| Ný heimasíða deildarinnar Skráð þann: 31.1.2008 16:07:10 |
Ný síða í smíðum, endilega kíkið við og sendið inn upplýsingar um hundanan ykkar.
Slóðin er http://www.123.is/enskurcocker/
|
| Enskir cocker spaniel hvolpar til sölu Skráð þann: 25.8.2007 21:32:48 |
2 yndislegir enskir cocker spaniel hvolpar /rakkar til sölu. Eru orange roan að lit.
Foreldrar Classicway Cambridge Blue og Stardew Strange Foreign Beauty. Hvolparnir afhendast með ættbók frá Hrfí, heilsufærsskoðaðir, ormahreinsaðir, bólusettir og örmerktir.
Einungis góð framtíðarheimili koma til greina.
Upplysingar í síma 663-5521.
|
| Enskir cocker spaniel hvolpar til sölu Skráð þann: 19.6.2007 18:50:17 |
Fæddir eru æðislegir enskir cocker spaniel hvolpar, 4 orange roan rakkar , 1 orange roan tík og 1 blue roan tík. Hvolparnir eru undan Stardew Strange Foreign Beauty sem er með 2 ísl meistarastig og 1 alþjóðlegt og hefur verið 1 sinni valin besta tík tegundar og Classicway Cambridge Blue sem er með 3 ísl meistarastig og 2 alþjóðleg. Hvolparnir verða tilbúnir til afhendingar 16 ágúst heilbrigðisskoðaðir, örmerktir og bólusettir. Þessar krúsídúllur bíða eftir að komast á góð framtíðarheimili.
Upplýsingar hjá Írisi í síma 587-5521 eða 663-5521.
|
| Ný slóð á heimasíðu Bjarkeyjar-ræktunar Skráð þann: 19.6.2007 16:33:15 |
Heimasíða Bjarkeyjar-ræktunar er núna http//www.sperdill.is
Þar má sjá allar helstu fréttir varðandi ræktun á enskum cocker spaniel.
|
| Enskir cocker spaniel-hvolpar til sölu. Skráð þann: 20.4.2007 15:43:42 |
Hvolparnir, 3 tíkur og 1 rakki, eru undan Classicway Cambridge Blue sem hefur hlotið 3 íslensk meistarastig á jafnmörgum sýningum HRFÍ, auk tveggja alþjóðlegra meistarastiga. Móðirin er Bjarkeyjar Mata Hari, sem hefur verið sýnd á einni sýningu HRFÍ og sigraði þá tíkarflokkinn. Hvolparnir eru tilbúnir til afhendingar 24.apríl og verða afhentir örmerktir, bólusettir og heilbrigðisskoðaðir. Eingöngu góð framtíðarheimili koma til greina.
Upplýsingar um hvolpana gefur María í síma 694 9980 og Inga (Bjarkeyjar-ræktun) í síma 487 8070.
Hægt er að sjá myndir af hvolpunum á http://www.sperdill.is
|
| Ársfundur deildarinar Skráð þann: 19.3.2007 21:51:38 |
Góðan dag !
Ársfundur deildarinnar verður í Sólheimakoti föstudaginn 30. mars 2007 kl. 20:00. Endilega borgið félagsgjöldin svo þið getið tekið þátt í kosningunni. kv. stjórning.
|
| Nýr cocker á leið til landsins Skráð þann: 25.2.2007 13:21:47 |
Sæl, ég heiti Hjördís og ég á svarta cocker tík sem ég flyt með mér heim til Íslands í maí. Hún losnar úr einangrun í júní. Ætlunin er að sýna hana á októbersýningunni.
Mig langaði að benda ykkur á síðuna http://www.cocker.no en þetta er mjög stór gagnagrunnur yfir enskan cocker. Þið getið skráð ykkar hunda þarna inn, en ef foreldrar eða afar og ömmur eru ekki skráð, þarf að skrá þau inn fyrst.
Hérna er mín tík (ég á eftir að setja inn mynd) http://www.cocker.no/registry/13285/Tears+Of+Joy+No+Balance.html
Kveðja Hjördís.
|
| Nýr cocker á leið til landsins Skráð þann: 25.2.2007 13:15:44 |
Sæl, ég heiti Hjördís og ég á svarta cocker tík sem ég flyt með mér heim til Íslands í maí. Hún losnar úr einangrun í júní. Ætlunin er að sýna hana á októbersýningunni.
