum
22.2.2010 - Ritstjóri
Helgina 20. – 21. Mars 2010 verða stórhundadagar í Garðheimum frá kl. 12 – 17 báða dagana. Þeir sem eiga standard eða risa schnauzer og hafa áhuga á að kynna tegundina hafi samband við Völu í síma 8980959
Dagskrá sýningar
15.2.2010 - Ritstjóri
Laugardagur 27. febrúar 2010
Hringur 5 - Dómari Benny Blid
09:00 Risaschnauzer svartur (4)
09:16 Schnauzer svartur (1)
09:20 Schnauzer p/s (11)
10:04 Dvergschnauzer p/s (4)
10:20 Dvergschnauzer sv/s (20)
11:40 Dvergschnauzer hv (4)
11:56 Dvergschnauzer sv (22)
Aðstoð á sýningu
14.2.2010 - Ritstjóri
Það er komið að Schnauzerdeildinni að aðstoða á sýningu Hrfí helgina 27. - 28. febrúar. Þeir sem hafa áhuga á að aðstoða vinsamlegast hafið sambandi við Dagný í síma 8236465
Kynningar
31.1.2010 - Ritstjóri
Smáhundadagar í Garðheimum og tegundabás
Helgina 13. – 14. Febrúar verða smáhundadagar í Garðheimum frá kl. 12 - 17, báða dagana. Þeir sem eiga dvergschnauzer og hafa áhuga á að kynna tegundina hafið samband við Dagný í síma: 8236465.
Einnig vantar fólk til að kynna allar stærðir schnauzer á kynningarbás á sýningu HRFÍ 27. – 28. Febrúar. Þetta er fín umhverfisþjálfun fyrir hundinn og um að gera að vera með. Hafið einnig samband við Dagný.
Sýningarþjálfun Schnauzerdeildar
30.1.2010 - Ritstjóri
Sýningaþjálfun fimmtudaga kl. 21:00 í Gusti
Schnauzerdeild, Fuglahundadeild og Shih tzu deild munu standa fyrir sýningaþjálfun á fimmtudagskvöldum fram að vorsýningu HRFÍ, í reiðhöll Gusts í Álalind.
Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 21
Byrjendur: Farið yfir helstu atriði sem gott er að vita áður en farið er með hund á sýningu. Grunnur að sýningaþjálfun. Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun með áherslu á sérkenni tegunda og einstaklinga. Farið yfir dóma sem hundar hafa fengið á fyrri sýningum.
Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 21
Hefðbundin sýningaþjálfun og upprifjun.
Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 21
Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Ræktendur athugið! Ef þið ætlið að vera með ræktunar- eða afkvæmahóp látið leiðbeinendur vita í upphafi tíma ef þið viljið fá þjálfun fyrir ræktunar- eða afkvæmahóp.
Þátttökugjald er 500 kr. fyrir skiptið.
- Munið sýningataum, kúkapoka og nammi eða dót sem hundurinn er hrifinn af.
- Þeir sem vilja geta komið með dóma frá fyrri sýningum svo hægt sé að taka mið af þeim í
þjálfuninni.
- Gott er að viðra hundinn áður en komið er með hann í sýningaþjálfun.
Stigagjöf
28.1.2010 - Ritstjóri
Á aðalfundi Schnauzerdeildarinnar í maí 2009 var stigahæsti ræktandi schnauzer
heiðraður í fyrsta sinn, en það er sá ræktandi sem á flest meistaraefni á öllum
sýningum félagsins almanaksárið á undan. Stjórn deildarinnar hefur nú nýverið
kynnt reglur til að reikna út stigahæsta hundinn (sjá áðurbirta stigagjöf og
reikningsaðferð). Við samningu reglnanna voru hafðar til hliðsjónar reglur
annarra deilda ásamt sjónarmiði félagsmanna og stjórnar. Ákveðið hefur verið að
nýju reglurnar gildi í tvö ár til reynslu og verði teknar til endurskoðunar að
þeim tíma liðnum.
Við samningu reglnanna var haft að leiðarljósi að stigagjöfin væri sanngjörn og
til þess fallin að vera ræktendum hvatning til að auka gæði hundanna í
stofninum sem og að auka áhuga hins almenna hundaeiganda til að taka þátt í
sýningum.
Stigahæsti hundur Schnauzerdeildar árið 2009 er Hjartagulls Belladís með 50
stig.
Og stigahæstu ræktendurnir eru tveir: Bláklukkuræktun annað árið í röð með 15 stig og Ólafsvellir einnig með 15 stig.
Stigahæstu hundar deildarinnar
23.1.2010 - Ritstjóri
Stjórn Schnauzerdeildar hefur ákveðið að heiðra stigahæsta hund deildarinnar á aðalfundi sem haldinn verður 11. mars 2010. (Fundurinn verður nánar auglýstur síðar).
Eftirfarandi hundar hafa hlotið flest stig:
1. Hjartagulls Belladís (ss dvergur) 50 stig
2.Silfurskugga Capone White Boss (hvítur dvergur) 44 stig
EFtirfarandi hefur verið samþykkt af stjórn Hundaræktarfélagsins og tekur gildi 1. Júní 2010:
Dvergschnauzer: Gildistími augnvottorða verði lengdur úr 12 mánuðum í 18 mánuði.
Risaschnauzer: Mjaðmamyndir. Undaneldisdýr skulu mynduð og niðurstaða kunn fyrir pörun. Greinist hundur með mjaðmalos, D eða E verða afkvæmi hans ekki skráð í ættbók.
Alþjóðleg hundasýning
20.1.2010 - Ritstjóri
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram helgina 27. - 28. febrúar 2010 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur föstudaginn 29. janúar 2010
Skráning á sýninguna fer fram í gegnum öruggan vefþjón hér
Sjá nánari upplýsingar á síðu Hundaræktarfélagsins www.hrf.is
Ganga
19.1.2010 - Ritstjóri
Næsta ganga Schnauzerdeildarinnar verður sunnudaginn 31 janúar.
Farið verður í taumgöngu í miðbæ Reykjavíkur. Við munum hittast í Hljómskálagarðinum við Hljómskálann kl 14:00
Munið eftir kúkapokum.
Fyrir hönd göngunefndar
Ragga og Sigrún.
Freestyle dans
16.1.2010 - Ritstjóri
Á vegum Vinnuhundadeildar er fyrirhugað að bjóða upp á æfingahelgi í freestyle dansi fyrir hunda og eigendur þeirra. Freestyle dans er vinsæl keppnisíþrótt fyrir hunda á Norðurlöndum og í Bretlandi. Æfingarnar eru sambland af hlýðni og trixum sem að hundur og eigandi tengja saman við undirleik tónlistar.
Þetta er mjög skemmtilegt hundasport sem þarft er að koma á framfæri á Íslandiog passar vel fyrir schnauzerhunda. Þátttakendur þurfa að bera kostnað við æfinguna, sem er 8000 krónur fyrir hvern hund og eiganda, og lágmarksfjöldi til þess að halda æfinguna er 12.
Dansæfingarnar verða í reiðhöll Guðmundar í Þorlákshöfn síðustu helgina í janúar eða 30. og 31. janúar. Byrjað verður klukkan 10 báða dagana og æft til klukkan 16 . Farið verður í grunnæfingar: að bakka frá eiganda, að snúast í hringi, æfingar á hæl og fjarlægðaræfingar.
Æfingastjóri og leiðbeinandi verður Auður Björnsdóttir hundaþjálfari.
Nánari upplýsingar og skráning eru á valas@simnet.is
Aðventuganga
20.11.2009 - Ristjóri
Aðventuganga Schanuzerdeildarinnar verður laugardaginn 5 desember í Sólheimakoti kl 15:00
Eftir gönguna mun svo deildin bjóða uppá Kaffi og piparkökur.
fyrir hönd göngunefndar
Ragnhildur og Sigrún"
Pörunaraldur
20.11.2009 - Ristjóri
Í grundvallar reglum Hrfí segir að para eigi ekki tík fyrir tveggja ára aldur og hefur stjórn Schnauzerdeildar breytt aldri tíka sem mælt er með fyrir fyrstu pörun í samræmi við þær reglur í öllum stærðum schnauzerhunda. Þetta er gert tímabundið til að skapa ekki ágreining við reglur HRFÍ en rökin fyrir þessu munu verða skoðuð nánar með félagsmönnum.
Dagskrá deildarfundar
9.11.2009 - Ristjóri
Kynning á nýjum gagnagrunni
Fjáröflun fyrir grunninn
Skjaldkirtilsmál í risanum
Umræða um heilsufarskröfur í öllum stærðum
Deildarbásinn
Fyrirhuguð starfsemi
Önnur mál
Stjórn deildarinnar hefur ákveðið að taka út tilmælin um mælingar í skjaldkirtli á risanum. Samkvæmt gagnagrunnum dýralækna og upplýsingum frá Brendu Bonnet sem unnið hefur fyrir Agria í Svíþjóð bendir ekkert til þess að vanvirkni í skjaldkirtli sé sérstakt vandamál hjá risaschnauzer.
Úrslit haustsýningar
27.10.2009 - Ritstjóri
Úrslit haustsýningar eru komin inn og hægt að sjá þau hér.
