Á döfinni

Hundaganga 20. desember kl. !3:00. Hittast við Olís (Norðlingaholt v/Vesturlandsveg), þaðan farið að Silungapolli. Taka með nesti.

Hundaganga 10. janúar kl. 13:00. Hittast við Vífilsstaðavatn og keyra þaðan á góðan stað.


 

 

Írsk setterklúbburinn á Íslandi var stofnaður 24. apríl 1978 í kjölfar komu tveggja fyrstu írsk setter hundanna til landsins.
Þessir tveir hundar komu frá Noregi og hétu Holmes Are N3945/75 og var eigandi hans Vilhjálmur Þórðarson,
og Narefjells Audur N/7124/75 en eigandi hans var Jón Kristjánsson.  
Írsk setterklúbburinn var stofnaður í kringum þessa 2 hunda og afkvæmi þeirra.
Klúbburinn starfaði af miklum krafti fyrstu árin en svo dalaði starfsemin vegna innflutningshafta á hundum.
Deildin var síðan endurvakin 28.01.1988 og hefur starfað óslitið síðan þá sem ræktunardeild innan
Hundaræktarfélags Íslands.

Markmið deildarinnar er að vinna að góðri ræktun heilbrigðra írsk setter hunda ásamt því að fræða,
upplýsa og flytja fréttir af framgangi tegundarinnar á Íslandi.

 



Pay Per Click Management

© Írsk Setterdeild HRFÍ. Allur réttur áskilinn
Vefsíða Anja B. Kristinsdóttir