Mig langaði að benda ykkur á síðuna http://www.cocker.no en þetta er mjög stór gagnagrunnur yfir enskan cocker. Þið getið skráð ykkar hunda þarna inn, en ef foreldrar eða afar og ömmur eru ekki skráð, þarf að skrá þau inn fyrst.
Hérna er mín tík (ég á eftir að setja inn mynd) http://www.cocker.no/registry/13285/Tears+Of+Joy+No+Balance.html
Kveðja Hjördís.
|
| Næsta sýning HRFÍ 3.- 4.mars 2007 Skráð þann: 12.1.2007 19:38:54 |
Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal
Reykjavík 3.-4. mars 2007
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 2. feb.
Dómarar: Sean Delmar Írland, Cathy Delmar Írland, Johan Juslin Finnland og
Birgit Seloy Danmörk.
|
| Sýningarþjálfun Skráð þann: 12.1.2007 19:35:24 |
Nú fara sýningaþjálfanir á vegum unglingadeildarinnar að hefjast aftur og verða í REIÐHÖLL GUSTS Í KÓPAVOGI!.
Skiptið kostar 500.- kr. og rennur ágóðinn í sjóð til styrktar keppendum í Norðurlandakeppni ungra sýnenda sem haldin verður á Nordic winner sýningum ár hvert og mun Ísland taka þátt í hvert sinn. Nú í ár verður keppnin haldin í Svíþjóð.
Sýningaþjálfun verður eftirfarandi daga kl. 19-20.
Sunnudaginn 14. janúar
Sunnudaginn 21. janúar
Sunnudaginn 28. janúar
ATH! Sunnudaginn 4. febrúar verður sýningaþjálfunin kl. 20-21.
|
| Hundaganga 12. nóvember 2006 Skráð þann: 3.11.2006 13:43:45 |
Formenn deilda, stjórnarmenn deilda og tengiliðir,
Jæja þá er komið að árlegri Laugavegsgöngu félagsins, sem leggur af stað frá Hlemmi kl. 13, sjá www.hrfi.is
Á fundi sem haldinn var með þeim deildum sem sendu fulltrúa til að koma að undirbúningi göngunnar og gleðinnar var samþykkt að hver deild/tegund reyni að halda sínum hóp saman í göngunni. Þannig teljum við að það myndist betri heildarsvipur. Að auki eru þær deildir sem halda úti vefsíðu, vinsamlegast beðnar um að setja tilkynningu á heimasíðuna um gönguna og gleðina.
Vegna forfalla eru örfáir miðar lausir í matinn og ballið um kvöld, vinsamlegast látið ykkar fólk vita.
Ef tölvupósturinn berst ekki á réttan stað, vinsamlegast látið okkur vita.
Bestu kveðjur,
Hanna Björk Kristinsdóttir
Hundaræktarfélag Íslands
The Icelandic Kennel Club
hannabk@hrfi.is
www.hrfi.is
|
| Framboðsfundur 16. maí 2006 Skráð þann: 12.5.2006 12:13:56 |
Komið þið sæl.
Ljóst er að sex manns bjóða sig nú fram til stjórnar HRFÍ og fögnum við í stjórn Úrvalsdeildar vaxandi áhuga félagsmanna á að starfa í þágu HRFÍ.
Komið hefur upp sú hugmynd að boða til kynningarfundar og bjóða öllum frambjóðendum að koma og kynna sínar áherslur.
Fundurinn yrði haldinn í veitingasal reiðhallar Gusts þriðjudaginn 16. maí næstkomandi kl. 20-22 og verður að sjálfsögðu opinn öllum félagsmönnum.
Með bréfi þessu er því verið að athuga áhuga deilda á slíkum fundi þar við getum öll tekið þátt í þátt í málefnalegri og uppbyggilegri umræðu um félagið okkar.
Með bréfi þessu er því verið að kanna hljómgrunn deild við þessari hugmynd. Vinsamlegast sendið svar á huldajo1@simnet.is.
Svar óskast í dag svo hægt sé að bjóða frambjóðendum og auglýsa fundinn í tíma.
Með bestu kveðju
F.h. stjórnar Úrvalsdeildar
Hulda Jónasdóttir
|
| Stjórn HRFI Skráð þann: 12.5.2006 12:12:52 |
Komið þið sæl.
Ljóst er að sex manns bjóða sig nú fram til stjórnar HRFÍ og fögnum við í stjórn Úrvalsdeildar vaxandi áhuga félagsmanna á að starfa í þágu HRFÍ.