Við viljum þakka Dýrheimum fyrir gjafastyttur til eignar fyrir besta hund tegundar í öllum stærðum og flokkum.
Deildarfundur Schnauzerdeildar
27.10.2009 - Ritstjóri
Deildarfundur verður haldinn þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20.00 á skrifstofu Hrfí, Síðumúla 15.
Dagskrá fundar verður auglýst þegar nær dregur.
stjórnin
Ganga
21.10.2009 - Ritstjóri
Næsta ganga hjá göngunefndinni verður sunnudaginn 1 nóv. kl 17 í Paradísardal.
Það er keyrt niður að Rauðavatni út frá Morgunblaðshúsinu. Beygt til vinstri og keyrt meðfram vatninu, beygt aftur til vinstri þegar komið er að tveimur kofum, hvítum og brúnum á vinstri hönd. Keyrt þar uppeftir þar til komið er að litlu bílastæði. Þar hittumst við.
Fyrir hönd göngunefndar Schnauzerdeildarinnar
Ragnhildur og Sigrún
Dagskrá sýningar
30.9.2009 - Ritstjóri
Hringur 3
Dómari: Kresten Scheel (DK)
09:00 Boxer (8)
09:32 Stóri dani (1)
09:36 Risaschnauzer sv (4)
09:52 Schnauzer sv (1)
09:56 Schnauzer p/s (12)
10:44 Dv.schnauzer hv (4)
11:00 Dv.schnauzer p/s (6)
11:24 Dv.schnauzer sv (21)
12:48 Dv.schnauzer sv/s (21)
Kynningarbás
28.9.2009 - Ritstjóri
Schnauzerdeildin ætlar að vera með kynningarbás á sýningu Hrfi í Víðidal næstu helgi. Þeir sem hafa áhuga á að kynna tegundina sína hafi samband við Dagný í síma 8236465. Okkur vantar allar stærðir af schnauzer og í öllum litum.
Að sýna hund - fyrirlestur
22.9.2009 - Ritstjóri
Brynja Tomer heldur erindi um hundasýningar fimmtudaginn 24. september næstkomandi í félagsheimili Andvara á Kjóavöllum í Garðabæ. Erindið hefst kl. 19 og verður um 45 mínútna langt.
Farið verður yfir ólíkar aðferðir við að stilla hundum upp fyrir dómara og það sem hafa ber í huga þegar hundur er sýndur. Einnig verður farið yfir heppilegan klæðnað, taumhald og sitthvað fleira, ásamt því sem farið verður yfir helstu atriði í sýningareglum.
Þátttakendur fá ljósrit af þeim glærum sem notaðar verða til útskýringa.
Í beinu framhaldi verður sýningaþjálfun í reiðhöll Andvara á vegum Fuglahunda- Schnauzer- og Shih Tzu-deilda HRFÍ.
Aðgangseyrir er 500 krónur á mann.
Úrslit afmælissýningar Hrfí
10.9.2009 - Ritstjóri
Úrslit afmælissýninga Hrfi eru komnar inn og er hægt að skoða úrslitin hér.
Við viljum þakka Dýrheimum fyrir gjafastyttur til eignar fyrir besta hund tegundar í öllum stærðum og flokkum.
Smáhundakynning í Garðheimum
8.9.2009 - Ritsjóri
Smáhundakynning í Garðheimum verður helgina 12 - 13. september frá kl. 12.00 - 17.00. Þeir sem hafa áhuga á að kynna tegundina hafið samband við Möggu í síma: 8652320 eða sendið henni póst maggak@vortex.is
Æfingahópur Schnauzerdeildar
8.9.2009 - Ritstjóri
Þeir sem hafa áhuga á að vera í æfingahópi Schnauzerdeildarinnar og hittast reglulega til að æfa hundana sína, hafi sambandi við Röggu Gísla á netfangið raggagisla@heljuheims.net.
Sýningaþjálfun fimmtudaga kl. 20.00 í Andvara
8.9.2009 - Ritstjóri
Fuglahundadeild, Schnauzerdeild og Shih tzu deild munu standa fyrir sýningaþjálfun á fimmtudagskvöldum fram að haust sýningu HRFÍ, í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum í Garðabæ.
Fimmtudaginn 17. september kl. 20
Byrjendur: Farið yfir helstu atriði sem gott er að vita áður en farið er með hund á sýningu. Grunnur að sýningaþjálfun. Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun með áherslu á sérkenni tegunda og einstaklinga. Farið yfir dóma sem hundar hafa fengið á fyrri sýningum.
Fimmtudaginn 24. september kl. 20
Hefðbundin sýningaþjálfun og upprifjun.
Fimmtudaginn 1. október kl. 20
Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Ræktendur athugið!Ef þið ætlið að vera með ræktunar- eða afkvæmahóp látið leiðbeinendur vita í upphafi tíma ef þið viljið fá þjálfun fyrir ræktunar- eða afkvæmahóp.
Þátttökugjald er 500 kr. fyrir skiptið.
Munið sýningartaum, kúkapoka og nammi eða dót sem hundurinn er hrifinn af.
Þeir sem vilja geta komið með dóma frá fyrri sýningum svo hægt sé að taka mið af þeim í þjálfuninni.
Gott er að viðra hundinn áður en komið er með hann í sýningarþjálfun.
Ganga og grill
29.8.2009 - Ritstjóri
Næsta ganga deildarinna verður sunnudaginn 6 sept. kl 16:00 við Snorrastaðatjarnir.
Eftir gönguna er hugmyndin að grilla saman.
Deildin bíður uppá meðlæti með pylsum.
Hlökkum til að sjá sem flesta
Ragga 8651945 og
Sigrún 8626969
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ
29.8.2009 - Ritstjóri
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram helgina 3. - 4. október 2009 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur sunnudaginn 6. september 2009.
Skráning á sýninguna fer fram í gegnum öruggan vefþjón hér: Skráningar sem berast með tölvupósti eða í gegnum síma eru ekki teknar gildar.
Afmælissýning Hrfi
20.8.2009 - Ritstjóri
Dagskrá fyrir allar stærðir schnauzer á laugardag og sunnudag.
Að venju kostar hvert skipti kr. 500,- og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinnar erlendis. En Unglingadeildin með dyggri aðstoð HRFÍ, Pedigree og Royal Canin senda fulltrúa á helstu sýningar erlendis.
Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungisýnandinn keppir á Evrópusýningunni. Síðan fer lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum á Norðurlandakeppni ungra sýnenda.
Athugið að mikilvægt er að mætt sé á réttum tíma á æfingarnar svo þær geti byrjað á tilsettum tíma.
Einnig er mikilvægt að fólki taki með sér kúkapoka, sýningartaum og nammi eða dót fyrir hundinn.
Schnauzerganga
22.7.2009 - Ritstjóri
Nú er komið að göngu hjá okkur.
Gengið verið frá bílastæðinu fyrir ofan Rauðavatn og niður í Paradísardal (sama stað og fyrsta gangan var), sunnudaginn 26 júlí kl 17:00.
Afmælissýning Hundaræktarfélags Íslands – Tvær sýningar 22. og 23. ágúst 2009 ásamt augnskoðun
Afmælissýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram dagana 22. og 23. ágúst 2009 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Í tilefni af 40 ára afmæli félagsins verður staðið fyrir tveimur aðskildum sýningum. Félagsmenn geta skráð hunda sína eingöngu á laugardag eða sunnudag eða báða daga. Ef valið er að sýna hund báða daga er veittur 50% afsláttur af seinni skráningu hundsins (t.d. 4500+2250=6750). Skrái sami eigandi fleiri en tvo hunda á fullu verði (4.500/6750) er gefinn helmingsafsláttur af skráningargjaldi þriðja, fjórða...o.s.frv.
Skráningafresti lýkur sunnudaginn 26. júlí 2009.
Skráning á sýninguna fer fram í gegnum öruggan vefþjón, smelltu hér.
Sjá nánar um sýninguna og augnskoðunina á www.hrfi.is
Úrslit sumarsýningar
10.7.2009 - Ritsjóri
Úrslit sumarsýningar eru komin inn. Hægt að skoða þau hér.
Við viljum þakka Líflandi fyrir eignabikara til besta hunds tegundar í dverg- og risaschnauzer og Hundaheimi fyrir eignabikara til besta hvolps tegundar í öllum litum dvergschnauzers.
Schnauzerganga
15.6.2009 - Ritsjóri
Dagsetning: 21 júní.
Staðsetning: Straumur í Straumsvík (litli bærinn við hliðina á Álverinu í straumsvík.)
klukkan: 16:00
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Ragnhildur og Sigrún
Sýningarþjálfun Unglingadeildar
14.6.2009 - Ritstjóri
Sýningaþjálfunin fer fram í Reiðhöllinni Víðidal mánudagana 15. og 22. júní
Að venju kostar hvert skipti kr.500 og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinnar erlendis. Unglingadeildin með dyggri aðstoð HRFÍ, Pedigree og Royal Canin sendir fulltrúa á helstu sýningar erlendis.
Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungisýnandinn keppir á Evrópusýningunni. Síðan fer fjögurramanna lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum úr eldri flokk á Norðurlandakeppni ungra sýnenda.
