19.5.2012
Nýliðadagurinn
22.5.2012
Sýningarþjálfun
30.5.2012
Sýningarþjálfun
2.6.2012
Augnskoðun 2-3 júní
23.6.2012
Ólafsvallarhátíðin

Sólheimakot
18.5.2012 - Ritstjóri

Leiðbeiningar að komast að Sólheimakoti; Frá hringtorginu v. Rauðavatn er ekið eftir Suðurlandsvegi rúmlega 3 km. Þá er komið að vegamótum til vinstri-Hafravatnsleið. Við vegamótin er strætisvagnaskýli, ekið er á malbiki um 1 1/2 km, á leiðinni er keyrt fram hjá ca 5 ljósastaurum. Þá er komið að skilti á hægri hönd sem á stendur Sólheimakot, þar er beygt inn og ekið á malarvegi rúmlega 2 km þá er maður kominn á leiðarenda.


 




Sýningarþjálfun
14.5.2012 - Ritstjóri
Miðvikudagur 16. maí kl. 20:00 - 21:00 og 21:00 - 22:00
Þriðjudagur 22. maí kl. 21:00 - 22:30
Miðvikudagur 30. maí kl. 20:00 - 21:00 og 21:00 - 22:00
Skiptið kostar 500kr. Munið eftir sýningartaum, nammi og kúkapoka.
Allar tegundir velkomnar.



Nýliðadagurinn
10.5.2012 - Ritstjóri

Laugardaginn 19.maí er stefnan sett á að vera með annan nýliðadag deildarinnar í Sólheimakoti. 

Dagurinn byrjar kl.14.00
Líney Ívarsdóttir mun verða með kynningu á almennri feldumhirðu á schnauzerhundum,  
Margrét Kjartansdóttir verður með kynningu stutta kynningu á deildinni og kynningu um tjáningu hunda og þroska hvolpa,
Guðbjörg Guðmundsdóttir mun verða með kynningu á vinnu fyrir hunda.

Og hvolparnir og aðiri nýliðar fá að leika sér saman úti. 

Nýliðadagurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem eiga hunda undir 1.árs (fullbólusetta) en allir sem eiga schnauzerhunda eru að sjálfsögðu velkomnir.   Boðið verður uppá kaffi og meðlæti.




Augnskoðun
10.5.2012 - Ritstjóri
Augnskoðun í Reykjavík 
2.- 3. júní 2012

Jens Kai Knudsen frá Danmörku mun augnskoða hunda á Korputorgi (á sýningasvæðinu) 2. og 3. júní nk. Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður.

Síðasti skráningardagur í augnskoðun er föstudaginn 25. maí 2012.

Það er skylda hjá dvergschnauzer að niðurstaða augnskoðunar liggi fyrir hjá undaneldisdýrum fyrir pörun. Augnvottorð má ekki vera eldra en 18 mánað við pörun. Hægt er að sjá í gagnargunn deildarinn hvernær hundur var síðast skoðaður.

Dýralæknirinn augnskoðar hunda með tilliti til arfgengra sjúkdóma sem finnast í fjölmörgum hundategundum.

Úr lögum HRFÍ
•Áður en hundur er augnskoðaður, mjaðma- og/eða olnbogamyndaður, skal hann örmerktur (húðflúr).
•Auk þess skulu hundar sem taka þátt í viðburðum á vegum félagsins t.d. sýningum, veiði- hlýðni og sporaprófum svo og skapgerðarmati, einnig vera örmerktir (húðflúr).
•Þetta ákvæði gildir fyrir alla hunda, óháð fæðingardegi.
•Sé þetta ákvæði ekki uppfyllt hefur hundur, ekki rétt til þátttöku.
(Gildir frá 1. janúar 2004).




Schnauzerganga sunnudaginn 6. Maí kl. 11:00
30.4.2012 - Göngunefnd

Fékk ábendingu um þessa gönguleið í síðustu göngu og nú er bara að skella sér !! Fyrirhugað er að ganga að Helgufossi í Mosfellsdal og hittast kl. 11:00 hjá eyðibýlinu Bringum sem er um 2km. fyrir ofan Gljúfrastein. Ekið er í gegnum Mosfellsbæ og beygt inn á veg 36 til Þingvalla. Sjá nánar á kortinu. Háspennulínan endar við bílastæðið og er það gott kennileiti. Malarvegur er frá þjóðveginum. GPS tækið mitt þekkti Helgufoss og vísaði veginn. Munið eftir góðum gönguskóm, klæðnaði eftir veðurfari og skítapokum. Það er ekki löng ganga að fossinum, en þarna er ágætt leiksvæði. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, göngunefndin Ævar Örn, s: 860-9234 (hringið eftir frekari leiðalýsingu) og Sigrún, s: 862-6969

 




Skoða allar fréttir