Komið hefur upp sú hugmynd að boða til kynningarfundar og bjóða öllum frambjóðendum að koma og kynna sínar áherslur.
Fundurinn yrði haldinn í veitingasal reiðhallar Gusts þriðjudaginn 16. maí næstkomandi kl. 20-22 og verður að sjálfsögðu opinn öllum félagsmönnum.
Með bréfi þessu er því verið að athuga áhuga deilda á slíkum fundi þar við getum öll tekið þátt í þátt í málefnalegri og uppbyggilegri umræðu um félagið okkar.
Með bréfi þessu er því verið að kanna hljómgrunn deild við þessari hugmynd. Vinsamlegast sendið svar á huldajo1@simnet.is.
Svar óskast í dag svo hægt sé að bjóða frambjóðendum og auglýsa fundinn í tíma.
Með bestu kveðju
F.h. stjórnar Úrvalsdeildar
Hulda Jónasdóttir
|
| Ganga á sunnudaginn 12. mars 2006 Skráð þann: 8.3.2006 16:35:49 |
Sælt verið fólkið!
Nú ætlum við að hittast á sunnudaginn 12. mars kl. 11:00 við Rauðavatn. Farið að nýju Morgunblaðshöllinni þar er hægt að keyra niður að vatninu haldið áfram alveg innúr og að innsta bílastæðinu en þar ætlum við að hittast. Byrjum á því að hafa hundana í taumi fyrstu mínúturnar á meðan mesta stressið er að fara... svo er gengið í um það bil klst.
Muna líka að koma með "skítapoka" og að klæða sig eftir verðri.
Eftir gönguna ætlum við svo að fá okkur hressingu og spjalla saman á kaffiteríunni í Húsgagnahöllinni.
Vonast til að sjá sem flesta cocker-eigendur... :) :) :)
|
| Hundaganga og kaffi Skráð þann: 6.10.2005 16:11:37 |
Hæ allir ! Sunnudaginn 16.október kl. 11:00 verður næsta cocker ganga heima hjá Írisi og Nalla. Þau eru flutt í nýtt hús í Mosfellsbæ. Finna Bjargsveg keyra hann þar til þú kemur að enda götu, þá til vinstri.
Upplýs. Íris sími 587-5521
|
| Sýningarbás HRFÍ 1. og 2. október Skráð þann: 18.9.2005 18:21:53 |
Margrét Steindórsdóttir mun sjá um básinn fyrir okkar deild. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í vinnunni í básnum og sýna hundinn sinn þar hafið sambandi við hana í s: 898-2051 eða email mst@isl.is
|
| Ganga í Heiðmörk 13. feb Skráð þann: 11.2.2005 08:23:53 |
Kæru cocker-eigendur.
Væri ekki fínt að smella sér í göngu á sunnudaginn? Ætlunin er að reyna við Heiðmörkina aftur en í desember gengum við nokkur þar góðan hring.
Hittumst á bílastæðinu við Vígsluflöt kl. 11:00 og genginn hringur þaðan. Ef ekið frá Reykjavík, þá er beygt til hægri við Rauðhóla, ekið fram hjá Elliðavatni og áfram inn eftir Mörkinni. Stórt bílastæði er við Vígsluflöt. Sjá annars meðf. slóð að korti. Nú er mikilvægt að hafa taum og skítapoka með, þar sem við göngum um viðkvæmt svæði.
Bestu kveðjur, göngunefndin
http://www.skograekt.is/heidmork/kort_ellidavatnsheidi.html
|
| Rauðavatnsganga sunndaginn 16. janúar Skráð þann: 11.1.2005 11:26:56 |
Sæl öll sömul og gleðilegt ár.
Er ekki kominn tími til að skella sér í göngu með hundana?
Stefnan verður tekin á Rauðavatn. Hittumst á bílastæðinu í hlíðinni norðanmegin við vatnið kl. 11:00 sunnudaginn 16. jan.
Muna eftir að hafa tauminn með og svo auðvitað skítapoka.
Með göngukveðju,
Sibba og Solla
Sigrún og Milla
|
| Aðventuganga Skráð þann: 1.12.2004 14:01:03 |
Sælt veri fólkið.
Ákveðið hefur verið að efna til hundagöngu á aðventu, sunnudaginn 5. desember, sem verður þá síðasta auglýsta hundagangan á þessu ári.