Athugið að mikilvægt er að mætt sé á réttum tíma á æfingarnar svo þær geti byrjað á tilsettum tíma. Einnig er mikilvægt að fólki taki með sér kúkapoka, sýningartaum og nammi eða dót fyrir hundinn
F.h. Stjórnar Unglingadeildar HRFÍ
Guðrún Dögg
Ræktunarnámskeið
9.6.2009 - Ritstjóri
Ræktunarnámskeið (anatomy and judging) fyrir byrjendur
Boðið verður uppá kaffi, kex og drykki. Þátttakendur þurfa sjálfir að koma með nesti.
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofu HRFÍ eða á hrfi@hrfi.is
Námskeiðsgjald kr.4.500.-
Mappa með námskeiðsgögnum verður afhent þátttakendum fyrir námskeiðið.
Sýningarþjálfun þriðjudagskvöld kl. 20 í Andvara
2.6.2009 - Ritstjóri
Schnauzerdeild, Fuglahundadeild og Shih tzudeildmunu standa fyrir sýningaþjálfun á þriðjudagskvöldum fram að sumar sýningu HRFÍ, í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum í Garðabæ.
Þriðjudaginn 9. júní. kl. 20
Byrjendur: Farið yfir helstu atriði sem gott er að vita áður en farið er með hund á sýningu. Grunnur að sýningaþjálfun. Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun með áherslu á sérkenni tegunda og einstaklinga. Farið yfir dóma sem hundar hafa fengið á fyrri sýningum.
Þriðjudaginn 16. júní kl. 20
Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Þriðjudaginn 23. júní kl. 20
Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Ræktendur athugið! Ef þið ætlið að vera með ræktunar- eða afkvæmahóp látið leiðbeinendur vita í upphafi tíma ef þið viljið fá þjálfun fyrir ræktunar- eða afkvæmahóp.
Þátttökugjald er 500 kr. fyrir skiptið.
→ Munið sýningataum, kúkapoka og nammi eða dót sem hundurinn er hrifinn af.
→ Þeir sem vilja geta komið með dóma frá fyrri sýningum svo hægt sé að taka mið af þeim í þjálfuninni.
→ Gott er að viðra hundinn áður en komið er með hann í sýningaþjálfun.
Ganga
12.5.2009 - Ritstjóri
Nú endurvekjum við göngu deildarinnar og fyrsta gangan verður í Paradísadal við Rauðavatni sjá kort. Gangan verður sunnudaginn 17 maí kl 16:00
Minnum á póstlista göngunefndarinnar ganga@schnauzerdeild.com
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Ragnhildur og Sigrún
Göngur
9.5.2009 - Ritstjóri
Nýstofnuð er göngunefnd Schnauzerdeildar með Ragnhildi Gísladóttur og Sigrúnu Valdimiarsdóttur sem ætla að sjá um að endurvekja göngurnar sem áður voru í blóma í deildinni en einhverra hluta vegna lögðust niður. Það er ekkert eins skemmtilegt eins og að hittast í góðra vina og hunda hópi, spjalla og ganga í góðu veðri. Þeir sem hafa áhuga á að hafa samband við nefndina og/eða vera á sérstökum göngupóstlista er bent á að senda e-mail á netfangið ganga@schnauzerdeild.com
Æfingahópur
8.5.2009 - Ritstjóri
Þeir sem hafa áhuga á að vera í æfingahópi Schnauzerdeildarinnar og hittast reglulega til að æfa hundana sína, hafi sambandi við Röggu Gísla á netfangið raggagisla@heljuheims.net.
Bronspróf
28.4.2009 - Fridur Esther
Um síðustu helgi var bronsmerkjapróf í hlýðni á vegum HRFI, dómari var Albert Steingrímsson. Þrír hundar af fimm luku prófi og í þriðja sæti með 132 stig var dvergschnauzer rakkinn Svartskeggs Darth Vader frá Jackpot, en hann er fyrsti dvergschnauzerinn á Íslandi til að ljúka þessu prófi.
Aðalfundur Schnauzerdeildar
27.3.2009 - Ritstjóri
Aðalfundur Schauzerdeildar verður haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 20.00 í húsnæði Hrfí Síðumúla 15.
Dagskrá fundar:
Skýrsla stjórnar
Kosning í stjórn
Nefndarstörf og kosning í nefndir
Önnur mál
Stjórnin
Stórhundasýning Garðheima 21 og 22 mars
19.3.2009 - Ritsjtóri
Kynntir verða millistórir og stórir hundar frá HRFÍ. Á staðnum verða m.a. dýralæknir til skrafs og ráðagerða, hundasnyrtir, tilboð á hundafóðri og ýmsum hundavörum, lukkupottur ofl.
Schnauzer og risaschnauzer verða einnig á staðnum og gaman að koma og hitta hunda og eigendur þeirra.
Sýningin stendur frá kl. 12:00 - 17:00, laugardag og sunnudag.
Írski dómarinn Michael Forte hefur boðað forföll vegna veikinda á hundasýningu HRFÍ sem verður næstu helgi.Í hans stað kemur írski allrounder dómarinn Seamus Oates.
Vinnupróf í mars og apríl - skráning hafin
16.2.2009 - Fríður Esther
Vinnuhundadeild stendur fyrir neðangreindum vinnuprófum í mars og apríl n.k. Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða á hrfi@hrfi.is. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða leggja inn á reikning 0515-26-707729, kt.680481-0249, merkt vinnupróf, senda staðfestingu á hrfi@hrfi.is. Þátttökugjald fæst ekki endurgreitt ef breytt er um dómara. Vinsamlegast staðfestið eldri skráningar.
Í tengslum við sýningaþjálfun Fuglahundadeildar, Schnauzerdeildar, Shi Tzudeildar og Smáhundadeildar verður boðið upp á um hálftíma erindi, þar sem farið verður yfir helstu atriði varðandi sýningar, í máli og myndum. Sýndar verða ólíkar aðferðir við að stilla hundum upp fyrir dómara og það sem hafa ber í huga þegar hundur er sýndur. Einnig verður farið yfir heppilegan klæðnað, taumhald og sitthvað fleira, ásamt því sem útskýrt verður hvernig sýningareglur hafa breyst.
Erindið verður í félagsheimili Andvara á Kjóavöllum í Garðabæ, þriðjudaginn 17.febrúar og hefst kl. 20.15.Í beinu framhaldi verður sýningaþjálfun í reiðhöllinni, sem hefst kl. 21. Þátttakendur fá ljósrit af þeim glærum sem notaðar verða til útskýringa.
Þar sem greiða þarf leigu fyrir húsnæðið, þarf að innheimta aðgangseyri sem er 300 krónur á mann.
Sýningadagskrá
13.2.2009 - Fríður Esther
Dagskrá sunnudaginn 1. Mars - Dómari: Michael Forte frá Írlandi.
09:00 Dverg schnauzer sv (17)
10:08 Dverg schnauzer sv/s (9)
10:44 Dverg schnauzer hv (7)
11:12 Dverg schnauzer p/s (3)
11:24 Schnauzer sv (1)
11:28 Schnauzer p/s (8)
Hádegishlé
12:30 Risaschnauzer sv (5)
12:50 Risaschnauzer p/s (1)
Munið að vera mætt tímalega.
Sýningaþjálfun unglingadeildar
5.2.2009 - Fríður Esther
Nú er farið að styttast í sýninguna helgina 28.febrúar - 1.mars og eins og áður verða síðustu þrjár sýningaþjálfanirnar hjá unglingadeildinni í reiðhöll Fáks í Víðidal næstu sunnudaga fram að sýningu. Það er mikilvægt að þeir sem taka þátt í sýningaþjálfununum mæti á réttum tíma. Sunnudagarnir sem um ræðir eru sunnudagarnir 8.febrúar, 15. febrúar og 22. febrúar.
kl 17 - 18 Ungir sýnendur
kl 18 - 19 Tegundahópar 1, 2 og 8 (schnauzer og fleiri tegundir)
Að venju kostar hvert skipti 500kr og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinnar erlendis. En Unglingadeildin með dyggri aðstoð HRFÍ, Dýrheima og SS sendir fulltrúa á helstu sýningar erlendis. Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungisýnandinn keppir á Evrópusýningunni. Síðan fer fjögurramanna lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum úr eldri flokk á Norðurlandakeppni ungra sýnenda.
Mikilvægt er að hafa meðferðis sýningartaum, kúkapoka og nammi eða dót fyrir hundinn.
Með vonum að sjá sem flesta,
Stjórn Unglingdeildar.
Smáhundadagar í Garðheimum.
3.2.2009 - Fríður Esther
Um helgina verður skemmtileg smáhundakynning í Garðheimum, mismunandi tegundir af smáhundum verða kynntar og verður dvergschnauzer að sjálfsögðu líka með fyrir áhugasama til að koma og kynna sér tegundina betur og spjalla við stolta eigendur. Hundarnir verða á staðnum frá kl.12.00 til 17.00, bæði laugardag og sunnudag.
Ef þú átt dvergschnauzer og hefur áhuga á að "standa vaktina", endilega hafðu samband við Möggu Kjartans í síma 865-2320.
