29.1.2012
Síðasti skráningafrestur hundasýning
17.2.2012
Augnskoðun 17-18 Feb.
25.2.2012
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ

Schnauzerganga
23.1.2012 - Ritstjóri
Schnauzerganga sunnudaginn 29. Janúar kl. 13:00
Fyrsta ganga ársins verður farin frá Barðastöðum 1-5 í Staðahverfi, Grafarvogi. Sjá nánar kort af bílastæði og gönguleið.  Næg bílastæði og stutt í náttúruna við Úlfarsá.
Lagt verður af stað kl. 13:00 og gengið í hring um golfvöllinn á Korpúlfsstöðum, áætlað að þetta taki um einn og hálfan tíma. Létt leið, engar brekkur, en getur verið snjóþungt, allt háð veðri. Munið eftir góðum gönguskóm, klæðnaði eftir veðurfari og skítapokum til að ekkert festist undir golfskónum í vor.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kveðja, göngunefndin
Ævar Örn, s: 860-9234 og Sigrún, s: 862-6969



Aðventuganga Schnauzer deildarinnar
28.11.2011 - Ritstjóri
Hin árlega Aðventuganga Schnauzer deildarinnar verður laugardaginn 3.desember og ætlum við að hittast á sama stað og í fyrra, Guðmundarlundi, kl.14:00 sjá slóð á kort hér neðar í auglýsingunni. Að göngunni lokinni ætlar deildin að bjóða upp á heitt kakó og smákökur en gott væri ef fólk tæki með sér plastmál að heiman til að drekka kakóið úr.
Guðmundarlundur er í nágrenni Elliðavatns.
- Farið er upp fyrir Kóra- og Þingahverfi í Kópavogi, af Vatnsendavegi um Þingmannaleið og upp með hesthúsahverfinu á Heimsenda  KORT
- Önnur leið er frá Breiðholtsbraut inn Vatnsendahvarf og Vatnsendaveg.
Svo er bara að klæða sig eftir veðri og koma með jólaskapið.

Hlökkum til að hitta sem flesta.

Göngunefndin
Ævar, sími: 860-9234  og Sigrún, sími: 862-6969



Besti Hundur Sýningar 2!
20.11.2011 - Ritstjóri
Í úrslitum sýningarinnar í gær urðu tveir Dvergschnauzerar í fyrst tveim sætunum í grúppu úrslitum en það hefur aldrei gerst áður. Í öðru sæti var svarti dvergschnauzer rakkinn Svartwalds Bright 'N' Shiny Future sem einnig varð Íslenskur meistari og í fyrsta sæti varð HCH HJCH ISCH Szentendrei Ördög All Right "Orri".
Orri mætti svo aftur í dag til að keppa í BESTI HUNDUR SÝNIGAR og náði þeim stórkostlega árangri að verða Annar Besti Hundur Sýningar! Þetta er besti árangur sem Schnauzer hefur gert á stórri Hrfí Sýningu.
Deildin óskar eigendum Orra til hamingju með þennan stórglæsilega árangur.





Úrslit vinnuprófa
14.11.2011 - Ritstjóri
Sporapróf Schnauzerdeildarinnar fór fram laugardaginn 16 október síðastliðin. Að þessu sinni var bæði keppt í Spor 1 og Spor 2. Prófin voru opin öllum tegundum og voru 7 hundar skráðir í þessi tvö próf. Dómari var Albert Steingrímsson, prófstjóri var Guðjón Ármann Halldórsson og ritari var Haukur Birgisson.

Úrslit í Spor 1 voru:
Sæti Stig Hundur tegund Eigandi
1. sæti 98 Ice Tindar Bravo Schafer Bryndís Kristjándsdóttir
- 40 Svarthöfða Joy Dvergschnauzer Anna D. Hermannsdóttir
- 0 Welincha´s Yasko Schafer Sirrý Halla Stefánsdóttir

Úrslit í spor 2 voru:
Sæti Stig Nafn hunds Tegund Eigandi
1. sæti 98 Ice Tindra Aragon Schafer Kirstjana Bergsteinsdóttir
2. sæti 90 Kolgrímu Bond Hólm Schafer Friðrik Friðriksson
 - 0 Svarthöfða Javer Frosti Dvergschnauzer Guðbjörg Guðmundsdóttir
ME. 0 Bláklukku Byr Rúfus Schnauzer Valgerður Stefánsdóttir


Bryndís 1.sæti í Spor1, Guðjón prófstjóri, Albert dómari, Kristjana 1.sæti Spor2, Friðrik 2.sæti Spor2 og Ragnhildur fulltrúi deildarinnar

Hlýðnipróf Schnauzerdeildarinnar fór fram sunnudaginn 13 nóvember síðastliðin. Keppt var í Hlýðni 1 prófi, var prófið opið öllum tegudum og voru 6 hundar skráðir í prófið. Dómari var Björn Ólafsson, prófstjóri var Lovísa Bragadóttir og ritari var Guðbjörg Guðmundsdóttir. Allir hundarnir náði 1. einkunn og náðu 5 efstu hundarnir sér í silfurmerkið

Úrslit í hlýðni 1 voru:
Sæti Stig> Nafn hunds Tegund Eigandi
1. sæti 195,5 Kolgrímu Blaze Hólm Schafer Sirrý Halla Stefánsdóttir
2. sæti 190 Lei-Anns Bodil Malino Ylfa Ólafsdóttir
3. sæti 189,5 Svarskeggs Black Pearl Risaschnauzer Ragnhildur Gísladóttir
4. sæti 183 Stefsstells Skrúður Íslenskur fjárhundur Elma Cates
5. sæti 172 Helja blendingur Ragnhildur Gísladóttir
6. sæti 167 Bjarkarkots Dimma Nótt Íslenskur fjárhundur Elma Cates


Ylfa 2.sæti, Björn dómar, Sirrý Halla 1.sæti, Ragnhildur 3. og 5.sæti og Elma 4. og 6.sæti

Verslunin Bendir í Hlíðarsmára 13 Kópavogi styrkti prófin með gjöfum handa fyrstu 3 sætunum í öllum prófunum og þakkar stjórn Schnauzerdeildarinnar Bendi kærlega fyrir.



Kynningarbás
10.11.2011 - Ritstjóri
Stjórn Schnauzerdeildarinnar ákvað að hafa kynningarbás á næstu sýningu HRFÍ.

Við leitum nú af áhugasömu fólki til að vera á bás þessa tvo daga í ca 1-2 tíma í senn.
Allar stærðir og alla liti ;)
Einu skilyrðin sem þarf að uppfylla er glaðlegt viðmót hunds og eiganda.
Það er engin krafa um að hundurinn sé í "sýningarfeld". Loðnir og niðurrakaðir hundar eru að sjálfsögðu velkomnir.

Þeir sem hafa áhuga á að vera á kynningarbás vinsamlegast sendið póst á Ragnhildi ragga@schnauzerdeild.com eða hringja í 8651945 og takið fram hvernig hund þið eruð með, hvaða tími hentar best og hvort þið getið verið báða dagana.



Skoða allar fréttir