Að þessu sinni verður gengið um Heiðmörk (Reykjavíkurmegin). Hist á bílastæðinu við Vígsluflöt kl. 11:00 og genginn hringur þaðan. Ef ekið frá Reykjavík, þá er beygt til hægri við Rauðhóla, ekið fram hjá Elliðavatni og áfram inn eftir Mörkinni. Stórt bílastæði er við Vígsluflöt. Sjá annars meðf. slóð að korti.
Nú er mikilvægt að hafa taum og skítapoka með, þar sem við göngum um viðkvæmt svæði en við ákváðum að taka sénsinn, þar sem ekki er von á að margir séu á ferli á aðventunni á þessum tíma.
Bestu kveðjur,
göngunefndin
http://www.skograekt.is/heidmork/kort_ellidavatnsheidi.html
|
| Hvolpar Skráð þann: 24.11.2004 22:12:02 |
Fjórir hvolpar fæddust 20. október sl. undan Charbonnel Schumacker og Charbonnel Lizette. Erum með þrjá rakka og eina tík, öll svört að lit. Hundarnir okkar eru ættbókarfærðir hjá HRFÍ og er afhending í janúarmánuði.
Upplýsingar og myndir eru að finna á heimasíðu okkar http://dyraland.is/dyr/22862
Mbkv,
Vigdís
vigdisg@isl.is
899-9525
|
| Hvuttadagar. Skráð þann: 17.11.2004 20:31:37 |
Vil ég leiðrétta hér fréttina fyrir neðan. Hvuttadagar eru
20 og 21 nóvember.
|
| Út að ganga. Skráð þann: 8.11.2004 22:41:39 |
Hvernig væri það að við myndum nú fara að vera dugleg
í að mæta í göngurnar með hundana okkar og viðra okkur í
leiðinni. Eitthvað sem allir hafa gaman af.
Það er búið að vera léleg mæting síðustu skipti og gaman
væri nú að sjá ný andlit og sjá fleiri hunda. Og vil ég
minna ykkur og þá sem ekki vita eru hvuttadagar næstu helgi
þann 13 og 14 nóvember í reiðhöll Gusts. Og verður bás
enska cocker spaniels hundsins á staðnum.
|
| Gangan á sunnudaginn! Skráð þann: 4.11.2004 18:53:48 |
Þetta ætlar að ganga illa hjá mér að koma þessu inn en gangan er á sunnudaginn kl. 11:00 07.11.2004 og er við Rauðavatn á gamla góða staðnum..
kv. sibba
|
| Gangan á sunnudaginn! Skráð þann: 4.11.2004 18:52:09 |
|
| Næst ganga! Skráð þann: 4.11.2004 18:51:41 |
Næsta ganga verður sunnudaginn 7. nóvember 2004 kl. 11:00 á sama stað og venjulega - mætum nú öll og muna að taka með sér "kúkapoka".
Hlakka til að sjá ykkur sem flest..
kv. Sibba
|
| hehe.....munda Skráð þann: 3.10.2004 15:47:55 |
Hæhæ ég er að leita mér að öðrum enskum cocker spaniel svo að munda geti eignast hvolpa! er eikker líkur á að finna hundana hér...? :) ég bíð spennt eftir eikkerum ef svo er!...:)
|
| Rauðavatnsganga sunndaginn 3. október Skráð þann: 30.9.2004 11:38:37 |
Fyrsta sunnudag í mánuði eru Rauðavatnsgöngur hjá ECS - deildinni.
Hittumst á bílastæðinu í hlíðinni við norðanvert vatnið kl. 11:00. Muna eftir taum og poka.
Bestu kveðjur,
göngunefndin
|
| Gönguferð á sunnudaginn 19. sept. Skráð þann: 16.9.2004 20:31:00 |
Á sunnudaginn 19.sept förum við í gönguferð að óþekktri nátturuperlu í nágrenni Hafnarfjarðar.
Mér var kynntur þessi staður í sumar á ferð með gögnuhóp og var það mál manna að það er furðulegt að önnur eins perla skuli nánast óþekkt þrátt fyrir að vera rétt fyrir utan hafnarfjörð.
Við hittumst við kirkjugarðinn í hafnarfirði kl 11:00 og keyrum síðan sem leið liggur á til Keflavíkur og beygjum síðan inn afleggjarann að Keili. Meira verður ekki sagt að sinni........
Ó já og munið eftir hundinum og vatni fyrir ykkur bæði.
|
| Rauðavatnsganga sunnudaginn 5. september Skráð þann: 1.9.2004 09:25:21 |
Fyrsta ganga haustsins verður á Hólmsheiðinni n.k. sunnudag. Hittumst á bílastæðinu við norðanvert Rauðavatn kl. 11:00 og göngum í u.þ.b. klukkutíma.