Sýningarþjálfun þriðjudaga kl. 21.00 í Andvara
18.1.2009 - Ritstjóri
Schnauzerdeild, Fuglahundadeild og Shih tzudeildmunu standa fyrir sýningaþjálfun á þriðjudagskvöldum fram að mars sýningu HRFÍ, í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum í Garðabæ.
Þriðjudaginn 3. febrúar. kl. 21
Byrjendur: Farið yfir helstu atriði sem gott er að vita áður en farið er með hund á sýningu. Grunnur að sýningaþjálfun. Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun með áherslu á sérkenni tegunda og einstaklinga. Farið yfir dóma sem hundar hafa fengið á fyrri sýningum.
Þriðjudaginn 10. febrúar kl. 21
Hefðbundin sýningaþjálfun fyrir byrjendur og lengra komna.
Þriðjudaginn 17. feb. kl. 21
Hefðbundin sýningaþjálfun fyrir byrjendur og lengra komna.
Þriðjudaginn 24. feb. kl. 21
Byrjendur: Snögg upprifjun á helstu atriðum um fyrirkomulag sýninga. Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Ræktendur athugið! Ef þið ætlið að vera með ræktunar- eða afkvæmahóp látið leiðbeinendur vita í upphafi tíma ef þið viljið fá þjálfun fyrir ræktunar- eða afkvæmahóp.
Þátttökugjald er 500 kr. fyrir skiptið.
→ Munið sýningataum, kúkapoka og nammi eða dót sem hundurinn er hrifinn af.
→ Þeir sem vilja geta komið með dóma frá fyrri sýningum svo hægt sé að taka mið af þeim í þjálfuninni.
→ Gott er að viðra hundinn áður en komið er með hann í sýningaþjálfun.
Sýningarþjálfun Unglingadeildar
8.1.2009 - Ritstjóri
Sýningaþjálfun á vegum Unglingadeildar HRFÍ fyrir vorsýningu félagsins hefst sunnudaginn 11. Janúar. Sýningaþjálfunin fer fram í Gusti sunnudagana 11. 18. 25 og 1. Febrúar. En staðsetning seinni þrjá sunnudagana verður auglýst síðar.
Hinsvegar vegna aukins fjölda á sýningaþjálfunum Unglingadeildarinnar, verða síðustu þrír sunnudagarnir bundnir skráningu.Þannig mun unglingadeildin geta raðað niður hundum þannig að hæfilegur fjöldi sé í hverjum tíma og með því minnkað bið og aukið gæði þjálfunarinnar. Sama verð verður á þessum sýningaþjálfunum og hefur verið, hins vegar þarf að greiða fyrir alla þrjá tímana í fyrsta tímanum. Skráningingu lýkur Sunnudaginn 25 janúar en tekið er við skráningu á udhrfi@gmail.com Það sem þarf að koma fram í skráningu er Nafn og símanúmer eiganda sem og nafn og tegund hunds.
Það er von stjórnar unglingadeildarinnar að þetta mælist vel fyrir,en með þessu móti erum við að reyna að koma á móts við hinn almenna sýnanda.
Til að gera langt mál stutt:
Sunnudaginn 11. Janúar í Gusti: Ungirsýnendur kl. 18-19, hinn almenni sýnandi kl. 19-20
Sunnudaginn 18. Janúar í Gusti: Ungirsýnendur kl. 18-19, hinn almenni sýnandi kl. 19-20
Sunnudaginn 25. Janúar í Gusti: Ungirsýnendur kl. 18-19, hinn almenni sýnandi kl. 19-20
Sunnudaginn 1. Febrúar í Gusti: Ungirsýnendur kl. 18-19, hinn almenni sýnandi kl. 19-20
Sunnudaginn 8. Febrúar: Auglýst síðar.
Sunnudaginn 15. Febrúar: Auglýst síðar.
Sunnudaginn 22. Febrúar: Auglýst síðar.
Að venju kostar hvert skipti 500kr og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinnar erlendis. En Unglingadeildin með dyggri aðstoð HRFÍ senda fulltrúa á helstu sýningar erlendis. Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungisýnandinn keppir á Evrópu sýningunni. Síðan fer fjögurramanna lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum úr eldri flokk á Norðurlandakeppni ungra sýnenda.
Athugið að mikilvægt er að mætt sé á réttum tíma á æfingarnar svo þær geti byrjað á tilsettum tíma. Einnig er mikilvægt að fólki taki með sér kúkapoka, sýningartaum og nammi eða dót fyrir hundinn.
Tilkynning frá sýningarstjórn Hrfí
6.1.2009 - Ritstjóri
Tvær breytingar á sýningareglum taka gildi 1. janúar 2009. Þær eru eftirfarandi:
II. kafli, Sýningaskilmálar, 2. gr, fyrri mgr, breytist þannig, að í stað þess að kveða á um að sýnandi hunds verði að vera fullra 13 ára, skal hann að lágmarki verða 13. ára á árinu. Fer þá saman aldurslágmark sýnenda og eldri hóps ungra sýnenda, sbr. ákvæði XII kafla um unga sýnendur: "Aldurslágmark sýnanda hunds skal vera 13. ára (ártal gildir). Í dómi skal sýninganúmer hunds vera skýrt á hægri hlið sýnanda."
XIV. kafli, Einkunna- og verðlaunaborðar, borðar fyrir einkunnir Excellent, Very Good, Good og Sufficient, breytast þannig að einn litur verður fyrir hverja einkunn:
Excellent / 1. sæti: rauður borði
Very Good / 2. sæti: blár borði
Good / 3. sæti: gulur borði
Sufficient / 4. sæti: grænn borði.
Samræming á sýningareglum hundaræktarfélaga Norðurlandanna er nú í fullum gangi og gera má ráð fyrir frekari breytingum á reglum okkar þegar henni lýkur. Ekki er þó gert ráð fyrir neinum grundvallarbreytingum á núverandi sýningakerfi. Þess má geta, að aðrar Norðurlandaþjóðir hyggjast taka upp FCI-einkunnir (Excellent, Very Good osfmv.) og haga borðalitum þannig að einn litur sé fyrir hverja einkunn.
Þá hefur sýninganefnd, í samstarfi við stjórn HRFÍ, ákveðið að draga saman seglin í kostnaði við sýningar og hætta að veita hvítar og bláar rósettur fyrir alþjóðlegt meistarastig annars vegar og BHT II sæti hins vegar. Þess í stað verður hægt að kaupa rósetturnar á kostnaðarverði á bás HRFÍ á sýningum eða á skrifstofu félagsins, eftir sýningar, gegn framvísun umsagnarblaðs. Eftir sem áður verða veittar rósettur fyrir besta hund tegundar og í úrslitum sýningar.
Í öðrum fréttum má nefna, að þann 1. janúar 2009 taka í gildi nýjar reglur hjá aþjóðasamtökum hundaræktarfélaga, FCI, um aþjóðlegan sýningameistaratitil (C.I.E) fyrir þau hundakyn sem sett eru undir vinnupróf í FCI Breeds Nomenclature. Til að eiga kost á þessum nýja titli, þurfa hundar af viðkomandi kynjum að hafa hlotið fjögur aþjóðleg meistarastig (CACIB) í a.m.k. þremur löndum og undir þremur dómurum. Eitt ár og einn dagur þarf að lágmarki að líða á milli fyrsta og síðasta stigs. Stjórn HRFÍ hefur sótt um að fá sömu undanþágu vegna þessa titils og það hefur vegna IntCh titils; þ.e. að íslenskir hundar geti safnað stigunum hér á Íslandi, en frá þremur dómurum sem koma frá amk. þremur mismunandi löndum. FCI hefur einnig óskað eftir því að skammstafanir fyrir titla verði samræmdar á eftirfarandi hátt: C.I.B. (Alþjóðlegur fegurðarmeistari) - samsvarar núverandi INTCH / INTUCH skammstöfun C.I.T. (Alþjóðlegur vinnumeistari) C.I.E. (Alþjóðlegur sýningameistari) - nýi titillinn, sbr. að ofan.
Sýningastjórn óskar félagsmönnum gleðilegrar hátíðar og þakkar starfsfólki sýninga, sýnendum og öðrum sem að sýningum hafa komið á árinu, kærlega fyrir samstarfið.
Póstlisti
23.11.2008 - Ritstjóri
Þeir sem hafa áhuga á því að vera á póstlista deildarinnar endilega senda póst á ritstjóra.
Aðventuganga
8.11.2008 - Ritstjóri
Tökum forskot á aðventuna og hittumst hress í göngu uppí Sólheimakoti sunnudaginn 23. nóvember kl. 13.00. Að göngu lokinni verður boðið uppá hressingu.
Leiðbeiningar að komast að Sólheimakoti; Frá hringtorginu v. Rauðavatn er ekið eftir Suðurlandsvegi rúmlega 3 km. Þá er komið að vegamótum til vinstri-Hafravatnsleið. Við vegamótin er strætisvagnaskýli, ekið er á malbiki um 1 1/2 km, á leiðinni er keyrt fram hjá ca 5 ljósastaurum. Þá er komið að skilti á hægri hönd sem á stendur Sólheimakot, þar er beygt inn og ekið á malarvegi rúmlega 2 km þá er maður kominn á leiðarenda.
Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórnin
Úrslit í sporaprófi
4.11.2008 - Ritstjóri
Sporapróf HRFÍ var haldið á vegum vinnuhundadeildar og Schnauzerdeildar HRFÍ sunnudaginn 2. nóvember. Prófdómari var Albert Steingrímsson og prófstjóri Guðmundur Brynjólfsson. Tólf hundar mættu til leiks og komust færri að en vildu en fimm hundar stóðust prófið.
Stigahæsti hundurinn að þessu sinni var Schnauzer rakkinn ISCH Bláklukku Byr Rúfus Tindareifsson með 96 stig af 100 mögulegum. Annar var þýskur fjárhundur Kolgrímu Bond Hólm með 90 stig en það er frammúrskarandi árangur hjá einungis 10 mánaða gömlum hvolpi. Þriðji var Dobermann hundurinn Huldu Loyal Champ með 86 stig.
Schnauzer Bláklukku Byr Rúfus 96 stig
Þýskur fjárhundur Kolgrímu Bond Hólm Erró 90 stig
Dobermann Huldu Loyal Champ 86 stig
Dobermann Rhayder Elaine Dimma 80
Þýskur fjárhundur Gunnarsholts Qeen með 70 stig
Sporapróf-æfingar
23.10.2008 - Ritstjóri
Næsta æfing fyrir sporapróf HRFÍ verður sunnudaginn 26. október. Æfingahópur hittist við afleggjarann að Sólheimakoti kl 11 fh.
Æfingahópur fyrir sporapróf
15.10.2008 - Ritstjóri
Æfingahópur fyrir sporapróf Vinnuhundadeildar HRFÍ ætlar að hittast við Straum lista- og menningarmiðstöð (Straumsvík)laugardaginn 18. október kl 11 og við afleggjarann að Sólheimakoti þriðjudaginn 21. október kl 17.
Munið að taka með millihluti og endahluti, sporabeisli og línu, nammi og dót. Athygli er vakin á því að gert er ráð fyrir að fólk og hundar hafi sporað áður því ekki verður leiðbeinandi á staðnum.
Æfingar fyrir sporapróf
13.10.2008 - Ritstjóri
Æfingahópur fyrir sporapróf Vinnuhundadeildar HRFÍ ætlar að hittast næstu þriðjudaga kl 17 (þann 14., 21. og 28. október) og laugardagsmorgna kl 11 (18. og 25. október og 1. nóvember).
Þriðjudaginn 14. er ætlunin að hittast við Straum lista- og menningarmiðstöð (Straumsvík).
Munið að taka með millihluti og endahluti, sporabeisli og línu, nammi og dót. Athygli er vakin á því að gert er ráð fyrir að fólk og hundar hafi sporað áður því ekki verður leiðbeinandi á staðnum.
Gleðiganga og gleðiball Hrfi
9.10.2008 - Ritstjóri
Laugavegsganga HRFÍ verður laugardaginn 1. nóvember n.k.
Hundar og mannfólk leggja af stað frá Hlemmi kl.13:00, gengið verður niður Laugaveg og endað í Hljómskálagarðinum.
Skólahljómsveit Kópavogs slær taktinn í göngunni.
ÞEGAR KVÖLDA TEKUR........TEKUR GLEÐIN VÖLD
Gleðiball verður í félagsheimili Andvara þar sem diskótekið Dísa stjórnar stuðinu fram á nótt.
Veitingar eru seldar á góðu verði en leyfilegt er að koma með eigin drykkjarföng.
Húsið opnar kl.20:00.
Kreppuverð kr. 1.500 miðinn.
Hægt er að kaupa miða á skrifstofu, í göngunni hjá Valgerði eða við inngang í félagsheimili Andvara.
Hlökkum til að skemmta okkur saman í kreppunni.
Sporapróf
4.10.2008 - Ritstjóri
Sporapróf verður haldið á vegum Vinnuhundadeildar í samstarfi við Schnauzerdeild sunnudaginn 2. nóvember n.k. Dómari er Albert Steingrímsson.
Nánari upplýsingar um staðsetningu prófs og tíma verða auglýstar síðar.
Skráning fer fram á skrifstofu Hundaræktafélags Íslands eða á hrfi@hrfi.is. Skráning er ekki staðfest nema með greiðslu prófsins kr. 4500.
Vinsamlegast staðfestið eldri skráningar.
Laugavegsganga
2.10.2008 - Ritstjóri
1. NÓVEMBER - TAKIÐ DAGINN FRÁ FYRIR ÁRLEGU LAUGARVEGSGÖNGU HRFÍ
Ganga og gleði verður með breyttu sniði þetta árið, þó ekki gangan sjálf. Nánar auglýst síðar.
F. h. undirbúningsnefndar
Björn Ólafsson
Hanna Björk Kristinsdóttir
Valgerður Júlíusdóttir
Þakkir til starfsmanna sýningarinnar
2.10.2008 - Ritstjóri
Stjórn Hundaræktarfélags Íslands þakkar af alhug ykkur öllum sem komuð að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar 27.-28. september sl. Mikil vinna liggur að baki sýningum félagsins og væri óvinnandi vegur að halda þær nema með aðstoð ykkar félagsmanna.
Með kærri kveðju
f.h. stjórnar og sýningastjórnar HRFÍ
Valgerður Júlíusdóttir
Úrslit haustsýningar
29.9.2008 - Ritstjóri
Dvergschnauzer svartur
Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða - Svartskeggs Fabilous Black Queen
Dýralæknirinn Finn Bøserup frá Danmörku augnskoðar hunda í Sólheimakoti 10. - 11. október n.k.
Tímapantanir fara fram á skrifstofu Hrfí. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.200.- fyrir hund.
Takmarkað pláss er í hverja augnskoðun og rennur skráning út viku fyrir auglýsta skoðun. Knirinn Finn Bøserup frá Danmörku augnskoðar hunda í Sólheimakoti 10. - 11. október n.k.
Tímapantanir fara fram á skrifstofu Hrfí. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.200.- fyrir hund.
Takmarkað pláss er í hverja augnskoðun og rennur skráning út viku fyrir auglýsta skoðun.
Skráningarfrestur
27.8.2008 - Ritstjóri
Skráningarfrestur fyrir haustsýningu Hrfi rennur út föstudaginn 29. ágúst. Skráning fer fram í gegnum öruggan vefþjón hér.
Skráningarfrestur fyrir "Opna sýningu Mjóhundadeildar" rennur út á miðnætti 5. september nk. Nánari upplýsingar um skráningu á sýninguna er að finna hér http://www.123.is/mjohundar/page/19911/
Þessi opna sýning Mjóhundadeildar er fín þjálfun og æfing fyrir haustsýningu Hrfi.
Sýningarþjálfanir á vegum Schnauzerdeildar verða miðvikudagana 3. 10. 17. og 24. Sept. Kl. 20 í Reiðhöll Andvara.
Einnig verða sýningarþjálfanir á vegum unglingadeildar. Nánari upplýsingar hér.
Sýningarþjálfun
25.8.2008 - Ritstjóri
Sýningaþjálfun miðvikudagskvöld kl. 20:00 í Andvara
Athugið breytt staðsetning og breyttur tími.
Schnauzerdeild, Fuglahundadeild, Pinscher Mastiff og Fjallahundadeild ásamt Shih tzu deildmunu standa fyrir sýningaþjálfun á miðvikudagskvöldum fram að haustsýningu HRFÍ, í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum í Garðabæ.
Miðvikudaginn 3 sept. kl. 20
Byrjendur: Farið yfir helstu atriði sem gott er að vita áður en farið er með hund á sýningu. Grunnur að sýningaþjálfun. Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun með áherslu á sérkenni tegunda og einstaklinga. Farið yfir dóma sem hundar hafa fengið á fyrri sýningum.
Miðvikudaginn 10. sept. kl. 20
Hefðbundin sýningaþjálfun fyrir byrjendur og lengra komna.
Miðvikudaginn 17. sept. kl. 20
Hefðbundin sýningaþjálfun fyrir byrjendur og lengra komna.
Miðvikudaginn 24. sept. kl. 20
Byrjendur: Snögg upprifjun á helstu atriðum um fyrirkomulag sýninga. Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Lengra komnir: Hefðbundin sýningaþjálfun og æfing fyrir úrslit í stórum hring.
Ræktendur athugið! Ef þið ætlið að vera með ræktunar- eða afkvæmahóp látið leiðbeinendur vita í upphafi tíma ef þið viljið fá þjálfun fyrir ræktunar- eða afkvæmahóp.
Þátttökugjald er 500 kr. fyrir skiptið.
Munið sýningataum, kúkapoka og nammi eða dót sem hundurinn er hrifinn af.
Þeir sem vilja geta komið með dóma frá fyrri sýningum svo hægt sé að taka mið af þeim í þjálfuninni.
Gott er að viðra hundinn áður en komið er með hann í sýningarþjálfun.