Við miðum væntanlega við að halda okkur við göngur fyrsta sunnudag í mánuði og væru hugmyndir að gönguleiðum vel þegnar. Eins ef einhverjir vilja sjá um ákveðnar göngur.
Muna eftir að taka taum og skítapoka með.
Með göngukveðjum,
Sigrún, Sibba og Margrét
|
| Esjuganga 1. júlí 2004 Skráð þann: 23.6.2004 14:23:49 |
Hundaganga á Esjuna
Hvernig væri að skella sér í eina kvöldgöngu að sumri með hundana?
Hittumst á bílastæðinu við Esjurætur (Mógilsármegin) fimmtudagskvöldið 1. júlí kl. 20:00 og stefnum á toppinn. Ef illa viðrar til fjallgöngu, göngum við í Esjuhlíðunum en þar er líka skemmtilegt að ganga.
Með sumar kveðju,
Sibba og Solla
Sigrún og Milla
|
| Ársfundur ECS deildar Skráð þann: 4.6.2004 11:12:01 |
Því miður gátum við ekki fengið að hafa fundinn á Lækjarbrekku svo
hann verður í staðinn í Logasölum 8, Kópavogi heima hjá mér..
kær kveðja.. Sigurbjörg Traustadóttir s. 690-6004
|
| Ársfundur ECS Skráð þann: 28.5.2004 12:23:45 |
Ársfundur ESC deildar verður haldinn þriðjudaginn 8. júní kl. 20:00
á Lækjarbrekku.
Með kveðju,
Sigurbjörg Traustadóttir
|
| Fjöruferð sunnudaginn 9. maí Skráð þann: 5.5.2004 08:54:06 |
Síðasta hundaganga vorsins verður n.k. sunndag 9. maí. Af því tilefni var ákveðið að hafa aðeins meira við og verður stefnan tekin á Stokkseyri, þar sem verður gengið um fjörur og endað á veitingastaðnum "Við fjöruborðið".
Hittumst við veitingastaðinn "Við fjöruborðið" kl. 12:00 (ath. að þá þarf að leggja af stað úr bænum um 11:15). Áætlað er að koma til baka úr göngunni um kl. 14:00.
Að þessu sinni þurfa skipuleggjendur að vita um þá sem ætla að koma í göngu, þar sem við þurfum að panta borð á veitingastaðnum. Vinsamlegast hafið því samband við Margréti (mst@isl.is) eða Sibbu (siggasys@simnet.is) til að tilkynna þátttöku.
Með bestu kveðju og von um góða þátttöku,
Margréti, Sibba og Sigrún
|
| Rauðavatnsganga sunnudaginn 18. apríl Skráð þann: 14.4.2004 13:20:32 |
Rauðavatnsganga verður hjá deild ECS sunnudaginn 18. apríl.
Hist á bílastæðinu í hlíðinni við norðanvert vatnið kl. 11:00 og gengið í ca klukkutíma.
Muna eftir taumnum og pokanum góða.
Bestu kveðjur,
göngunefndin
|
| Ganga 4. apríl Skráð þann: 1.4.2004 20:46:33 |
Næsta ganga verður sunnudaginn 4. apríl. Hist við rætur Helgafells í Hafnarfirði kl. 11:00 og gengið á fellið.
Muna eftir taumnum (á báðum leiðum :-))og skítapoka.
Með kveðju,
göngunefndin
|
| Gaman í síðustu gögnuferð hjá okkur Birtu Skráð þann: 21.3.2004 01:48:11 |
Við Birta erum alltaf jafn heppin. Við vorum svo heppin að mæta á síðustu gögnuferð þar sem gengið var í frekar blautu færi um Kaldárselið. Ágætis þáttaka og mjög gaman hjá mér krökkunum og Birtu. Það eru komnar myndir inn á myndavefinn okkar sem sýna færðina. Gamanið tvöfaldaðist hjá okkur Birtu þegar ég uppgvötaði það að ég hafði gleymt tauminum hennar Birtu við hellisskútan þar sem við fengum okkur kaffi. Þetta uppgvötaðist náttúrulega ekki fyrr en við vorum komin að bílnum aftur svo ég varð að skutla krökkunum heim og síðan snérum við aftur við Birta til að labba allan túrinn aftur til að ná í tauminn okkar. Við vorum sammála að þetta var allt of góður taumur til að láta hann verða eftir í hrauninu. Við vorum því svo heppin að fá tvöfaldan skammt af súrefni þennan dag.
|
| Rauðavatnsganga á sunnudaginn Skráð þann: 15.3.2004 16:16:38 |
Rauðavatnsganga verður sunndaginn 21. mars. Sjá undir Dagskrá
|
| enskur cocker til sölu Skráð þann: 21.2.2004 18:41:39 |
Hæ erum að kanna hvort góð fjölskylda sem vön er hundum vill kaupa tikina okkar.
Vinsamlega hafið samband i gegnum email ggy@simnet.is
|
| Hún Snotra mín og hann Sezar minn...!!! Skráð þann: 21.2.2004 16:02:55 |
Hún Snotra var fædd af Alvin og henni Meliku þau eru mjög gömul núna. Þua Alvin og Melika hafa unnið verlaun......og hún snotra var að fæða 5 hvolpa núna í gær hún Melika, Alvinn og hún Snotra eru pointer og hann Sezar er golden retrefer.... þannig að hvolparnir eru blending sérsagt golden og pointer þeir eru allir brúnir með hvítum doppum og mjög lonir þeir eru bara mjög líkir podle hundum en eru ekki alveg þannig þeir eru soldið kramdir í framan því pabbinn hanns Sezars var boxer !!! þannig pabbinn er golden og boxer ég gef hvolpana bara til sistra mynna.(i)
|
| Ganga 29. febrúar Skráð þann: 18.2.2004 18:31:51 |
Næsta hundaganga verður 29. febrúar kl. 11:00.
Sjá undir dagskrá
|
| Rauðavatnsganga sunnudaginn 15. febrúar Skráð þann: 9.2.2004 21:01:17 |
Sunnudaginn 15. febrúar verður Rauðavatnsganga hjá deildinni.
Hvernig væri að ganga einhvern annan hring núna en við erum vön?
Hittumst á bílastæðinu sem er norðanmegin við vatnið í enda vegarins kl. 11:00. Þá ökum við niður að vatninu (eins og venjulega) en höldum áfram meðfram vatninu, eins langt og hægt er og leggjum bílunum þar. E.t.v. getum við byrjað á því að ganga meðfram vatninu og svo upp á heiðina.
Með kveðju,
Nefndin
|
| Hundaganga sunnudaginn 1. febrúar Skráð þann: 27.1.2004 20:24:32 |
Næsta ganga hjá deild Enskra Cocker Spaniel hunda verður sunnudaginn 1. febrúar kl. 11:00.
Áætlað er að ganga eftir Búrfellsgjá við Heiðmörk og alla leið að Búrfelli og til baka ef veður og stemmning leyfir. Göngutími ca 11/2 - 2 tímar (ef við förum alla leiðina).
Leiðarlýsing: Ekið í átt að Vífilstöðum að Vífilstaðavatninu. Þegar komið er niður að vatni, er beygt til hægri (skilti sem stendur á Hafnarfjörður). Ekið góðan spöl áfram þar til vegur greinist og þá er tekin beygja til vinstri í Heiðmörkina. Nú er veginum fylgt eftir hlíðinni, með hlíðina á vinstri hönd (m.a. ekið fram hjá stóra grillstæðinu).
Þá er tekin kröpp beygja og ekið yfir hæð, þá blasir við tjaldstæði með bílastæði og salernishúsi (Hjallaflatir).
Frá bílastæðinu er göngustígur í átt að Búrfellsgjánni.
Þetta er skemmtileg ganga fyrir fólk (og hunda) á öllum aldri en betra er að vera á góðum skóm.
|
| dog.com Skráð þann: 23.1.2004 14:04:34 |
Ein besta hundasíða sem ég veit um heitir:dog.com.