Stjórnin
Opin sýning á vegum Mjóhundadeildar
18.8.2008 - Ritstjóri
Laugardaginn 20. september ætlar mjóhundadeild HRFÍ að halda opna sýningu fyrir grúppu 10, 2, íslenska fjárhundinn og unga sýnendur í reiðhöll Gusts. Dómarar verða þrír, Sigríður Pétursdóttir ásamt Yvonne Ljungqvist frá Svíþjóð auk dómara sem dæmir unga sýnendur. Yvonne hefur ræktað afghanhunda, en hefur komið að fjölmörgum öðrum tegundum, fremst vinnuhundum og smáhundum. Hún hefur dæmt opnar sýningar síðan 1988 í Svíþjóð, Englandi og Bandaríkjunum. Hún hefur haldið fjölmörg námskeið um ræktun og sýningu á hundum. Yvonne mun einnig halda fyrirlestur fyrir HRFÍ í vikunni eftir opnu sýninguna sem við vonumst til að sem flestir mæta á. Yvonne sýnir ekki bara hunda sína heldur hefur einnig náð góðum árangri í hundafimi, hlýðni og beituhlaupi.
Á sýningunni verða ítarlegir dómar og allt andrúmsloft kringum sýninguna frekar afslappað þar sem verður hægt að standa nálægt hringjunum og fylgjast með hundunum. Hinsvegar verða hvorki einkunagjöf, íslensk meistarastig né CACIB í boði, einungis sætaröðun. Flokkarnir verða þrir, hvolpa- ungliða- og fullorðinsflokkur. Verðið er 1.000,- fyrir hvolpa og 2.000.- fyrir eldri flokkana. Það verður frítt inn og hægt að kaupa vöfflur.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir hundaeigendur að koma saman, fá hundana sína dæmda og hita upp fyrir haustsýningu HRFÍ sem verður helgina eftir. Sýningin er alfarið á vegum deildarinnar og allar upplýsingar um reglur, skráningu og greiðslu er á heimasíðu deildarinnar www.mjohundar.is. Ágóði af sýningunni mun renna til styrktar kaupum á beituhlaupstæki.
Skráningarfrestur rennur út á miðnætti 5. september næstkomandi.
Með von um góða þátttöku og loforð um skemmtilega sýningu,
Mjóhundadeild
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag opinnar sýningar er að finna á deildarsíðu Mjóhundadeildar http://mjohundar.is/
Haustsýning Hundaræktarfélags Íslands
2.7.2008 - Ritstjóri
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin 27. - 28. september 2008 í Reiðhöll Fáks í Víðidal. Skráningu lýkur föstudaginn 29. ágúst 2008.
Skráning á sýninguna fer fram í gegnum öruggan vefþjón hér:
Dómarar verða: Agnes Kertes Ganami frá Ísrael, Juan Luis frá Mexíkó, Jose Luis Payro frá Mexíkó, Annaliisa Heikinen frá Finnlandi, Fredrik Norgren frá Noregi, Madalene Thorman frá Svíþjóð dæmir unga sýnendur.
Á þessari sýningu geta hundar fengið bæði íslensk- og alþjóðleg meistarastig. Nánari upplýsingar má sjá á síðu Hrfi. www.hrfi.is
Sýningarþjálfun Schauzerdeildar verður auglýst síðar.
Úrslit sumarsýningar HRFÍ
29.6.2008 - Ritstjóri
Úrslit sumarsýningar HRFÍ um helgina sem haldin var í reiðhöllinni í Víðidal.
Dómari: Rafael de Santiago
Dvergschnauzer svartur
BHT-1 SUCH PLCH Dark Prince Hermes
BHT-2 ISCH PLCH RUSJCH Daria Misurata
Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða Kolskeggs Emma Þalía sem varð einnig þriðji besti hvolpur dagsins í úrslitum 4-6 mánaða.
Dvergschnauzer svartur/silfur
BHT-1 Scedir Edgar Allan Poe sem varð einnig þriðji besti hundur í tegundahópi 2
BHT-2 Helguhlíðar Þorgerður Katrín
Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða Hjartagulls Belladís sem varð einnig annar besti hvolpur dagsins í úrslitum 6-9 mánaða.
Dvergschnauzer hvítur
BHT-1 Caruso of Taita´s Ushabti
Schnauzer pipar og salt
BHT-1 Bláklukku Bjartur Tómas
BHT-2 Bláklukku Dilla
Risaschnauzer svartur
BHT-1 African Sauda
Risaschnauzer pipar og salt
BHT-1 Bouvbear´s Njord Gram
Ræktunarhópur frá Ólafsvöllum var besti hópur laugardagsins.
Nánari úrslit verða birt síðar.
Við þökkum Vistor innflytjandi Hills fóðurs á Íslandi fyrir eignabikar til besta hunds tegundar í hverri tegund og Hundasnyrtistofunni ehf. fyrir eignabikar til besta hvolps í hverri tegund.
Sýningarþjálfun Schnauzerdeildar
20.6.2008 - Ritstjóri
Sýningaþjálfun Schnauzerdeildar verður miðvikudaginn 25. Júní kl. 21.00 í reiðhöll Gusts í Kópavogi.
Muna að vera með sýningartaum, nammi, skítapoka og síðast en ekki síst góða skapið.
Kostar 500 kr.
Dagskrá sýningar
15.6.2008 - Ritstjóri
Laugardagur 28. Júní
Úrslit samkvæmt dagskrá. Mæting í úrslit eigi síðar en kl. 13.25
Hringur III
Dómari: Rafael de Santiago
9:00-10:16 Dv schn sv 19
10:16-11:12 Dv schn sv&silfur 14
11:12-11:24 Dv schn hvítur 3
11:24-11:40 Schnauzer p&s 4
11:40-11:52 Risa schnauzer sv 3
11:52-11:56 Risa schnauzer p&s 1
Hlé
Deildarfundur
14.6.2008 - Ritstjóri
Áður auglýstum deildarfundi verður frestað um óákveðin tíma.
Stjórnin
Sýningarþjálfun Unglingadeildar
6.6.2008 - Ritstjóri
Sýningarþjálfun unglingadeildarinnar verður í reiðhöll Fáks í VÍÐIDAL sunnudagana 8, 15 og 22 Júní
Munið að mæta með sýningartaum, nammi/dót fyrir hundinn og skítapoka.
Hvert skifti kostar 500 krónur per hund. Allur ágóði rennur til styrktar ungum sýnendum sem keppa fyrir Íslands hönd erlendis. En unglingadeildin í samstarfi við HRFI sendir 4 keppendur á norðurlandamótið í ungum sýnendum, einnig eru sendir keppendur á CRUFTS, heimsýninguna og evrópusýninguna.
Athugið að þrífa upp eftir hundana og henda pokunum í ruslið.
Skráningarfrestur á Sumarsýningu framlengdur
31.5.2008 - Ritstjóri
Skráningafrestur á Sumarsýningu Hrfí 28.-29. júní nk. hefur verið framlengdur til miðnættis sunnudaginn 1. júní
Sýningarþjálfun Unglingadeildar
22.5.2008 - Ritstjóri
Sýningarþjálfun Unglingadeildarinnarfyrir sýninguna 28 - 29 júní
Í reiðhöll Gusts í kópavogi klukkan 19:00. Sýningaþjálfanir verða eftir talda daga:
Sunnudagurinn 25. maí kl 19:00
Sunnudagurinn 1. júní kl 19:00
Sunnudagurinn 8. júní kl 19:00
Æfingar fyrir ungasýnendur eru á sömu dögum frá klukkan 18:00 -19:00
Æfingarnar sem verða í Víðidalnum verða auglýstar síðar.
Skiptið kostar 500 kr. og rennur í sjóð til styrktar keppendum í Norðurlandakeppni ungra sýnenda sem fram fer í Danmörku á þessu ári.
Munið eftir skítapoka, nammi fyrir hundinn og sýningartaum!
Sjáumst hress!
Schnauzerdagur – heilsa og umhirða schnauzer hunda
13.5.2008 - Ritstjóri
Þriðjudaginn 20. maí kl. 20.00 ætla Steinunn, Ellen og Sif dýralæknar í Grafarholti að fræða okkur um almenna heilsu, tannhirðu, flösu, flösumaur og eyrnaumhirðu á hundunum okkar. Einnig verður fræðsla um skjaldkirtilsmælingar í risaschnauzer. Fyrirlesturinn verður haldinn í Dýralæknamiðstöðinni Grafarholti, Jónsgeisla 95 og kostar 1.000,- kr. sem veitir svo 10% afslátt af tannhreinsun. Fyrirlesturinn er opinn öllum hundaeigendum en þetta er fræðsla um heilsu og umhirðu sem gildir fyrir alla hunda. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Stjórnin
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands
5.5.2008 - Ritsjóri
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands verður haldinn í veislusal reiðhallarinnar í Víðidal fimmtudaginn 15. maí kl.20:00
Dagskrá:
1. Skipan fundarstjóra, fundarritara og lögmæti fundarins kannað
2. Skýrsla stjórnar HRFÍ
3. Ársreikningar félagsins ásamt skýrslum löggilts endurskoðanda og félagskjörinna skoðunarmanna fyrir síðastliðið ár, lagðir fram til staðfestingar
4. Skýrsla um starfsemi siðanefndar
5. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfstímabil
6. Lagabreytingar
Engar tillögur að lagabreytingum liggja fyrir
7. Kosning stjórnarmanna skv. 10.gr.
Úr stjórn ganga:
Guðríður Þ. Valgeirsdóttir, varaformaður
Valgerður Júlíusdóttir, ritari
Ástrós Gunnarsdóttir, meðstjórnandi
Í framboði í stjórnarkjöri:
Guðríður Þ. Valgeirsdóttir
Valgerður Júlíusdóttir
Friðrik Lunddal Gestsson
8. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna og tveggja til vara
9. Kosning siðanefndar
10. Önnur mál
Tvær tillögur hafa borist frá Guðríði Magnúsdóttur:
Tillaga 1:
,,Að tekinn verði upp utankjörfundarathvæðagreiðsla fyrir þá sem búa úti á landi vegna kosninga á aðalfundi HRFI og að tillagan fái frekari útfærslu hjá stjórn HRFI.