Ef þið viljið fá indislegar myndir á bakgrunninn á tölvunni ykkar,
ættuð þið að kíkja!
|
| Gæðadýr Skráð þann: 23.1.2004 14:00:52 |
Ég á lítinn English cocer spaniel hvolp sem er þægasti hundur sem ég veit um.Svo er hann líka svo góður við börnin mín sem eru 1 árs
og 2 ára.Þessi hvolpur er tík sem heitir Carmen.
|
| anika um baltó aniku týkina mína Skráð þann: 15.1.2004 17:29:09 |
Baltó er kölluð anika en mér langar ekki að eiðileggja nafn hennar
|
| Hundaganga sunnudaginn 18. janúar Skráð þann: 13.1.2004 10:07:06 |
Sjá undir dagskrá.
|
| hvernig hugsa ég um hundinn????? Skráð þann: 1.1.2004 13:42:43 |
það sem ég geri er að ég baða hundinn minn mjög vel á fimmtudögum og mánudögum. Mig hefur alltaf dreimt um að eignast annann hund ef þið viljið losa ykkur við hundinn ykkar endilega látið vita í síma 586-1674 takk kærlega.Ég er með góða pössun fyrir hundinn minn og fer út að ganga á hverjum einasta degijafnvel 4 sinnum og mig langar mest í cavalier. Ég á american cocker spaniel. Munið sími 586-1674..........CAVALIER EÐA SHEFFER. Mig hefur langað í cavalier eða sheffer. Ég vil bara þannig hunda.
|
| Hundaganga þ. 30 november 2003 Skráð þann: 21.11.2003 23:31:26 |
Hundaganga í "Hundadalinn" í Hafnarfirði verður farin sunnudaginn,30 nóvember.
Mæting við Kirkjugarðinn í Hafnarfirði kl. 11.00. Þar hittumst við og keyrum síðan smáspöl og leggjum bílunum.
Göngum síðan í ca. 45-60 mín. um Sléttuhlíð,sem er mjög fallegt svæði.
Munið gönguskóna,hlýju fötin og góða skapið.
Bestu kveðjur, göngunefnd.
|
| Fyrsta hundaganga haustsins Skráð þann: 2.9.2003 21:59:41 |
Fyrsta hundaganga haustsins verður sunnudaginn 14. september.
Hittumst við bílastæðið við norðanvert Rauðavatn kl. 12:00 og göngum hring á heiðinni fyrir norðan vatnið. Gangan tekur um 45. mínútur.
Leiðrlýsing: Ekið niður að vatninu rétt eftir að komið er út úr hringtorginu norðvestan megin við vatnið. Nú standa byggingaframkvæmdir yfir á svæðinu en afleggjarinn er þarna á sínum stað þó það sé nokuð bratt niður á hann. Ekið meðfram vatninu og beygt upp annan afleggjara, upp svolitla brekku á bílastæðið. Í brekkunni (áður en komið er að bílastæðinu) eru 2-3 hús á hægri hönd.
Hvernig væri að hafa smá hressingu með sér og enda á því að spjalla svolítið saman í lokin?
Með göngu-kveðju,
Margrét, Sibba og Sigrún
|
| Grillhátíð að Sperðli Skráð þann: 28.7.2003 11:37:24 |
Grillhátíð
Fyrirhugað er að eigendur ensks cocker spaniel hunda hittist á Sperðli laugardaginn 9.ágúst og skemmti sér saman.
Mæting er um kl. 13 og byrjað verður á að fara í hundagöngu. Byrjað verður að grilla kl.18. Hver og einn kemur með á grillið fyrir sig. Gott væri að þeir sem eiga tjaldstóla og borð komi með það með sér.
Þeir sem vilja gista aðfaranótt sunnudags er velkomið að tjalda á túninu.
Til að auðvelda skipulag þætti mér vænt um að fólk mundi tilkynna þátttöku í síma 487 8070 eða á tölvupósti sperdill@simnet.is
Kær kveðja og við vonumst til að sjá sem flesta,
Fjölskyldan Sperðli
|
| Nýjustu fréttir frá hundagögnu Skráð þann: 26.5.2003 15:21:19 |
Sumarganga að Tröllafossi 1. júní.
Sunnudaginn 1. júní verður næsta og jafnframt síðasta ganga deildar Enskra Cocker Spaniel á þessu misseri.
Að þessu sinni er ferðinni heitið að Tröllafossi undir Esjuhlíðum. Ef veður leyfir er áætlað að ganga upp með Leirvogsánni, að fossinum og stansa þar svolitla stund. Það er því tilvalið að hafa með sér eitthvert nesti.
Áætlaður göngutími er um tvær klukkustundir með stoppi við fossinn. Leiðin, sem liggur um gljúfur er mjög falleg og allir ættu að ráða við, bæði fullorðnir og börn en betra er að vera á góðum skóm.
Leiðarlýsing:
Ekinn er Þingvallavegurinn um Mosfellsdal, fram hjá Laxnesi og Gljúfrasteini. Tekinn er fyrsti afleggjari eftir það til vinstri (við Selholt).