Greinargerð með tillögu 1: Þetta er félag allra hundeigenda, eins og félagið segir sjálft og ekki eiga allir heimangengt til að geta nýtt athvæðarétt sinn, og í lýðræðisfélagi sem ríkir á landsvísu þá á þetta ekki að vera nema sjálfagt mál að koma þessu í framkvæmd”
Tillaga 2:
,,Að allar fundagerðir hvort sem er hjá stjórn HRFI eða deildum félagsins og hvort sem um er að ræða félagsfundi eða aðalfundi verði aðgengilegar félagsmönnum á heimasíðu félagsins og deildanna”
Það skal áréttað, samkvæmt lögum HRFÍ, að kosningarétt og kjörgengi hafa þeir sem greitt hafa félagsgjald sitt fyrir það ár sem aðalfundur er haldinn á, fimm virkum dögum fyrir aðalfund. Greiðsluseðlar vegna félagsgjalds 2008 voru sendir til félagsmanna í janúar.
Stjórn Hundaræktarfélags Íslands
Snyrtinámskeið
30.4.2008 - Ritstjóri
Það er ennþá pláss fyrir tvo dvergschnauzer í viðbót á snyrtinámskeiðið sem verður upp í Sólheimakoti sunnudaginn 4. maí kl. 11. Áhugasamir skrái sig hér eða hafi samband við Líney s: 8996555
Snyrtinámskeið
24.4.2008 - Ritstjóri
Snyrtinámskeið verður haldið í Sólheimakoti sunnudaginn 4. maí kl. 11.00. Námskeiðið kostar 6.000 krónur og gert er ráð fyrir því að allir fari heim með vel reyttan og rakaðan hund. Gerið ráð fyrir að þetta taki allann daginn og takið með ykkur nesti. Boðið verður uppá kaffi.
Leiðbeinendur verða: Líney Björk Ívarsdóttir og Margrét Ásgeirsdóttir sem eru báðar ræktendur að dvergschnauzer og hafa sérhæft sig í snyrtingu tegundarinnar.
Skráning er hér eða í síma 8996555 (Líney). Ath. takmarkaður fjöldi.
Hlýðni brons próf 1. maí
24.4.2008 - Ritstjóri
Bronsmerki í hlýðni verður fimmtudaginn 1. maí kl.13:00. Prófað verður á bílastæði Marels hf., Austurhrauni 9, Garðabæ.
Bronsmerki í hlýðni verður haldið fimmtudaginn 1. maí nk. kl. 13.00
Fullbókað er í prófið, tekið er við skráningu á biðlista.
Skráning og greiðsla fer fram á skrifstofu HRFI í síma: 588-5255 eða á hrfi@hrfi.is
Hundafimi
13.4.2008 - ritstjóri
Íþróttadeild Hrfi ætlar að kynna fyrir dvergschnauzer hundafimi næsta sunnudag 20. apríl kl. 19.00 í reiðhöll Gusts í Kópavogi. Meðlimir Íþróttadeildarinnar verða á staðnum til leiðbeiningar.
Við hvetjum ykkur til að mæta og fá að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt og leyfa hundunum ykkar að spreyta sig í tækjunum undir góðri leiðsögn.
Munum skítapoka og 500 kr. þar sem greiða þarf fyrir leigu á reiðhöllinni. Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórnin
Augnskoðun
5.4.2008 - ritstjóri
Skráningarfrestur í augnskoðun rennur út föstudaginn 4. apríl nk. Þeir sem hafa nú þegar pantað pláss en ekki greitt eru vinsamlegast beðnir að ganga frá greiðslu hið fyrsta og fá staðfestan tíma.
Dýralæknirinn Finn Bøserup og Susanne Kaarsholm frá Danmörku augnskoða hunda í Sólheimakoti 11. - 12. apríl n.k.
Tímapantanir fara fram á skrifstofu. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.200.- fyrir hund.
Takmarkað pláss er í hverja augnskoðun og rennur skráning út viku fyrir auglýsta skoðun.
Það er skylda hjá fjölmörgum hundategundum að niðurstaða augnskoðunar liggi fyrir hjá undaneldisdýrum fyrir pörun. Vinsamlegast kynnið ykkur sérreglur ræktundardeilda fyrir „ykkar" hundategund.
Tvisvar sinnum á ári koma hingað til lands dýralæknar með sérmenntun í augnsjúkdómum hunda.
Dýralæknirinn augnskoðar hunda með tilliti til arfgengra sjúkdóma sem finnast í fjölmörgum hundategundum.
Kynning á skapgerðarmati
1.4.2008 - ritstjóri
Fimmtudaginn 3. apríl á skrifstofu HRFÍ kl. 19.30 − 21.30.
Dagskrá:
Hvað er skapgerðarmat?
Hvernig er hægt að nýta niðurstöðurnar?
Starfsfólk í skapgerðarmati.
Spurningar frá fundargestum.
Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja vita meira um skapgerðarmat og jafnvel vinna við það, en um þessar mundir er einmitt verið að leita að nýju starfsfólki.
Ætlast er til þess að hundar ákveðinna tegunda fari í skapgerðarmat áður en meistaratitill fæst viðurkenndur og eru eigendur þeirra sérstaklega hvattir til að mæta, ásamt fulltrúum viðkomandi deilda.
Aðalfundur fimmtudagskvöld
12.3.2008 - Ritstjóri
Minnum á aðalfund deildarinnar á fimmtudagskvöldið 13.mars að Síðumúla 15 108 Reykjavík, aðsetur Hundaræktarfélags Íslands. Kl. 20:00
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Úrslit
4.3.2008 - Ritstjóri
Um helgina var alþjóðleg sýning HRFI í reiðhöllinni í Víðidal. Margir fallegir schnauzerhundar mættu til leiks, dómari hjá okkur var Diane Andersson frá USA.
Úrslit voru eftirfarandi. (Ath ef einhver á myndir af sýningunni þá þiggjum við þær)
Vistor innflytjandi Hills fóðurs á Íslandi gaf fyrsta og öðru sæti í hverri tegund fallega eignabikara að gjöf og besta hvolp í hverri tegund hvolpamat og skjöld, eiga þau að sjálfsögðu þakkir skyldar fyrir stuðninginn.
Sýningaþjálfun
21.2.2008 - Ritstjóri
Minnum á að síðasta sýningaþjálfun deildarinnar er á laugardag Kl 16:00- 17:00. í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. Hlökkum til að sjá sem flesta, allir velkomnir.
Aðalfundur.
20.2.2008 - Ritstjóri
Aðalfundur Schnauzerdeildar verður haldinn fimmtudaginn 13.mars, Síðumúla 15. 108 Reykjavík, aðsetur Hundaræktarfélags Íslands. Kl . 20:00
Venjuleg aðalfundastörf.
Bæklingur
17.2.2008 - Ritstjóri
Á smáhundadögum um daginn var schnauzerdeild í fyrsta sinn með sinn eigin kynningabækling með myndum og almennum upplýsingum um tegundirnar. Við erum ofsalega stolt af bæklingnum okkar og stjórn vill sérstaklega þakka Ragnhildi Gísladóttur sem á heiðurinn af endalegri hönnun bæklingsins og eins Dýrheimum, innflytjenda Royal Canin sem styrkti gerð bæklingins, en án þeirra hefði þetta ekki tekist.
Dagskrá sýningar.
8.2.2008 - Ritstjóri
HRFI er búið að birta áætlun að dagskrá fyrir sýninguna í mars. Að þessu sinni erum við á sunnudeginum og dómari er Diane Anderson frá USA.
Jæja, þá blásum við í hundaflauturnar einu sinni enn: Hin árlega hunda-tegunda-kynning í Garðheimum er að bresta á! Og dvergschnauzer er auðvitað með.
Hundakynningar sem þessar eru orðnar fastur viðburður hjá Garðheimum.
Fjöldi hundaáhugafólks sækir sýningarnar á hverju ári og eru margir orðnir óþreyjufullir eftir næstu sýningu. Sífellt fleiri tegundir hafa verið kynntar til leiks í Garðheimum og er víst að um stórskemmtilega og afar líflega helgi verður nú um að ræða.
Sýningin verður haldin helgina 9. og 10. Febrúar Hún er opin almenningi frá klukkan 12-17 báða dagana.