Ekið er framhjá Skeggjastöðum og stöðvað við brúna yfir Leirvogsá. Hist þar kl. 12:00.
Með sumarkveðju,
Sigrún, Sibba og Margrét
http://www.islandsmyndir.is/html_skjol/sudvesturland/trollafoss/storar_myndir/svl_trollafoss_4638.htm
|
| Hvolpar! Skráð þann: 2.4.2003 14:15:21 |
Þann 22.mars fæddust 5 einlitir hvolpar undan Charbonnel Schumacker og Charbonnel Lizette. Tvær svartar tíkur, einn svartur rakki, ein rauð tík og einn rauður rakki komu úr gotinu.
Áhugasamir hafi samband í gegnum tölvupóst, hraungb@heimsnet.is eða í síma 899-8525 (Vigdís).
|
| Nýjar myndir af Kasper, Dropa og frá sýningu Skráð þann: 3.3.2003 23:15:54 |
Nýjar myndir komnar inn
|
| Nýjar myndir Casper og Dropi Skráð þann: 20.2.2003 22:02:07 |
Nú eru Casper og Dropi mættir á svæðið. ég lét þá vera saman í seríu.
Mjög gaman að skoða. Endilega verið dugleg að leyfa okkur hinum að skoða hundinn ykkar.
|
| Nýjar myndir komnar í myndaalbúmið Skráð þann: 16.2.2003 10:45:46 |
Farið í ECS deild=>Myndaalbúm til að skoða
|
| Hundagang á sunnudag Skráð þann: 5.2.2003 09:18:59 |
Sjá nánar undir "ECS deild" => "Dagskrá"
|
| Velkomin á ECS vefinn Skráð þann: 1.2.2003 10:03:24 |
Velkominn á ECS vefinn. Vefurinn er tileinkaður Enskum Cocker spaniel hundum. Hugmyndin er að hundaeigendur geti skráð sig á póstlista, deilt með okkur sögum af hundinum, sent inn myndir, rýnt í úrslit síðustu sýninga og spáð í þá næstu. Væntanlegir eigendur geta fundið upplýsingar um einkenni tegundarinnar og ef við verðum dugleg að skrifa getum við sagt þeim afhverju við völdum okkur Enskan Cocker Spaniel þegar við vorum að velja okkur hund. Ræktendur geta sagt okkur got fréttir svo við getum fylgst með. Eins og staðan er í dag er einnig spennandi fyir okkur að fylgjst með hvenær nýjir hundar koma til landsins. Tengla safn verður á sínum stað þar sem við getum farið að flakka um netið og fundið aðra vefi tileinkað þessum vin okkar. Ef þið rekist á einhvern góðan vef sem ekki er nefndur hér þá endilega sendið þetta inn, t.d. með því að skrifa "Frétt".
Ef þið eigið mynd af hundinum ykkar þá senidið inn og ég bæti henni í safnið. Einnig er möguleiki á að þið sendið ljósmyndir í pósti sem ég skanna inn og sendi ykkur aftur, en skilyrði er að þið látið áletrað umslag fylgja með ykkar heimilisfangi þannig að ég geti sent myndirnar til ykkar aftur. Allar ábendingar um vefinn vel þegnar. (Ekki lofa ég þó að fara eftir þeim)
|
| Vefurinn kominn á réttan stað Skráð þann: 26.1.2003 10:21:08 |
Nú er vefurinn kominn á þann stað sem honum er ætlað að vera í framtíðinni. Nýja slóðin er http://www.hrfi.is/ecs .Þróun gengur vel. Hægt er að skrá sig á nafnalista (póstlista) og hugmyndin er að þeir sem skrá sig með netfang fá áminningu senda í pósti t.d. fyrir hundgögnu eða aðrar uppákomur.
|
| Flutningur á vef dregst á langinn Skráð þann: 14.1.2003 21:12:02 |
Ekkert gengur að fá vefinn fluttan yfir á http://www.hrfi.is/ecs eins og til stendur.
|
| 70 hundar á lífi Skráð þann: 14.1.2003 21:03:49 |
Talið er að allt að 70 Enskir Cocker spaniel hundar séu á lífi hér á íslandi í dag. Beðið er eftir upplýsingum frá HRFI um nákvæmari fjölda hunda á skrá hjá þeim. Inga frá Sperðli taldi að allt að 70 hundar væru á lífi og væri gaman að geta skrásett þá allt m.a. hér á þessum vef þar sem allir eigendur geta komið og skrá sína hunda.
|