Fyrir utan að kynnast æðislegum hundum verður nóg um að vera þessa helgi.
Sem dæmi má nefna:
Fóðurkynningar
Fóðurtilboð
Vörukynningar
Vörutilboð
Hundasnyrtir
Lukkupottar
Gleði, hamingja og bros á vör.....
Húðmaur (Cheyletiella)
2.2.2008 - Ritstjóri
Nú hefur komið í ljós að húðmaur (stundum kallaður flösumaur) hefur verið að herja svolítið á schnauzerhunda uppá síðkastið og það voru nokkrir hundar sýndir á deildasýningunni sem sjálfsagt voru smitaðir. Og þar sem að maurinn getur borist á milli hunda þótti eðlilegt að aðvara þá sem voru á sýningunnni og biðja fólk um að vera meðvitað. Húðmaurinn lifir aðeins á hundum (dýrum) en hinsvegar getur hann borist á milli hunda með fólki og snyrtiáhöldum. Ef hundurinn þinn sýnir einkenni húðmaurs, sem eru að hann klórar sér meira en venjulega og eða er með óvenjulega mikla hvíta flösu borgar sig að fara með hann til dýralæknis og láta tékka á þessu. Dýralæknir sér strax í smásjá hvort eitthvað kvikt sé á hundinum og getur meðhöndlað hann strax. Það er samt enginn þörf á að panika, aðeins vera meðvitaður og þetta er alls ekkert hættulegt, aðeins óþægilegt. Eins bendum við fólki á að að það getur ekki sakað að fá meðhöndlun, bæði vegna þess að hundur sýnir oft ekki nein einkenni fyrr en 3-5 vikum eftir smit og eins að þrátt fyrir að ekkert komi í ljós þá virkar efnið í nokkra mánuði og ver þá hundinn gegn ýmsu.
Myndir af deildasýningunni eru komnar á vefinn, hægt er að skoða þær hérna.
BHS 1 og BHS 2
Sýningaþjálfun Schnauzerdeildar.
22.1.2008 - Ritstjóri
Sýningaþjálfun fyrir marsýningu 2008, HRFI verður eftirfarandi daga í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.
Laugardaginn 2. febrúar
Laugardaginn 9. febrúar
Sunnudaginn 17. febrúar
Laugardaginn 23. febrúar
Kl 16:00- 17:00. Nauðsynlegt er að vera búnir að tæma húsið kl.17.00, vinsamlega virðið það.
Munið eftir nammi og skítapoka og ekki verra ef hundur er búin að losa sig áður en hann kemur á svæðið. Sýningaþjálfun kostar 500.- kr sem deildin fær í kaffisjóð til að kynna tegundina betur og halda úti heimasíðu. Öll vinna er unnin í sjálfboðavinnu.
Allir fullbólusettir hundar velkomnir !!
Úrslit
21.1.2008 - Ritstjóri
Stjórn Schnauzerdeildar langar að þakka öllum sem lögðu hönd á plóg við að gera okkar fyrstu deildasýningu að veruleika um helgina. Eins þökkum við að sjálfsögðu öllum sýnendum og áhorfendum fyrir yndislegan dag.
Dýrheimar ehf umboðsaðili Royal Canin á Íslandi gáfu öllum vinningshöfum verðlaunaplatta eða falleg glerverðlaun og eiga þau þakkir skyldar fyrir stuðninginn. Myndir og nánari úrslit koma inná vefinn seinna.
Deildasýning schnauzerdeildar.
14.1.2008 - Ritstjóri
Deildasýning Schnauzerdeildar verður haldin í reiðhöll Gusts, Glaðheimum í Kópavogi, laugardaginn 19. janúar og hefst kl. 10.00. Dómari er Željka Fon Zidar frá Slóveníu. Úrslit verða væntanlega á milli kl. 15 og 16 og reikna má um klst hádegishlé.
Sýndir verða 60 hundar af eftirtöldum hundakynjum og í þessari röð:
Ókeypis aðgangur er á sýninguna og er áhorfendum velkomið að taka með klappstóla og nesti (engin veitingasala) og koma sér fyrir við sýningahringinn.
Sýnendur athugið að engin teppi verða á hringjum og við hjálpumst að við að halda svæðinu hreinu og fínu!
Bestu kveðjur og góða skemmtun!
Stjórn schnauzerdeildar.
"Árshátíð" Schnauzerdeildar.
13.1.2008 - Ritstjóri
Nú styttist í sýninguna okkar og mikil spenna í lofti, dómarinn okkar kemur til landsins á föstudag og eftir sýningu á laugardagskvöld er hugmyndin að bjóða henni út að borða með okkur schnauzerfólki. Það eru allir velkomnir með okkur. Við stefnum á að fara á Fjörukrána í Hafnafirði og þetta er matseðill dagsins.
Sjávarréttasúpa.
Lambaprime með gljáðu grænmeti og timiansósu
Súkkulaðikaka með hindberjasósu
Verð á pakkanum er 4700.- en hægt er að sleppa eftirrétt og verðið án eftirréttar er 3800.-
Við hugsum þetta sem semí árshátíð schnauzerdeildar og því væru auðvitað ofsalega gaman að sjá sem flesta enda er þetta einstakt tækifæri fyrir okkur schnauzerfólk að hittast öll saman í tengslum við sýningu, með erlendum dómara og schnauzereiganda.
Þeir sem hafa áhuga á að koma með, endilega sendið línu á fridur@schnauzerdeild.comfyrir miðvikudag, en nánari upplýsingar koma seinna í vikunni.
Síðasti skráningadagur og sýningaþjálfun
4.1.2008 - Ritstjóri
Í dag er allra síðasti möguleiki að skrá á deildarsýningu Schnauzerdeildar en skráningafrestur rennur út í dag 4.jan, það virðist ætla að verða mjög góð þáttaka og það gladdi mjög dómarann sem er orðinn mjög spennt að koma.
Á sunnudag 6.jan ætlum við að halda sýningaþjálfun og að þessi sinni verður hún úti, en stefnan er sett á að hittast á bílastæðinu við Hjartavernd í Holtasmára 1 kl.14.00. Bílastæðið er yfirbyggt og upplýst og það er nokkuð gott skjól, en við mælum samt með að fólk komi vel klætt þar sem þetta er ekkert upphitað svæði. Verð er 500 kr og athugið að leggja bílunum áður en þið komið inná sjálft bílastæðið.
Húsnæði Hjartaverndar er merkt inná kortið með rauðri stjörnu, en það þekkist vel af rauðu hjarta á þaki hússins.
Og eins mun sýningarþjálfun Unglingadeildar Hundaræktarfélags Íslands verða í reiðskemmu Gusts í Kópavogi næstu tvo mánudaga.
Mánudaginn 7. janúar kl. 19-20
Mánudaginn 14. janúar kl. 19-20
Skiptið kostar 500 kr. og rennur í sjóð til styrktar keppendum í Norðurlandakeppni ungra sýnenda sem fram fer í Danmörku á þessu ári.
Göngu aflýst.
29.12.2007 - Ritstjóri
Vegna slæmrar veðurspár hefur fyrirhugaðari schnauzergöngu á sunnudegi verið aflýst.
Lengdur skráningafrestur.
18.12.2007 - Ritstjóri
Skráningafrestur á deildasýninguna hefur verið framlengdur til 4 janúar nk. Bendum samt fólki á að gjaldið hækkar um áramót og því margborgar sig að skrá fyrr en seinna.
Gamlársganga Schnauzerdeildar.
8.12.2007 - Ritstjóri
Schnauzerfólk takið sunnudaginn 30.des frá!
En þann dag ætlar schnauzerdeild að safna saman liði og kveðja árið saman með göngu, smákökum og heitu kakó fyrir utan bæjarmörkin. En hugmyndin er að hittast við vitann við Bláfjallaafleggjarann kl.14. Þetta er kjörið tækifæri til að hrista af sér slenið eftir jólafríið og komast aðeins í burtu frá ótímabærum sprengingum með hundinn og leyfa honum að hitta aðra ferfætlinga. Hlökkum til að sjá ykkur flest.
Stjórnin.
Deildasýning.
3.12.2007 - Ritstjóri
Schnauzerdeild heldur deildasýningu laugardaginn 19.janúar 2008 í Glaðheimum, Reiðhöll Gusts í Kópavogi.
Dómarinn heitir Željka Fon Zidar. Hún er frá Slóveníu og er fædd árið 1949. Željka hefur verið dómari síðan árið 1994 og er með alþjóðleg réttindi til þess að dæma tegundahópa 2, 3, 4 og 5 ásamt því að dæma unga sýnendur. Maður Željka er líka dómari og hefur réttindi til að dæma alla tegundahópa.
Željka talar auk slóvensku ensku, þýsku, ítalsku og SCG (talað í Slóvakíu). Željka á pipar-salt standard schnauzer. Gamlan hund sem er 17 ára en við góða heilsu og 6 ára tík sem hún flutti inn frá Rússlandi frá Yerusalimski.
Síðastliðið ár hefur annasamt þar sem Željka var í 3 vikur í Bejing í Kína með námskeið fyrir un